Þegar sykurlöngunin lætur á sér kræla er gott að eiga holla og góða bita í kælinum eða frystinum til grípa í. Hér eru á ferðinni frábærir, auðveldir og hollir bitar sem fullnægja sykur þörfinni þegar hún kallar. Heiðurinn af þessari uppskrift á heilsumarkþjálfinn Kristjana Steingrímsdóttir, alla jafna kölluð Jana, eins og lesendur ættu að þekkja. Hún er með blæti fyrir bitum sem þessum og nýtur þess að grípa í. Einnig er hún iðin við að bjóða góðum vinum upp á bita að njóta.
Bounty-bitar
- ¾ - 1 bolli laktósafrí grísk jógúrt
- ¼ bolli akasíu hunang eða önnur sæta
- 1 tsk. vanilla
- 1 ¼ bolli kókosmjöl
- 1-2 msk. kollagen duft, ef vill
- 100 g dökkt súkkulaði + 1 tsk. kókosolía
Aðferð:
- Hrærið saman grísku jógúrtina, hunangið, vanillu og kollagen vel saman.
- Bætið kókosmjölinu út í og blandið saman, ef ykkur finnst of þunnt bætið þá örlítið meira af kókosmjöli
- Dreifið úr blöndunni á bökunarpappír og frystið í nokkra klukkutíma.
- Þegar molarnir eru frosnir, takið þá út og skerið í litla bita.
- Bræðið súkkulaðið og kókosolíuna saman.
- Hjúpið annaðhvort hvern bita eða dreifið súkkulaðinu yfir molana.
- Jönu finnst fallegt að setja örlítið af auka kókosmjöl ofan á súkkulaðið.
- Kælið eða frystið þar til súkkulaðið harðnar á molunum.
- Geymið í frysti og berið fram þegar ykkur langar í mola eða góða gesti ber að garði.