Finnur Prigge, ungi bakarinn knái og meðlimur í bakaralandsliði Íslands á heiðurinn af uppskriftinni fyrir helgarbaksturinn. Hann býður lesendum upp á dýrðlegt jólabrauð sem ber heitið Christ Stollen og á sér allt aftur til miðalda í Þýskalandi.
„Amma mín, Ríta Prigge Helgason, var frá Kiel í Þýskalandi og saman bökuðum við alltaf Christ Stollen fyrir jólin. Ég á góðar minningar frá þeim tíma og þetta brauð yljar ávallt. Uppskriftin lærði amma frá mömmu sinni og mögulega á uppskriftin enn lengri sögu aftur í tímann í fjölskyldunni hennar,“ segir Finnur.
„Ég hef breytt uppskriftinni smávægilega, til að mynda setti amma ekki marsipan inn í brauðið en við tókum það upp á síðustu árum.“
Upphaflega bakað sem einfalt jólaneyslubrauð
Vert er líka að minnast á það að Christ stollen brauðið, á rætur sínar að rekja til miðalda í Þýskalandi og var upphaflega bakað sem einfalt jólaneyslubrauð með fábrotnu hráefni. Seinna meir var það þróað í ríkulegt jólabrauð með ávöxtum, hnetum og sykruðu ysta lagi, sem átti að tákna Jesúbarnið vafið í klæði.
Sjáið Finn gerir brauðið!
Girnilegt jólabrauð sem lokkar augað.
Ljósmynd/Finnur
Christ Stollen
- 500 g hveiti
- 200 g sykur
- 175 g smjör
- 250 g skyr, hreint
- 125 g kúrínur
- 125 g rúsínur
- 125 g möndlur, hakkaðar
- 40 g súkkat
- 4 tsk. lyftiduft
- 2 egg
- 100 g marsipan
- 1 tsk. sítrónudropar
- 1 tsk. kardimommudropar
- 1 tsk. vanilludropar
- 1 tsk. möndludropar
- 4 dropar bitrir möndludropar
- salt á hnífsoddi
- kardimommuduft á hnífsoddi
- múskat á hnífsoddi
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 175°C hita.
- Setjið hveiti á borð, setjið síðan sykur í miðjuna ásamt eggjum, skyri og dropum.
- Setjið lyftiduft á hveitiröndina ásamt klípum af smjöri.
- Setjið að lokum alla ávextina í miðjuna.
- Blandið þessu saman með því að saxa með hnífi í deigið nokkrum sinnum þannig að allt hráefnið blandist saman. Hnoðið deigið síðan hratt saman og skiptið í tvo hluta.
- Formið í brauð og setjið marsipan rúllu í miðjuna.
- Blandið einu eggi og 50 ml af mjólk saman og penslið yfir brauðin og skerið einn skurð þvert yfir miðjuna.
- Bakið síðan brauðin í 15 mínútur við 170 C° hita og lækkið þá hitann í 150-160 C° og bakað í eina klukkustund í viðbót.
- Penslið með smjöri og sigtið flórsykur yfir þrisvar sinnum á 30 mínútna fresti.
- Geymið brauðin síðan í kæli að lágmarki í eina viku áður en brauðin eru borin fram.