Gunnar Bragi er mikill mjólkurkálfur

Gunn­ar Bragi Sveins­son ljóstr­ar hér upp skemmti­leg­um staðreynd­um um mat­ar­venj­ur …
Gunn­ar Bragi Sveins­son ljóstr­ar hér upp skemmti­leg­um staðreynd­um um mat­ar­venj­ur sín­ar. Hann hefur einstaklega gaman að því að baka fyrir aðventuna með sínu besta fólki. Samsett mynd

Gunn­ar Bragi Sveins­son ljóstr­ar hér upp skemmti­leg­um staðreynd­um um mat­ar­venj­ur sín­ar. Hann er íhalds­sam­ur þegar kem­ur að mat og legg­ur mik­inn metnað í að velja ís­lenskt hrá­efni þó blund­ar í hon­um ástríða mar­okkósk­um mat og Þrá­inn á Sumac og ÓX er hans upp­á­halds kokk­ur.

Gam­an er að geta þess að Gunn­ar Bragi er mik­ill mjólk­ur­kálf­ur eins og hann seg­ir sjálf­ur frá og sólg­inn í súkkulaði.

„Ég er Skag­f­irðing­ur og ólst upp við mat­inn sem fékkst á bryggj­unni eða í Kaup­fé­lag­inu. Skaga­fjörður er mikið mat­væla­hérað þar sem fisk­ur, kjöt og skyr var var oft­ast á borðum þegar ég var ung­ur ásamt mjólk­urglasi. Græn­meti var ekki mikið að þvæl­ast fyr­ir okk­ur bræðrun­um og fjög­ur krydd dugðu, salt og pip­ar, Köd og grill kryddery og svo auðvitað Arom­atið, seg­ir Gunn­ar Bragi hnytt­inn þegar hann er spurður út í mat­ar­venj­ur sín­ar.

Sleppi mér laus­um þegar ég er einn heima

„Nú er búið að flækja þetta allt tölu­vert meira sem er vit­an­lega til bóta. Ég get verið vanafast­ur og lenti eitt sinn í því í lúg­unni á BSÍ að vera boðinn starfs­manna­afslátt­ur. Ég tók því þannig að ég ætti að færa mig annað og lúg­an lokaði í fram­hald­inu. Hvort það teng­ist veit ég ekki,“ seg­ir hann og glott­ir.

„Ég held að ég sé frek­ar íhalds­sam­ur á mat þótt ég hafi lag­ast mikið síðustu ár. Yf­ir­leitt finnst mér þessi klass­íski ís­lenski mat­ur best­ur og þegar ég er einn heima þá sleppi ég mér laus­um í bjúg­um, steikt­um fiski, hangi­kjöti, mjólk­urgraut svo fátt sé nefnt,“ seg­ir Gunn­ar Bragi og bæt­ir við að hann hvetji fólk til velja ís­lensk mat­væli alla daga. 

Bak­ar um tutt­ugu sort­ir af smá­kök­um

„Mar­okkósk­ur mat­ur er í upp­á­haldi þegar að fram­andi mat kem­ur þar sem krydd­in leika lyk­il­hlut­verk ásamt ís­lensku græn­meti og lamba­kjöti. Mér finnst gam­an að elda og prófa eitt­hvað nýtt þótt ég viður­kenni að standa eig­in­kon­unni langt að baki þegar að elda­mennsku kem­ur. Ég vil þó meina að ég sé betri bak­ari en kokk­ur. Ég tek að mér að baka um tutt­ugu sort­ir af smá­kök­um fyr­ir jól­in, svo mikið að heim­il­is­fólkið kvart­ar að það dreymi hræri­vél­ar og hræri­véla­hljóð á næt­urn­ar,“ seg­ir Gunn­ar Bragi sposk­ur á svip.

Gunnar Bragi bakar um 20 sortir af jólasmákökum.
Gunn­ar Bragi bak­ar um 20 sort­ir af jóla­smá­kök­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvað færðu þér í morg­un­mat?

„Yf­ir­leitt bara kaffi en ég hef verið að reyna að venja mig á holl­ari mat­ar­venj­ur í seinni tíð og fæ mér yf­ir­leitt hafra­graut með ban­ana. Hef yf­ir­leitt ekki mikla mat­ar­lyst fyrr en um há­degið. Mín skýr­ing á þessu er að ég held mér liggi yf­ir­leitt svo mikið á að kom­ast út í dag­inn og mér líður best þegar það er mikið að gera og at.“

„Ég er mjög nask­ur að þefa uppi súkkulaðið“ 

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Milli­mál eru mikið er vanda­mál. Ég er al­gjör köku- og nammig­rís og því miður þá rat­ar það oft­ast ofan í mig ef það er á boðstól­um eða til í skáp­un­um heima. Sunna kon­an mín reyn­ir að fela þetta fyr­ir mér en ég er mjög nask­ur að þefa uppi súkkulaðið, henni til mik­ill­ar armæðu. Ég hef þó verið að reyna að bæta mig hér eins og ann­ars staðar og fá mér Hleðslu eða flat­brauð í staðinn. Það er svo hægt að stilla klukku eft­ir mér því ég ólst upp við kvöld­kaffi og fæ mér alla jafna kvöld­kaffi um klukk­an 21 á kvöld­in.“

 Finnst þér ómiss­andi að borða há­deg­is­verð?

„Nei, ég gleymi hon­um oft. Skil svo ekk­ert í því þegar ork­una vant­ar en bjarga því yf­ir­leitt með súkkulaðistykki eða pylsu.“

Hvað áttu alltaf til í ís­skápn­um?

„Íslenskt smjör, mjólk, nokkr­ar teg­und­ir af ost­um úr Búðar­dal og Skagaf­irði. Feyk­ir er í upp­á­haldi, Hleðslu próteindrykk eða skyr og svo ávaxta­safa.“

Flat­brauðið úr Sumac bók­inni upp­á­halds á grillið

Upp­á­halds­grill­mat­ur­inn þinn?

„Ég á góðan skara af litl­um barna­börn­um og þessa dag­ana rat­ar oft­ast ham­borg­ari á grillið þegar þau koma við svo all­ir fari sadd­ir og sæl­ir heim. Allt kjöt og flat­brauðið eldað upp úr upp­skrift frá veit­ingastaðnum Sumac er hins veg­ar í upp­á­haldi af grill­inu. Þrá­inn kokk­ur og eig­andi á Sumac gaf út frá­bæra mat­reiðslu­bók sem geym­ir súr­deigs­flat­brauð af mat­seðlin­um þeirra. Mæli mikið með bók­inni sem ég fékk að gjöf frá strák­un­um mín­um. Hún er mikið upp­á­hald á heim­il­inu þegar á að elda eitt­hvað gott handa gest­um.“

Marokkóskur matur er í uppáhaldi þegar að framandi mat hjá …
Mar­okkósk­ur mat­ur er í upp­á­haldi þegar að fram­andi mat hjá Gunn­ari Braga þar sem krydd­in leika lyk­il­hlut­verk ásamt ís­lensku græn­meti og lamba­kjöti. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvað viltu á pítsuna þína?

„Ég er alæta á allt sem fer ofan á pítsu nema ég vil alls ekki fisk þar. Sum­ir eru á móti an­an­as en ég skil ekki þetta með fisk­inn. Fyrsta val hjá mér er pepp­eróní, ólíf­ur, ost­ar t.d. pip­arost­ur, döðlur, svepp­ir og paprika.“

Færð þú þér pylsu með öllu?

„Nei, fer í Borgar­pyls­ur í Skeif­unni og fæ mér eina með öllu nema hrá­um. Mig grun­ar að ég sé þar held­ur oft. Kon­an mín hló mikið um dag­inn þegar mér var heilsað mjög vina­lega þegar við kom­um þar við meðan við vor­um að út­rétta, þær sögðu henni að ég væri að koma ann­an eða þriðja dag­inn í röð.“

Þegar þú ætl­ar að gera vel við þig í mat og drykk og vel­ur veit­ingastað til að fara á hvert ferðu?

Sumac veit­ingastaður­inn eins og áður var nefnt er sann­ar­lega í upp­á­haldi, ít­alski veit­ingastaður­inn Grazie á Hverf­is­götu er líka góður og Just Wing­in-it á Snorra­braut. Væng­ir þar og Li­verpool leik­ur klikka ekki. Þegar ég er á Krókn­um er Sauðá í upp­á­haldi.“

Alltaf á leiðinni á Peter Luger Steak Hou­se

Er ein­hver veit­ingastaður úti í heimi sem er á list­an­um yfir þá staði sem þú verður að heim­sækja, sem er á„ bucketlist­an­um“?

„Ég hef alltaf verið á leiðinni á Peter Luger Steak Hou­se í New York. Von­andi næ ég ein­hvern tíma að fara.“

Upp­á­haldskokk­ur­inn þinn?

„Þrá­inn Freyr Vig­fús­son á Sumac og Óx.“

Upp­á­halds­drykk­ur­inn þinn?

„Mjólk. Gæti ekki án henn­ar verið, ég er mik­ill mjólk­ur­kálf­ur.“

Ertu góður kokk­ur?

„Ekki segi ég það en þetta bjarg­ast yf­ir­leitt. Ég treysti líka mikið á upp­skrift­ir frá Evu Lauf­ey, hef átt í mjög góðu sam­starfi við upp­skrift­irn­ar henn­ar, en Evu Lauf­ey þekki ég ekk­ert.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert