Heljarinnar matarveisla í boði Michelin-stjörnukokks

Gleðin var í fyrirrúmi í franska sendiráðsbústaðinum þegar franski stjörnukokkurinn …
Gleðin var í fyrirrúmi í franska sendiráðsbústaðinum þegar franski stjörnukokkurinn bauð upp á stórglæsilegt hlaðborð með allskyns hefðbundinn mat frá Alsace. Samsett mynd/mbl.is/Karítas

Boðið var upp á helj­ar­inn­ar veislu í franska sendi­ráðsbú­staðnum hjá sendi­herra Frakk­lands, Guillaume Baz­ard, á dög­un­um. Veisl­an var hald­in í til­efni þess að franski Michel­in-stjörnu­kokk­ur­innn Thom­as Koe­bel frá Strass­borg kom hingað til lands að kynna hefðbund­inn mat frá héraðinu sínu Alsace .

Koe­bel bauð upp á stór­glæsi­legt hlaðborð með allskyns hefðbund­inn mat frá Alsace eins og pyls­ur, foie-gras, pip­ar­rót­arsósu, sinn­ep, Flammekuche, Choucrou­te og hinn víðfræga Mun­ster osti ásamt vín og lí­kjöra frá héraðinu. Frönsku kræs­ing­arn­ar féllu gest­um mjög vel í geð og hvernig vínið var parað með matn­um kom skemmti­lega á óvart. Mat­ar­gest­irn­ir nutu þess að bragða á þess­um mat og hlusta á Koe­bel segja sög­una bak við rétt­ina.

Thomas Koebel Michelin stjörnukokkur og veitingarnar hans í sendiherrabústað Frakklands.
Thom­as Koe­bel Michel­in stjörnu­kokk­ur og veit­ing­arn­ar hans í sendi­herra­bú­stað Frakk­lands. mbl.is/​Karítas

Mat­ar­gerð og vín frá sér­stöku héraði kynnt

Ástæða þess að Koe­bel kom hingað til lands var að taka þátt í ár­leg­um viðburði franska sendi­ráðsins á Íslandi sem kall­ast Keim­ur. Á hverju ári er mat­ar­gerð og vín frá sér­stöku héraði kynnt til leiks. Í ár var sjón­um beint til Alsace héraðs og þeim dýr­ind­is vín­um og mat­ar­hefðum sem þaðan koma. Koe­bel  er yfir­kokk­ur á Le Rela­is de la Poste í Strass­borg og náði í fyrstu Michel­in-stjörn­una staðar­ins fyr­ir ári síðan.

Í Íslands­heim­sókn­inni heim­sótti hann einnig Hót­el- og mat­væla­skól­ann í Kópa­vogi og kenndi nem­end­um að elda þrjár teg­und­ir af fiski að hætti Alsace búa.  

Halldór Laxness, Ben Boorman frá Berjamó ásamt fríðuföruneyti.
Hall­dór Lax­ness, Ben Boorm­an frá Berja­mó ásamt fríðuföru­neyti. mbl.is/​Karítas
Franski sendiherrann Guillaume Bazard kynnir stjörnukokkinn Thomas Koebel til leiks.
Franski sendi­herr­ann Guillaume Baz­ard kynn­ir stjörnu­kokk­inn Thom­as Koe­bel til leiks. mbl.is/​Karítas
Thomas Koebel Michelin-stjörnukokkur fræðir gesti um það sem í boði …
Thom­as Koe­bel Michel­in-stjörnu­kokk­ur fræðir gesti um það sem í boði var. mbl.is/​Karítas
mbl.is/​Karítas
Alexandre LeBruffe framkvæmdarstjóri Alliance Francaise á Íslandi, Renaud Durville og …
Al­ex­andre LeBruf­fe fram­kvæmd­ar­stjóri Alli­ance Francaise á Íslandi, Renaud Dur­ville og Nolwenn Arlin frá franska sendi­ráðinu. mbl.is/​Karítas
mbl.is/​Karítas
Glæsilegt hlaðborð franskra kræsinga.
Glæsi­legt hlaðborð franskra kræs­inga. mbl.is/​Karítas
Griottines kirsuber í kirsch líkjör.
Griott­ines kirsu­ber í kirsch lí­kjör. mbl.is/​Karítas
Kartöflusalatið passaði afar vel með pylsunum.
Kart­öflu­sal­atið passaði afar vel með pyls­un­um. mbl.is/​Karítas
Boðið var upp á ýmis konar líkjöra með réttunum.
Boðið var upp á ýmis kon­ar lí­kjöra með rétt­un­um. mbl.is/​Karítas
Kirsuberjalíkjörið.
Kirsu­berjalí­kjörið. mbl.is/​Karítas
Bretzel eru þekktar um allan heim og Frakkar gera líka …
Bretzel eru þekkt­ar um all­an heim og Frakk­ar gera líka sín­ar líkt og Þjóðverj­ar. mbl.is/​Karítas
Eirný Sigurðardóttir í góðum félagsskap.
Eir­ný Sig­urðardótt­ir í góðum fé­lags­skap. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert