Glútenlausar vöfflur sem eiga eftir að slá í gegn

Anna Guðný Torfadóttir kann að gera mjög góðar glútenlausar vöfflur.
Anna Guðný Torfadóttir kann að gera mjög góðar glútenlausar vöfflur. Samsett mynd

Þess­ar vöffl­ur eiga eft­ir að slá í gegn, þær eru bæði glút­en­laus­ar og ómót­stæðilega bragðgóðar. Heiður­inn af upp­skrift­inni á Anna Guðný Torfa­dótt­ir hjá Heilsu og vellíðan. Þegar hún ger­ir þess­ar vöffl­ur finnst henni allra best að bera þær fram með hnetu­smjöri og frosn­um, líf­ræn­um hind­berj­um.

Hún deildi upp­skrift­inni ásamt aðferðinni með fylgj­end­um sín­um á dög­un­um á In­sta­gram-síðu sinni hér.

Glútenlausar vöfflur sem eiga eftir að slá í gegn

Vista Prenta

Glút­en­laus­ar vöffl­ur

  • 5 dl haframjöl
  • 6 dl vatn
  • 4-6 döðlur
  • 4 msk. chiafræ
  • 2 ban­an­ar
  • 3 msk. kó­kosol­ía, bráðin
  • 2 tsk. kanill
  • Gróft salt

Aðferð:

  1. Setjið öll inni­halds­efn­in sam­an í bland­ara og blandið mjög vel sam­an, þar til deigið verður al­veg silkimjúkt.
  2. Setjið smá kó­kosol­íu á járnið og dreifið henni.
  3. Gerið það fyr­ir hverja vöfflu svo þær fest­ist ekki við.
  4. Berið síðan vöffl­urn­ar fram með því sem hug­ur­inn girn­ist og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert