Skemmtilegt og djarft samstarf Bónus og YES

Eiki Helgason kominn með draumasnjóbrettið sinn með bleika grísnum á.
Eiki Helgason kominn með draumasnjóbrettið sinn með bleika grísnum á. Ljósmynd/Elli Thor

Bónus og YES snjóbretti kynna til leiks skemmtilegt og djarft samstarf í upphafi vetrarins. Þetta samstarf sameinar heim snjóbretta og íslenskrar menningu og fagnar einstökum stíl og sjálfstæðum anda beggja vörumerkjanna að því seg­ir í til­kynn­ingu frá Bónus.

YES, sem er þekkt fyrir nýstárlega snjóbretta hönnun tók höndum saman við Bónus um að búa til snjóbretti. Snjóbrettið undirstrikar bæði litríkt og fjörugt vörumerki Bónus með gamla grísnum ásamt fagurfræði og leikgleði YES.

Snjóbrettasnillingarnir leika listir sínar á brettunum gulu.
Snjóbrettasnillingarnir leika listir sínar á brettunum gulu. Ljósmynd/Elli Thor

Setja íkoníska bleika grísinn á snjóbrettin

Bónus x YES snjóbrettið verður fáanlegt í verslunum umheim allan í gegnum sölu og dreifikerfi YES. Hér á Íslandi verður snjóbrettið fáanlegt í gegnum Kuldi sem rekur vefverslun og búð í Skeifunni, Reykjavík

„Á hverju ári reynum við að vera í samstarfi við áhugavert fólk, listamenn eða fyrirtæki við hönnun snjóbrettanna okkar. Okkur hefur lengi dreymt um að búa til Bónus snjóbretti og setja íkoníska bleika grísinn á brettin okkar. Í ár varð þetta loksins að veruleika og stórt takk á Bónus að taka þátt í gleðinni með okkur.

Núna fáum við líka loksins tækifæri til að skjóta “Bónus - bónus efni” eins og okkur dreymdi um fyrir 20 árum þegar við vorum að gefa út snjóbrettamyndir á DVD,“ segir Eiki Helgason snjóbrettasnillingur með meiru.

Bónusgrísinn og Yes búin að sameinasta á gula brettinu.
Bónusgrísinn og Yes búin að sameinasta á gula brettinu. Ljósmynd/Elli Thor

Stofnað af snjóbrettasnillingunum Eika og Halldóri Helgasyni

Lobster snjóbretti, YES snjóbretti og NOW bindingar hafa sameinast undir # YES núna í vetur, 2024. Með þessari sameiningu undir einu vörumerki munu umsvif Lobster á heimsvísu áttfaldast. Vörur # YES munu fást í 30 löndum í um það bil 1500 verslunum. 

Lobster snjóbretti var stofnað 2011 af snjóbrettasnillingunum Eika og Halldóri Helgasyni frá Akureyri ásamt LowPressure Studio í Amsterdam. Árið 2018 er síðan LowPressure Studio ásamt Lobster keypt af Nideceker samsteypunni sem rekur starfsemi sína aftur til 1887. Eiki og Halldór eru ennþá stór partur af vegferð # YES innan Nidkecker og taka virkan þátt í starfseminni sem atvinnumenn og ráðgjafar.

Svona lítur snjóbrettið út sem mun vera til sölu í …
Svona lítur snjóbrettið út sem mun vera til sölu í minnst 30 löndum. Ljósmynd/Elli Thor
Bónusgrísinn á eftir að ferðast víða um heim.
Bónusgrísinn á eftir að ferðast víða um heim. Ljósmynd/Elli Thor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka