Elskar föðurhlutverkið og sér alltaf um matinn á heimilinu

Ragna Þór Ingólfsson formaður VR ljóstr­ar upp skemmti­leg­um staðreynd­um um …
Ragna Þór Ingólfsson formaður VR ljóstr­ar upp skemmti­leg­um staðreynd­um um mat­ar­venj­ur sín­ar og ástríðu sína í eldhúsinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son formaður VR og odd­viti fyr­ir Flokk fólks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður ljóstr­ar upp skemmti­leg­um staðreynd­um um mat­ar­venj­ur sín­ar. Hann veit fátt betra en að dunda sér í eld­hús­inu og sér ávallt um mat­inn á heim­il­inu.

Ragn­ar er 51 árs gam­all, fimm barna faðir og það hlut­verk er í for­grunni. Fyr­ir utan áhuga­mál­in í eld­hús­inu spil­ar hann í hljóm­sveit­um og stund­ar hreyf­ingu og úti­vist.

„Ég er að vinna að út­gáfu hljóm­plötu og var ný­lega að skrá mig í þríþraut og fylgja kon­unni minni, Guðbjörgu Ing­unni Magnús­dótt­ur, í þeirri veg­ferð. Þar stefni ég á að spreyta mig á fyrsta hálfa járn­karl­in­um næsta haust. Ég lifi fyr­ir fjöl­skyldu og vini og veit fátt betra en sam­veru­stund­ir með þeim. Elstu strák­arn­ir okk­ar eru for­falln­ir af bíla­dellu og þyk­ist ég vera orðinn nokkuð liðtæk­ur í bílaviðgerðum. Svo er ég dan­spabbi líka en yngsta dótt­ir okk­ar er á fullu í sam­kvæm­is­döns­um. Ég elska föður­hlut­verkið,“ seg­ir Ragn­ar meyr.

Sér alltaf um mat­inn á heim­il­inu

Mat­ar­ástríðan er til staðar hjá Ragn­ari og eld­húsið er staður­inn sem hann nýt­ur þess að slaka á. „Ég sé alltaf um mat­inn á heim­il­inu. Ítalsk­ur mat­ur er í sér­stöku upp­á­haldi. Ég veit fátt betra og meira slak­andi en að dunda mér í eld­hús­inu, hlusta á tónlist, og und­ir­búa kvöld­mat eða mat­ar­boð með góðum vin­um og fjöl­skyldu. Næ­stelsti son­ur okk­ar smitaðist af þess­ari ástríðu fyr­ir eld­hús­inu og erum við nú oft­ast tveir að dunda okk­ur í mat­ar­gerð. Hann tek­ur svo al­veg yfir ef ég er að vinna fram eft­ir eða á kvöld­in. Mér finnst al­veg jafn slak­andi að fara í búð og versla, tek mér oft góðan tíma í að fara búðina og ganga fram og til baka, þvera og endi­langa, eins óskipu­lega og hugs­ast get­ur. Veit ekki af hverju en þessu fylg­ir ein­hver óskilj­an­leg ró að vera í eld­hús­inu við mat­ar­gerð eða þrif eða vera inn­an um fólk sem er að versla,“ seg­ir Ragn­ar og bros­ir.

Heimilishundurinn David Bowie er ávallt glaður í eldhúsinu með Ragnari.
Heim­il­is­hund­ur­inn Dav­id Bowie er ávallt glaður í eld­hús­inu með Ragn­ari. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Ragn­ar gaf sér tíma til að svara nokkr­um spurn­ing­um um mat­ar­venj­ur þrátt fyr­ir mikl­ar ann­ir í kosn­inga­bar­átt­unni en kjör­dag­ur nálg­ast óðfluga. Ein­ung­is þrír dag­ar eru til kosn­inga.

Hvað færðu þér í morg­un­mat?

„Ég fæ mér yf­ir­leitt aldrei morg­un­mat en sjóðandi heitt svart kaffi er ómiss­andi á hverj­um morgni.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Ég borða ekki á milli mála. Spara mig fyr­ir kvöld­mat­inn.“

Hepp­inn að vera á vinnustað með frá­bært mötu­neyti

Finnst þér ómiss­andi að borða há­deg­is­verð? 

„Já, ég er svo hepp­inn að vera á vinnustað með frá­bært mötu­neyti, hollt og alltaf gott. Um helg­ar erum við fjöl­skyld­an ávallt með há­deg­is­bröns, ann­an dag­inn.“

Hvað áttu alltaf til í ís­skápn­um?

„Ost, egg, ávexti og smjör.“

Upp­á­halds­grill­mat­ur­inn þinn?

„Það mun vera lambið.“

Hvað viltu á pítsuna þína?

„Pepp­eróní, sveppi og rjóma­ost. Eða bara hvað sem er.“

Færð þú þér pylsu með öllu?

„Já, held­ur bet­ur!“

Þegar þú ætl­ar að gera vel við þig í mat og drykk og vel­ur veit­ingastað til að fara á, hvert ferðu? 

„Við för­um ekki oft út að borða en þá er upp­á­haldsstaður­inn okk­ar Bombay Bas­ar.“

Er ein­hver veit­ingastaður úti í heimi sem er á list­an­um yfir þá staði sem þú verður að heim­sækja, sem er á „bucket-list­an­um“?

„Nei, eng­inn sem ég man eft­ir, við reyn­um yf­ir­leitt að finna óvenju­lega og litla staði þegar við för­um er­lend­is.“

Son­ur­inn upp­á­haldskokk­ur­inn

Upp­á­haldskokk­ur­inn þinn? 

„Daní­el Dúi, son­ur minn.“

Upp­á­halds­drykk­ur­inn þinn?

„Ísköld kók í dós.“

Ertu góður kokk­ur?

„Af fjöl­skyld­unni að dæma er ég ekki sá versti. Þegar börn­in hringja dag­lega til að spyrja mig hvað sé í mat­inn í kvöld, í stað þess að láta vita að þau borði ekki, er nægi­leg­ur mæli­kv­arði fyr­ir mig.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert