Töfruðu fram bleikt nostalgíu kaffiborð

Önnurnar töfruðu fram þetta fallega, bleika nostalgíu kaffiborð í tilefni …
Önnurnar töfruðu fram þetta fallega, bleika nostalgíu kaffiborð í tilefni Bleika dagsins. Samsett mynd

Nöfn­urn­ar Anna Berg­lind Júlí­s­dótt­ir og Anna Lísa Rasmus­sena hafa óbilandi áhuga á hönn­un og skreyt­ing­um þegar kem­ur að heim­il­inu. Í til­efni Bleika dags­ins lögðu þær á bleikt, nostal­g­íu, kaffi­borð og notuðu stell og fleiri ger­sem­ar frá ömm­um sín­um. Einnig bökuðu þær bleika slaufu­köku og höfðu bleika lit­inn í for­grunni í borðskreyt­ing­un­um.

Nöfnurnar Anna Berglind Júlísdóttir og Anna Lísa Rasmussena hafa óbilandi …
Nöfn­urn­ar Anna Berg­lind Júlí­s­dótt­ir og Anna Lísa Rasmus­sena hafa óbilandi áhuga á hönn­un og skreyt­ing­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Þær stöll­ur halda úti síðunni Skreyt­um borð á In­sta­gram þar sem má sjá skreytt borð fyr­ir allskyns til­efni.

Gömul bollastell og gamlar fermingarservíettur prýða bleika kaffiborðið.
Göm­ul bolla­stell og gaml­ar ferm­ing­ar­serví­ett­ur prýða bleika kaffi­borðið. Ljós­mynd/​Anna Lísa

„Við sýn­um líka mikið frá okk­ar heim­il­um sem eru mjög ólík, þar sem við erum að skreyta hill­ur, sófa­borð og margt fleira. Einnig för­um við á búðarrölt, tök­um mynd­ir og sín­um frá því nýj­asta úr okk­ar upp­á­haldsversl­un­um. Við ger­um okk­ar besta til hafa síðuna fjöl­breytta og skemmti­lega, sín­um frá margskon­ar föndri, en okk­ur skort­ir ekki hug­mynda­flug eins og til dæm­is að breyta og bæta ýmsa hluti sem til falla.“

Gyðja með bleika slaufu

Þegar bleik­ur októ­ber rann upp fóru þær á stúf­ana til að finna hluti til að skreyta með og hlúa að bleika litn­um.

„Okk­ur þykir sér­stak­lega gam­an að leggja fal­lega á borð og oft­ar en ekki verður fyr­ir val­inu skraut og jafn­vel gaml­ir fal­leg­ir mun­ir frá forfeðrum okk­ar. Á þetta borð notuðum við ger­sem­ar frá ömm­um okk­ar sem hæf­ir vel þessu til­efni þ.e.a.s. góðu boði. Við not­umst aðallega við það sem við átt­um heima fyr­ir eða keypt­um á nytja­mörkuðum eins og til að mynda gyðjustytt­una. Okk­ur langaði til að lyfta henni upp á stall og þar sem ekki var til hvít­ur stand­ur brugðum við á það ráð að nota skál og kökudisk. Við krækt­um Bleiku slauf­unni á háls­fest­ina sem gyðjan ber en okk­ur fannst það eiga vel við,“ seg­ir Anna Berg­lind.

Forláta gyðjan ber hálsfesti með Bleiku slaufunni.
For­láta gyðjan ber háls­festi með Bleiku slauf­unni. Ljós­mynd/​Anna Lísa

Gott að nýta það sem til er

„Serví­ett­urn­ar átti önn­ur okk­ar sem var af­gang­ur úr ferm­ing­ar­veislu sem hald­in var fyr­ir nokkr­um árum. Það er alltaf gott að geta nýtt það sem til er. Við fór­um á nytja­markað og dutt­um niður á fal­leg glös á fæti, kæli­fötu og karöflu sem kostaði okk­ur ein­ung­is  tvö þúsund krón­ur.

Stöllurnar bökuðu bleika slaufu og skreyttu með glassúr.
Stöll­urn­ar bökuðu bleika slaufu og skreyttu með glassúr. Ljós­mynd/​Anna Lísa

Kök­una bökuðum við úr hrá­efni frá Betty Crocker, en við notuðum tæpa tvo pakka og gátu nýtt rest­ina í múff­ur. Við teiknuðum slauf­una á bök­un­ar­papp­ír, klippt­um hana út, lögðum síðan úr­klipp­una á kök­una og skár­um hana eft­ir henni. Glassúrið ofan á kök­unni er gerður úr flór­sykri, heitu vatni og litað bleikt með Ri­bena trönu­berjaþykkni. Við bund­um síðan slauf­ur úr bleik­um borðum bæði í skraut á kök­una og eins til að lífga upp á borðið.

Bleikar rósir eru líka í forgrunni.
Bleik­ar rós­ir eru líka í for­grunni. Ljós­mynd/​Anna Lísa

Allt er þetta ofur ein­falt og án mik­ill­ar fyr­ir­hafn­ar en það finnst okk­ur alltaf kost­ur og ætti því fólk sem hef­ur ekki mik­inn tíma í að nostra við svona hluti að geta nýtt sér þess­ar hug­mynd­ir,“ seg­ir Anna Lísa með bros á vör.

„Við tök­um báðar þátt í að minna á þenn­an dag en á okk­ar vinnu­stöðum klæðast all­ir bleiku í til­efni dags­ins. Einnig fær bleikt skraut að njóta sín út all­an októ­ber­mánuð sem er til­einkaður öll­um kon­um sem hafa fengið krabba­mein sem hef­ur tekið svo mikið frá mörg­um,“ seg­ir þær stöll­ur sam­an í kór.

Gam­an er að skoða mynd­irn­ar og sjá þessu frum­legu og ein­földu hug­mynd­ir. Á mynd­un­um má fá inn­blást­ur fyr­ir skreyt­ing­ar af ýmsu tagi.

Hér má In­sta­gramsíðu þeirra og út­kom­una á bleika nostal­g­íu kaffi­borðinu.

Bleikt skal það vera.
Bleikt skal það vera. Ljós­mynd/​Anna Lísa
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert