Ómótstæðilega góð kartöflumús með skemmtilegu tvisti

Ómótstæðilega góð kartöflumús með parmesanosti og brenndu smjör. Sælgæti að …
Ómótstæðilega góð kartöflumús með parmesanosti og brenndu smjör. Sælgæti að njóta. Ljósmynd/Hanna Thordarson

Góð kart­öflumús get­ur gert góða máltíð enn betri. Ástríðukokk­ur­inn og leir­lista­kon­an Hanna Thor­d­ar­son er snill­ing­ur í eld­hús­inu og á heiður­inn af þess­ari ómót­stæðilega góðu kart­öflumús sem sú sem þetta skrif­ar prófaði um helg­ina. Þetta er kart­öflumús með par­mesanosti og brenndu smjöri sem bráðnar í munni.

„Þetta er tvist af kart­öflumús­inni henn­ar mömmu. Ég er búin að bæta par­mesanosti við og helli síðan brenndu smjöri yfir.  Skemmti­leg til­breyt­ing að bjóða upp á þessa út­gáfu sem á vel með nán­ast öllu, líka með hátíðarmatn­um,“ seg­ir Hanna með bros á vör.

Hægt er að fylgj­ast með því sem Hanna töfr­ar fram í eld­hús­inu hér.

Ómótstæðilega góð kartöflumús með skemmtilegu tvisti

Vista Prenta

Kart­öflumús með par­mesanosti og brenndu smjöri

  • 1 kg kart­öfl­ur
  • 1–2 msk. smjör
  • 2½ dl heit mjólk (upp að suðu)
  • Salt og hvít­ur pip­ar eft­ir smekk
  • Smá mulið múskat
  • 12 dl par­mesanost­ur, rif­inn fínt
  • Brennt smjör, sjá upp­skrift að neðan

Aðferð:

  1. Setjið kart­öfl­urn­ar í kalt vatn og saltið aðeins og sjóðið, þegar suðan er kom­in upp, lækkið þá hit­ann og sjóðið í u.þ.b. 20 mín­út­ur. 
  2. Þið megið flysja karöfl­urn­ar áður en þið sjóðið þær eða strax eft­ir suðu.
  3. Hitið mjólk í potti, til að spara uppþvott er gott að nota pott sem hægt er að nota fyr­ir kart­öflumús­ina í lok­in.
  4. Pressið kart­öfl­urn­ar heit­ar.
  5. Bætið smjöri út í pott­inn og hrærið sam­an við. 
  6. Bætið síðan við heitri mjólk­inni ásamt rifna par­mesanost­in­um og hrærið sam­an. Best er að nota hræri­vél. Passið að hræra ekki of lengi.
  7. Kryddið eft­ir smekk.
  8. Hönnu finnst ágætt að setja kart­öflumús­ina í lok­in í pott­inn, sem mjólk­in var hituð í, og velgja hana á lág­um hita.
  9. Gerið síðan brennda smjörið, sjá upp­skrift að neðan.

Brennt smjör

  • 30 g smjör
  • 12 skarlottu­lauk­ar, fínt skorn­ir
  • ½1 msk. kapers, smátt saxaðir

Aðferð:

  1. Bræðið smjör í potti ásamt lauk og kapers. 
  2. Það er ágætt að láta smjörið malla á meðal­hita í ró­leg­heit­um. 
  3. Þegar farið er að krauma í því og froða mynd­ast ætti að fara að koma brúnn lit­ur í botn­inn.
  4. Þegar lauk­ur­inn er orðinn vel brúnn er gott að slökkva á hit­an­um.
  5. Rétt áður en kart­öflumús­in er bor­in fram er ágætt að skerpa á hvoru tveggja. 
  6. Setjið kart­öflumús­ina á fat og hellið síðan brennda smjör­inu yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert