Birna G. Ásbjörnsdóttir doktor í heilbrigðisvísindum og matgæðingur er þekkt fyrir að laga ómótstæðilega góða fiskisúpu. Þeir sem hafa bragða fiskisúpuna hennar segja þessa þá bestu. Hún bauð til að mynda upp á fiskisúpuna frægu þegar hún og eiginmaður hennar buðu heim í huggulegt haustboð á dögunum. Gestirnir voru heillaðir af fiskisúpunni sem Birna segir að hafi sterka tengingu við Eyrarbakka, hafið og náttúruna.
Hún deilir hér með lesendum uppskriftinni að fiskisúpunni frægu.
Fiskisúpan fræga
- 400 g lax
- 300-500 g risarækjur
- 1 stk. laukur, skorinn í þunnar sneiðar
- 2-3 hvítlauksrif, söxuð smátt
- 1 stk. rauð paprika, skorin í þunnar ræmur
- 3 msk. smjör
- 1-2 tengingar grænmetiskraftur, leystir upp í 200 ml soðnu vatni
- 1 l rjómi
- 1 msk. fiskisósa
- 1 bolli hvítvín
- 1 msk. tamari sósa
- 1-2 dl tómat púrra
- 1 tsk. reykt paprika
- 1 tsk. karrí
- Sjávarsalt eftir smekk
- Svartur pipar, grófmalaður, eftir smekk
Ofan á súpuna
- Sýrður rjómi eftir smekk
- Ferskt kóríander eftir smekk
- Ferskar sprettur ef vill, valfrjálst
Aðferð:
- Steikið laukinn og hvítlaukinn í smjörinu í góðum súpupotti.
- Bætið út í papriku og kryddum.
- Bætið út í rjóma, krafti, hvítvíni og sósum.
- Látið malla í 10 mínútur, ekki láta sjóða.
- Bætið salti og smakkið til.
- Roðflettið laxinn og afþíðið rækjurnar.
- Skerið laxinn í litla bita og setjið í skál ásamt rækjum.
- Hellið súpunni yfir og látið standa í 5 mínútur.
- Berið súpuna með sýrðum rjóma út á og fersku kóríander. Einnig má líka setja ferskar sprettur ef vill.
- Einnig er gott að bera súpuna fram súrdeigsbrauði og smjöri.