Guðdómlega fallegt sólberjakonfekt með bleikri súkkulaðiskel

Eftirréttadrottningin, Ólöf Ólafsdóttir, ætlar að bjóða upp á þessa guðdómlega …
Eftirréttadrottningin, Ólöf Ólafsdóttir, ætlar að bjóða upp á þessa guðdómlega fallegu konfektmola með kaffinu á Bleika deginum. Samsett mynd

Eft­ir­rétta­drottn­ing­in, Ólöf Ólafs­dótt­ir, og fyrr­ver­andi landsliðskokk­ur ætl­ar að halda upp á Bleika dag­inn sem fram und­an er á miðviku­dag­inn 23. októ­ber næst­kom­andi og bjóða upp á þessa dýr­ind­is bleiku kon­fekt­mola.

Til­efni bleika dags­ins er ærið en það er að all­ar kon­ur sem greinst hafa með krabba­mein finni fyr­ir stuðningi lands­manna og sam­stöðu. 

Hér er á ferðinni guðdóm­legt sól­berja­kon­fekt með bleikri súkkulaðisk­el sem bráðnar í munni. Ólöf seg­ir að það sé alls ekki flókið að gera kon­fekt en gald­ur­inn sé fyrst og fremst að flýta sér hægt og nostra við mol­ana. Einnig er lyk­il­atriðið að tempra súkkulaðið rétt. 

Til þess að gera kon­fekt eins og þetta þarf að vera kon­fekt­form til staðar. Í form­inu mót­ast kon­fekt­mol­inn.

Sólberjakonfekt með bleikri súkkulaðiskel sem gleður sálina.
Sól­berja­kon­fekt með bleikri súkkulaðisk­el sem gleður sál­ina. Ljós­mynd/Ó​löf Ólafs­dótt­ir

Guðdómlega fallegt sólberjakonfekt með bleikri súkkulaðiskel

Vista Prenta

Sól­berja­kon­fekt  með bleikri súkkulaðisk­el

Sól­berja­sulta

  • 200 g sól­berja púrra
  • 7 g sítr­ónusafi
  • 40 g corn síróp (glúkósi)
  • 5 g pektín
  • 60 g syk­ur

Aðferð:

  1. Blandið sykri og pektíni sam­an og setjið til hliðar.
  2. Vigtið það sem eft­ir er af hrá­efn­un­um í pott og hitið að suðu, hellið þá syk­ur­blönd­unni sam­an við og passið þetta stans­laust á meðan.
  3. Hellið sult­unni í skál og leyfið henni að kólna al­veg.
  4. Þegar sult­an er orðin köld er hún blönduð með töfra­sprota til þess að fá enn þá betri áferð.

Bleik súkkulaðisk­el

  • 1000 g hvítt súkkulaði
  • Bleik­ur fitu­upp­leys­an­leg­ur mat­ar­lit­ur, mjög mik­il­vægt er að mat­ar­lit­ur­inn sé fitu­upp­leys­an­leg­ur.

Aðferð:

  1. Temprið hvítt súkkulaði í skál og blandið sam­an við bleika mat­ar­lit­inn.
  2. Þegar súkkulaðið er orðið bleikt hellið því þá í kon­fekt­formin til að búa til skel­ina.
  3. Hellið súkkulaðinu úr eft­ir 30 sek­únd­ur til að búa til fal­lega þunna skel.
  4. Sprautið sult­unni í formin og passið að skilja smá eft­ir á toppn­um fyr­ir það sem eft­ir er af súkkulaðinu.
  5. Nú hefst biðin, við vilj­um helst láta kon­fektið standa úti í 10-24 klukku­tíma áður en við lok­um skel­inni.
  6. Þegar þessi tími er liðinn er súkkulaðið temprað aft­ur og það smurt á topp­inn.
  7. Leyfið þessu að harðna og þá er kon­fektið til­búið og vert að losa það úr form­inu.
  8. Berið fram og njótið hvers mola.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert