Sylvía töfraði fram þessa dásamlegu kókosköku með sítrónufyllingu

Sylvía Haukdal töfraði fram þessa dásamlegu kókosköku með sítrónufyllingu og …
Sylvía Haukdal töfraði fram þessa dásamlegu kókosköku með sítrónufyllingu og kókoskremi í tilefni Bleika dagsins. Samsett mynd

Sylvía Hauk­dal ástríðubak­ari og sæl­keri byrjuð að und­ir­búa sig fyr­ir Bleika dag­inn sem framund­an er, miðviku­dag­inn 23. októ­ber næst­kom­andi. Hún er ætl­ar að bjóða upp á þessa dá­sam­legu kó­kos­köku með sítr­ónu­fyll­ingu og bleiki lit­ur­inn verður í for­grunni.

Sylvía er þekkt fyr­ir sín­ar ljúf­fengu kök­ur og fal­legu köku­skreyt­ing­ar og þessa dag­ana blómstra hún sem aldrei fyr­ir í köku­gerðinni hjá 17 Sort­um.

Falleg bleika kakan hennar Sylvíu, mikið augnakonfekt að njóta.
Fal­leg bleika kak­an henn­ar Sylvíu, mikið augna­kon­fekt að njóta. mbl.is/​Karítas

„Ég mun baka þessa köku og bera hana fram á fal­lega dekkað borð þar sem bleiki lit­ur­inn verður í for­grunni. Síðan verð ég ör­ugg­lega í ein­hverju bleiku,“ seg­ir Sylvía með bros á vör.

Ef þið viljið hafa kremið bleikt er upp­lagt að setja ör­lítið af bleik­um mat­ar­lit út í kremið og blanda sam­an.

Sylvía skreyti kökuna með makkarónum og perlukökuskrauti á listrænan og …
Sylvía skreyti kök­una með makkarón­um og perlu­köku­skrauti á list­ræn­an og fal­leg­an hátt. mbl.is/​Karítas

Sylvía töfraði fram þessa dásamlegu kókosköku með sítrónufyllingu

Vista Prenta

Kó­koskaka með sítr­ónu­fyll­ingu og kó­koskremi

Kó­kos­botn

  • 240 g Korn­ax Hveiti
  • 50 gr kó­kos
  • 2 tsk. lyfti­duft
  • 1 tsk. salt
  • 170 g smjör
  • 300 g syk­ur
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar
  • 5 stk. eggja­hvít­ur
  • 110 ml kó­kos­mjólk
  • 95 ml nýmjólk
  • 45 ml olía

Aðferð:

  1. Byrjið á því að stilla ofn­inn á 175°C (viftu).
  2. Setjið næst smjör, við stofu­hita, og syk­ur sam­an í hræri­véla­skál og þeytið þar bland­an til verður ljós og létt.
  3. Setjið síðan eggja­hvít­urn­ar ró­lega sam­an við, lítið í einu.
  4. Hrærið síðan sam­an við blönd­una 1/​3 af þur­refn­un­um.
  5. Hrærið síðan við 1/​2 af blautefn­un­um, mjólk, kó­kos­mjólk, olíu og
  6. Vanillu­drop­um, sam­an við.
  7. Hrærið loks næsta skammti, 1/​3 ,af þur­refn­un­um sam­an við.
  8. Setjið síðan rest­inni af blautefn­un­um út í.
  9. Setjið síðan lok­um síðasta skammt­inn af þur­refn­un­um út í.
  10. Gott er að hræra deigið ekki of mikið en samt nóg til þess að allt sé komið sam­an.
  11. Setjið síðan deigið í þrjú 15 cm stór hring­form.
  12. Setjið að lok­um formin inn í ofn og bakið við 175°C hita í um það bil 20-25 mín­út­ur.

Kó­koskrem

  • 650 g smjör
  • 650 g flór­syk­ur
  • 2 tsk. vanillu­drop­ar
  • 200 ml kó­kos­mjólk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að þeyta smjörið, við stofu­hita, þar til það verður ljóst og létt.
  2. Bætið síðan flór­sykr­in­um og vanillu­drop­un­um sam­an við og haldið áfram
  3. að þeyta.
  4. Síðan bætið þið við kó­kos­mjólk­inni, við stofu­hita, sam­an við og þeytið í 2-3
  5. mín­út­ur.

Sítr­ónu­fyll­ing

  • 70 ml sítr­ónusafi
  • 3 tsk. sítr­ónu­börk­ur
  • 75 g syk­ur
  • 4 stk. eggj­ar­auður
  • 45 g smjör

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja öll hrá­efn­in í skál yfir vatnsbað.
  2. Passið að hræra stans­laust í blönd­unni þar til hún fer að þykkna og nær
  3. rúm­lega 70°C hita.
  4. Sigtið þá blönd­una í aðra skál og setjið í kæli.

Sam­setn­ing:

  1. Setjið síðan kök­una sam­an með þunnu lagi af kremi utan um hana.
  2. Setjið loks kök­una í kæli í smá stund áður en þið haldið er áfram að setja krem og
  3. skreyta hana.
  4. Skreytið eins og ykk­ur lang­ar til og berið hana fram á töfr­andi og bleik­an hátt.
  5. Sylvía skreytti sína köku til dæm­is með bleik­um makkarón­um, kökuperlu­skrauti og öðru skemmti­legu skrauti. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert