Meistarabarþjóninn Leó keppti  í London

Leó Snæfeld blandar drykkinn og Bonnie Bonella frá Duck and …
Leó Snæfeld blandar drykkinn og Bonnie Bonella frá Duck and Cove í Danmörku blandar sigurkokteilinn sinn. Samsett mynd

Meist­ara­barþjónn­inn Leó Snæ­feld hélt á vit æv­in­týr­anna í RED HANDS-keppn­ina sem fór fram í Camp­ari Hou­se í London í síðustu viku.

Leó hef­ur gert garðinn fræg­an sem yf­ir­barþjónn á Sumac, færði sig síðan yfir á Ömmu Don sem er kokteilstaður á Michel­in-stjörnu veit­ingastaðnum ÓX. Þar fór hann held­ur bet­ur á kost­um og heillað gesti með sín­um ljúf­feng­um kokteil­um. Nú hef­ur hann yf­ir­gefið Ömmu Don í bili og er kom­inn í nám.

Leó hefur gert garðinn frægan sem yfirbarþjónn á barnum Ömmu …
Leó hef­ur gert garðinn fræg­an sem yf­ir­barþjónn á barn­um Ömmu Don sem er inni á veit­ingastaðnum ÓX við Lauga­veg­inn. Ljós­mynd/​Aðsend

Alls kepptu 9 barþjón­ar

Keppn­in RED HANDS er virt í heimi barþjóna og alls kepptu níu barþjón­ar til úr­slita, frá Íslandi, Dan­mörku, Nor­egi, Finn­landi, Svíþjóð, Írlandi, Póllandi og einn frá Eystra­saltslönd­un­um og einn Jóker var val­inn auka­lega frá Dan­mörku. Leó sagði kepp­end­ur hafa verið mjög fjöl­breytta og var til að mynda bras­il­ísk­ur barþjónn að keppa fyr­ir Dan­mörku. Íslend­ing­ur­inn Guðmar Rögn­valds­son keppti fyr­ir Ruda bar í Nor­egi og þar fram eft­ir göt­un­um sem gerði keppn­ina skemmti­lega.

„Keppn­in hófst á flottu nám­skeiði „The Art of Hospitality“ þar sem kenn­ar­ar voru meist­ara­barþjón­arn­ir Ago Perrone og Gi­orgio Bargi­ani frá hinum virta Conn­aug­ht bar í London sem er í 13. sæti yfir bestu bari heims á lista The World´s 50 Best Bars,“ seg­ir Leó.

„Úrslita­keppn­ina dæmdu stór­stjörn­urn­ar Monica Berg frá Tayer and Element­ary í London sem var val­inn fjórði besti bar í heim­in­um árið 2024 og er þekkt­ur fyr­ir hágæða kokteila á krana ásamt því að nota ávallt árstíðabund­in hrá­efni og áður­nefnd­ur Ago Perrone. Ekki láta barsn­arlið fram hjá ykk­ur fara ef þið heim­sækið þessa bari. Kei­v­an Nem­ati frá Camp­ari var þriðji dóm­ar­inn,“ bæt­ir Leó við.

Dan­mörk tók bik­ar­inn

Bonnie Bo­nella frá Duck and Co­ver í Kaup­manna­höfn sem hef­ur getið sér mjög gott orð sem einn besti kokteil­b­ar í Dan­mörku sigraði. 

Bonnie Bonella frá Duck and Cover í Kaupmannahöfn sigraði keppnina …
Bonnie Bo­nella frá Duck and Co­ver í Kaup­manna­höfn sigraði keppn­ina en staður­inn hef­ur getið sér mjög gott orð sem einn besti kokteil­b­ar í Dan­mörku. Ljós­mynd/​Aðsend
Leó í góðum félagsskap með keppendum og dómurum.
Leó í góðum fé­lags­skap með kepp­end­um og dómur­um. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert