Reykjavík Cocktail Weekend verður að Reykjavík Cocktail Week í fyrsta skiptið árið 2025. Stærsta kokteilahátíð landsins er að verða en stærri en verið hefur. Hátíðin verður haldin 31. mars til 6. apríl næstkomandi og bætast þannig tveir dagar við þessa uppskeruhátíð kokteilsins á Íslandi, að því segir í tilkynningu frá Barþjónaklúbbi Íslands.
Hátíðin var fyrst haldin árið 2014 og var markmiðið með henni að fá alla helstu bari, veitingahús og vínbirgja Reykjavíkur til þess að vinna saman að því að efla barmenningu í borginni. Aðalviðburður hátíðarinnar, Reykjavík Cocktail Week Expo, verður á sínum stað í Hörpu, tónlistarhúsi og aðalkennileiti Reykjavíkurborgar, miðvikudaginn 2. apríl næstkomandi þar sem Íslandsmeistaramót Barþjóna fer einnig fram.
Áhugasamir geta fylgst með á Instagram og Facebook reikningi Barþjónaklúbbsins. Einnig munu allar upplýsingar varðandi hátíðina birtast hér þegar nær dregur.