Nýstárleg stjörnu-matarupplifun sem aldrei áður hefur sést á Íslandi

Þríeykið Max Westerlund, Lars Brennwald og John Forssell sem á …
Þríeykið Max Westerlund, Lars Brennwald og John Forssell sem á eftir að fara á kostum á veitingastaðnum OTO. Ljósmynd/Aðsend

Dag­ana 1. og 2. nóv­em­ber næst­kom­andi verður pop-up viðburður á stjörnu­veit­ingastaðnum OTO við Hverf­is­götu 44 þar sem teymið frá veit­ingastaðnum Miya­kodori í Stokk­hólmi í Svíþjóð mæt­ir og sýn­ir list­ir sín­ar í eld­hús­inu.

Um er að ræða ein­stak­an viðburð þar sem boðið verður upp á ný­stár­lega mat­ar­upp­lif­un sem aldrei hef­ur sést á Íslandi. Í teym­inu eru mat­reiðslu­menn­irn­ir Lars Brennwald, John Fors­sell og Max Wester­lund Inazawa en þeira eiga og reka veit­ingastaðinn í Stokk­hólmi sam­an.

Hér má sjá yakitori sem eru japönsk grillspjót.
Hér má sjá yakitori sem eru japönsk grill­spjót. Ljós­mynd/​Aðsend

Miya­kodori er yakitori veit­ingastaður og izakaya en þetta er nýj­ung á Íslandi. Izakaya mjög laus­lega þýtt og þýðir jap­ansk­ur pöbb eða óform­leg­ur veit­ingastaður þar sem fólk hitt­ist til að njóta drykkja og smá­rétta til að deila.

Felst í ást á jap­anskri menn­ingu

„Eft­ir lang­an tíma í fag­inu og eft­ir að hafa unnið á veit­inga­stöðum bæði af­slappaðri kant­in­um sem og á fínni veit­inga­stöðum eins og til að mynda Frantzén sem er með Michel­in- stjörn­ur og á hinu virta steik­húsi AG, fannst okk­ur að tími væri kom­inn til að við mynd­um opna okk­ar eig­in stað. Við fór­um því að af stað opnuðum veit­ingastaðinn Miya­kodori árið 2022 í Stokk­hólmi þar sem hjarta borg­ar­inn­ar slær,“ seg­ir Brenwald.

„Und­ir­staða Miya­kodori veit­ingastaðar­ins felst í ást á jap­anskri menn­ingu, izakaya stemn­ingu og list­inni að gera yakitori sem eru japönsk grill­spjót,“ bæt­ir Brenwald við.

Lars Brennwald á grillinu að töfra fram japönsk grillspjót.
Lars Brennwald á grill­inu að töfra fram japönsk grill­spjót. Ljós­mynd/​Aðsend

Með þess­ari und­ir­stöðu og „fine din­ing“ reynslu eig­end­anna að baki leggja þeir sig fram við að skapa nýja og spenn­andi mat­ar­upp­lif­un á staðnum sín­um í Stokk­hólmi og ætla að leika list­ina eft­ir á OTO.

Eldhúsið á veitingastaðnum Miyakodori í Stokkhólmi.
Eld­húsið á veit­ingastaðnum Miya­kodori í Stokk­hólmi. Ljós­mynd/​Aðsend

Nafnið, Miya­kodori, erfðu þeir með miklu stolti frá þriðju kyn­slóð yakitori izakaya, í Kawasaki fyr­ir utan Tókýó, sem opnaði á fimmta ára­tugn­um og ber sama nafn.

Hlökk­um til að deila eld­hús­inu með þeim

„Við erum afar spennt að bjóða strák­un­um á Miya­kodori frá Stokk­hólmi vel­komna á OTO standa fyr­ir þess­um ein­stak­an pop-up viðburð. Mat­seðlarn­ir okk­ar eru líka hugsaðir fyr­ir fólk að deila og það verður gam­an að sjá hvernig þeir gera þetta,“ seg­ir Sig­urður Lauf­dal einn eig­enda OTO og yf­ir­mat­reiðslumaður.

„Við hlökk­um deila með þeim eld­hús­inu okk­ar og læra af þeirra reynslu og sjálf­sögðu elda og bera fram góðan mat sem er líf okk­ar og yndi,“ seg­ir Sig­urður að lok­um.

Meðan á viðburðinum stend­ur verður ein­ung­is einn mat­seðill­inn í boði sem er sér­mat­seðill­inn þeirra. Mik­il ásókn er á viðburðinn og á Sig­urður von á því að eldað verði fyr­ir fullu húsi alla helg­ina.

Fallegur samruni eina helgi.
Fal­leg­ur samruni eina helgi. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert