Sjáland í Garðabæ þykir vera er einn rómaðasti veislu- og viðburðastaður landsins og stendur við sjávarsíðuna í bænum með stórfenglegu útsýni. Frá því að fjölskyldan í Múlakaffi tók við rekstrinum fyrr á árinu hefur hann gengið í endurnýjun lífdaga með fjölbreyttri viðburðadagskrá og glæsilegum veitingum í föstu og fljótandi formi.
Í ár ætlar Múlakaffi, í fyrsta skipti, að standa fyrir glæsilegri skötuveislu í Sjálandi á Þorláksmessu. „Skötuveislan okkar í Hallarmúlanum er náttúrulega hefð sem allir þekkja en í ár langaði okkur til að nýta þessa glæsilegu aðstöðu í Sjálandi og halda öðruvísi skötuveislu þar sem gestir geta notið bæði glæsilegra veitinga og skemmtiatriða,“ segir Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Múlakaffis.
Það er landsliðið í veisluþjónustu undir stjórn listakokksins Eyþórs Rúnarssonar sem sér um veitingarnar í skötuveislunni. Nýverið bættist fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins, Ísak Aron Jóhannsson, í veisluþjónustuteymið og hefur hann komið með ferska strauma í veitingaframboðið hjá Múlakaffi. Það er því óhætt að gera ráð fyrir skötuveislu af allra bestu gerð.
„Skatan er að sjálfsögðu í aðalhlutverki og lofa matreiðslumeistarar Múlakaffi alvöru kæsingu í ár. Mörfeitin og hnoðmörinn verða á sínum stað ásamt soðnu rófunum og kartöflunum. Og fyrir þá sem eru ekki komnir á skötuvagninn verður hátíðarplokkfiskur og soðinn saltfiskur. En það er ekki allt, glæsilegir forréttir og eftirréttir toppa skötuveisluna. Þar má finna ýmiss konar bragðbætta síld ásamt graflaxi og reyksoðinni bleikju. Rúsínan í pylsuendanum er svo Ris al la Mande ásamt gómsætum kökum og rjóma,“ segir Guðríður með bros á vör.
Það er svo hinn eini sanni Mick Jagger, Björn Stefánsson, sem mun skemmta veislugestum af sinni alkunnu snilld.
Eins og áður sagði fer skötuveislan fram á Þorláksmessu og einungis er hægt að bóka 6 og 10 manna borð. Tvær tímasetningar verða í boði, klukkan 11.00 og klukkan 14.00 og hafa veislugestir því rúman tíma til að njóta og gleðjast.
Borðabókanir fara fram í gegnum vef Dineout. Um takmarkað sætaframboð er að ræða og því ljóst að færri komast að en vilja.