Brie-ostasmjör með hunangi og timían

Syndsamleg ljúffengt þeytt smjör með brie-osti, hunangi og timían úr …
Syndsamleg ljúffengt þeytt smjör með brie-osti, hunangi og timían úr bókinni Þetta verður Veisla. Ljósmynd/Hákon

Gabríel Kristinn Bjarnason matreiðslumaður og landsliðskokkur gaf út kokkabókina Þetta verður veisla á dögunum. Bók­in er stút­full af ein­föld­um eðalréttum sem munu áreiðan­lega slá í gegn í veisl­um lands­manna.

Þar er meðal annars að finna þessa frábæru uppskrift Brie-ostasmjöri með hunangi og timían sem er syndsamlega ljúffengt. Þetta smjör er tilvalið að bjóða upp á í næsta matarboði og töfra gestina upp úr skónum. Með smjörinu er upplagt að bera fram nýbakað súrdeigsbrauð eða djúpsteiktar vöfflur að hætti Gabríels.

Brie-ostasmjör með hunangi og timían

  • 250 g brie-ostur
  • 250 g smjör
  • 1 msk. hunang
  • ferskt timian

Aðferð:

Byrjið á því að taka smjörið úr kæli að minnsta kosti fjórum klukkustundum fyrir notkun, best væri að taka það úr kæli daginn áður.

Skerið næst húðina af brie-ostinum vegna þess að hún þeytist illa.

Byrjið á því að þeyta ostinn og smjörið saman í matvinnslu- eða hrærivél þangað til áferðin verður silkimjúk.

Setjið síðan smjörið í skál og skreytið með hunangi og fersku timían og berið fram með ristuðu súrdeigsbrauði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert