Kartöflusalatið sem sló í gegn hjá Michelin-stjörnukokki

Thomas Koebel Michelin-stjörnukokkur fór á kostum í franska sendiráðsbústaðnum með …
Thomas Koebel Michelin-stjörnukokkur fór á kostum í franska sendiráðsbústaðnum með kræsingarnar sínar. mbl.is/Karítas

Boðið var upp á glæsi­lega mat­ar­veislu í franska sendi­ráðsbú­staðnum hjá sendi­herra Frakk­lands, Guillaume Baz­ard, á dög­un­um. Veisl­an var hald­in í til­efni þess að franski Michel­in-stjörnu­kokk­ur­innn Thom­as Koe­bel frá Strass­borg kom hingað til lands að kynna hefðbund­inn mat frá héraðinu sínu Alsace.

„Mig hef­ur langað til að verða kokk­ur al­veg síðan að ég var lít­ill krakki,” seg­ir Thom­as þegar hann er spurður um hvenær ástríða hans á mat­ar­gerð hófst. „Pabbi minn eldaði mjög oft heima og ég horfði á hann elda og hjálpaði hon­um svo við elda­mennsk­una.

Ég hóf fer­il minn hjá mörg­um mis­mun­andi veit­inga­stöðum í Alsace-héraði og komst þannig í kynni við margt fólk, sköp­un­ar­gleðina og vinnu­sem­ina.

Kartöflusalatið á milli kræsinga.
Kart­öflu­sal­atið á milli kræs­inga. mbl.is/​Karítas

Eft­ir nokk­ur ár hlotnaðist mér tæki­færi að taka við staðnum Le Rela­is de la Poste sem er fal­legt hót­el og veit­ingastaður í útjaðri Strass­borg­ar. Eft­ir nokk­ur ár af ómældri vinnu, feng­um við Michel­in-stjörn­una árið 2023. “

Michel­in-stjarn­an varð að húðflúri

Thom­as er með húðflúr af Michel­in-stjörn­unni á fram­hand­leggn­um sín­um og seg­ir hlæj­andi: „Ég lét húðflúra all­an hand­legg­inn fyr­ir mörg­um árum en skildi eft­ir pláss hér fremst fyr­ir Michel­in-stjörn­una. Hún var mark­miðið.”

Aðspurður um hefðbundna rétti frá Alsace-héraði sem ligg­ur til aust­urs í Frakklandi ná­lægt Þýskalandi seg­ir hann að fræg­ustu rétt­irn­ir þaðan séu ef­laust Choucrou­te, sem er heitt súr­kál með ým­iss kon­ar kjöt­meti, Tarte flambée eða flammkuche sem er þunn baka með sýrðum rjóma og bei­koni, kouglof sem er eins kon­ar krydduð kaka, og baeka­of­fe sem er kássa gerð úr kjöti og rót­argræn­meti soðnu upp úr hvít­víni.

„Allt eru þetta fræg­ir hefðbundn­ir rétt­ir með mikla sér­stöðu,” seg­ir Thom­as. 

„Ég mæli með því að ferðast til Alsace. Héraðið er ein­stak­lega ríkt af menn­ing­ar­arfi og mat­ar­menn­ingu. Það er svo margt fal­legt að sjá þar. Ég mæli með að sjá höll­ina í Haut Koen­ings­bourg, dóm­kirkj­una í Strass­borg og jóla­markaðinn dá­sam­lega í Strass­borg. Svo er hægt að fara í frá­bær­ar göngu­ferðir, til dæm­is frægu vín­leiðina eða Rou­te des vins, Kayses­berg, Col­m­ar og auðvitað að kynna sér mat­ar­hefðir hins hefðbundna Winstub sem er vín­stofa á Alsace-máli,“ seg­ir Thom­as með bros á vör.

Le Relais de la Poste, einstaklega fallegt hótel og veitingastaður …
Le Rela­is de la Poste, ein­stak­lega fal­legt hót­el og veit­ingastaður í útjaðri Strass­borg­ar. Ljós­mynd/​Aðsend

Thom­as er mjög ánægður að koma til Íslands en þetta er í fyrsta sinn sem hann kem­ur hingað. Hann hef­ur fylgst grannt með nor­ræni mat­ar­gerð und­an­far­in ár.

„Mat­ar­gerðin í Reykja­vík hef­ur komið mér skemmti­lega á óvart. Hefðbundn­ir rétt­ir eru mjög bragðmikl­ir og sjáv­ar­fangið er stór­kost­lega ferskt. Ég var mjög hrif­inn af því hvað það er mikið af mis­mun­andi veit­inga­stöðum í Reykja­vík.“

Þegar hann er spurður hvort mark­mið hans sé að ná í fleiri Michel­in-stjörn­ur fyr­ir staðinn sinn seg­ist hann bara vilja halda í þessa fyrstu stjörnu sem sé heil­mik­il vinna. „Það er al­veg nóg að vera með eina stjörnu og passa upp á að halda henni. Ég þarf líka að eiga tíma með fjöl­skyld­unni minni,” seg­ir hann og bros­ir.

Að lok­um var Thom­as beðinn um að deila klass­ísku kart­öflu­sal­ati frá Alsace sem gest­ir sendi­ráðsins fengu að smakka í veisl­unni í sendi­ráðsbú­staðnum franska á dög­un­um og sló í gegn. Sal­atið kall­ast Grüm­ber­sal­at og Thom­as var til í að deila upp­skrift­inni með les­end­um Mat­ar­vefs­ins.

Vert er að nefna að Mel­for edik er ekki fá­an­legt hér á landi en um er að ræða sér­stakt edik frá Alsace með hun­ang­skeim. Í staðinn er hægt að nota epla­e­dik eða hvít­vín­se­dik.

Byggingarstíllinn er mjög fallegur í Strassborg.
Bygg­ing­ar­stíll­inn er mjög fal­leg­ur í Strass­borg. Ljós­mynd/​Aðsend

Kartöflusalatið sem sló í gegn hjá Michelin-stjörnukokki

Vista Prenta

Grüm­ber­sal­at

  • 500 g kart­öfl­ur
  • 1 stór lauk­ur, smátt skor­inn
  • 30 g súr gúrka, smátt skor­in
  • 50 g, fersk stein­selja, söxuð
  • 1 msk. Dijon sinn­ep
  • 10 cl Mel­for edik
  • 15 cl olía
  • 15 cl heit­ur kjúk­lingakraft­ur

Aðferð:

  1. Sjóðið kart­öfl­urn­ar í vatni. Þegar þær eru soðnar og enn heit­ar, skrælið þær og skerið í litla fern­inga. Blandið öllu hinu við og bætið við bæði salti og pip­ar.
  2. Þetta kart­öflu­sal­at er borið fram volgt og er yf­ir­leitt borið fram með Knack-pyls­um frá Strass­borg en svipaðar pyls­ur er til dæm­is hægt að fá í Pylsu­meist­ar­an­um.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert