Einföld sósa með hamborgarhrygg

Einföld sósa með hamborgarhryggnum sem getur ekki klikkað.
Einföld sósa með hamborgarhryggnum sem getur ekki klikkað. mbl.is/Karítas

Sós­urn­ar sem vald­ar eru með hátíðarmatn­um skipta sköp­un þegar kem­ur að heild­ar­út­komu máltíðar­inn­ar. Ham­borg­ar­hrygg­ur er afar vin­sæll á jól­un­um hjá mörg­um lands­mönn­um og til að hrygg­ur­inn nái að töfra bragðlauk­ana alla leið skipt­ir sós­an sköp­un. Rún­ar Gísla­son, mat­reiðslumaður hjá Kokk­un­um og eig­andi Spírunn­ar, er snill­ing­ur þegar kem­ur að sósu­gerð og veit ná­kvæm­lega hvað virk­ar með ham­borg­ar­hryggn­um.

„Þessi sósa er ein­föld og all­ir geta lagað þessa dýrð. Þessi sósa get­ur ekki klikkað,“ seg­ir Rún­ar með bros á vör og bæt­ir við að hann fái ófá sím­töl­in um hátíðirn­ar þar sem hann er beðinn um að fá upp­skrift að sós­um með hátíðarmatn­um.

Einföld sósa með hamborgarhrygg

Vista Prenta

Sós­an með ham­borg­ar­hryggn­um

  • 1/​2 dl hveiti
  • 50 g smjör
  • 1 l soð af ham­borg­ar­hrygg
  • 2 dl rjómi
  • 1 dropi sósulit­ur eft­ir smekk
  • Kjöt­kraft­ur eft­ir smekk
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið í potti og setjið síðan hveitið út í og eldið þar til bland­an er orðin gull­in­brún.
  2. Blandið þá soðinu út í og látið sjóða upp úr því.
  3. Þegar sós­an er búin að sjóða í um 20 mín­út­ur bætið þá rjóm­an­um út í og látið sjóða í um 5-8 mín­út­ur.
  4. Smakkið sós­una til með salti og pip­ar og bætið sósulit út í.
  5. Sum­ir vilja smá rauðvín út í og þá er það um það bil 1-2 dl og sett­ir út í þegar soðið er sett út í.
  6. Þetta er of­ur­ein­föld aðferð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert