Nú þegar kólnar í veðri er vert að huga vel að því að innbyrða nægilegt magn vítamína og steinefni til að styðja við ónæmiskerfið. Í tilefni af bleikum október ákvað Kristín Amy að útbúa heilsusamlegan bleikan drykk sem er jafnframt virkilega bragðgóður.
Rauðrófa er þekkt fyrir að vera sneisafull af mikilvægum næringarefnum, hafa andoxandi eiginleika og geta dregið úr bólgum í líkamanum. Íþróttafólk hefur einnig stólað á rauðrófu til að auka súrefnisupptöku í líkamanum og flýta endurheimt eftir ákefð svo dæmi séu nefnd. Það er því vel við hæfi að rauðrófa sé í þessum skærbleika drykk en með aðstoð sætra ávaxta nær Kristín að fela jarðarbragðið sem fylgir iðulega rauðrófunni.
Kristín keypti rauðrófu á litlar 48 krónur sem mun endast í nokkra drykki. Hún mælir heilshugar með þessari mögnuðu ofurfæðu sem til eru svo margar rannsóknir um. Rauðrófu er að finna í flestum matvöruverslunum og yfirleitt á einstaklega lágu verði.
Drykkurinn sem Kristín Amy gerði er einstaklega fljótlegur og gefur veglega orku inn í daginn. Fyrir þá sem vilja próteinbæta drykkinn geta bætt próteindufti við uppskriftina eða jafnvel öðru ofurfæði.
Bleiki drykkurinn
Fyrir 1
Aðferð: