Salat vikunnar mun koma öllum á óvart sem smakka enda um bragðbombu að ræða. Það er kallað „Bloody Mary tómatasalat“ þar sem það hefur öll bragðefni sem finnast í þeim frábæra drykk fyrir utan áfengið.
Í matvöruverslunum landsins er að finna margar tegundir af tómötum og þetta er einmitt salatið þar sem þeir fá að njóta sín.
„Bloody Mary“ tómatasalat
Cheddar-snakk
- 170 g hvítur cheddar, rifinn fínt niður
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Rífið cheddar-ostinn eins fínt niður og mögulegt er.
- Setjið 1 msk. af rifnum cheddar á bökunarplötu og haldið áfram með það sem eftir er af cheddar-ostinum – að búa til litla klatta með um það bil 2 cm millibili.
- Bakið stökkt í 5-6 mínútur, þar til þetta er gyllt á lit.
- Látið kólna.
- Notið spaða til að ná snakkinu af bökunarpappírnum.
Tómatasalat
- 2 tómatar, skornir í bita
- 4 plómutómatar, skornir til helminga
- 1 bolli kirsuberjatómatar, skornir til helminga
- ½ bolli grænar ólífur, skornar til helminga
- 1/3 bolli sellerí, saxað
Aðferð:
- Setjið niðurskornu tómatana í skál og saltið og piprið. Hristið vel saman og bætið ólífunum út í.
- Dreypið smávegis af dressingunni yfir og blandið saman. Smakkið til með meiri dressingu eftir þörfum.
- Toppið með sellerí-laufum og bætið cheddar-snakkinu út í eða berið fram með salatinu.
- Salatið geymist auðveldlega í kæli fram á næsta dag, fyrir utan snakkið.
Dressing
- 4 tsk. sherrý-edik
- 1 skalotlaukur, smátt skorinn
- 1 hvítlauksrif, merjað
- 1 msk. tilbúin piparrót
- 2 tsk. hunang
- 1 tsk. Worcestershire-sósa
- 1 tsk. hot-sósa
- ½ tsk. dijon-sinnep
- ½ tsk. sellerífræ
- 1/3 bolli ólífuolía
Aðferð:
- Pískið saman í skál edik, skalotlauk, hvítlauk, piparrót, Worchestershire, hunang, hot-sósu, sinnep og sellerífræ.
- Hellið ólífuolíunni út í og hrærið stöðugt í á meðan.
- Gott er að leyfa dressingunni að taka sig í 15 mínútur áður en hún fer út á salatið.