„Fékk innblásturinn frá gamla, góða Bismark-brjóstsykrinum“

Hekla Björk Guðmundsdóttir listakona og hönnuður er með nýja jólalínu …
Hekla Björk Guðmundsdóttir listakona og hönnuður er með nýja jólalínu sem ber heitið Rendur. Samsett mynd

Nýja jóla­lín­an frá Heklu Björk Guðmunds­dótt­ur lista­konu og hönnuði prýðir jóla­lit­ina, hvíta og rauða, og ber heitið Rend­ur.

Hönn­un henn­ar und­ir merk­inu Heklaislandia hef­ur notið mik­illa vin­sælda og er löngu orðin þekkt hér á landi og víðar. Fyrstu vör­urn­ar komu árið 1996 og síðan þá hef­ur bæst jafnt og þétt við fal­lega hönn­un Heklu, sem Íslend­ing­ar hafa fengið að njóta allt árið um kring. Einnig hafa vör­ur henn­ar notið mik­illa vin­sælda hjá ferðamönn­um sem koma hingað til lands enda sæk­ir Hekla inn­blást­ur sinn í það sem er tákn­rænt fyr­ir Ísland. Hún sæk­ir inn­blást­ur í villta flóru, dýra­líf og nátt­úru Íslands sem skil­ar sér vel í hönn­un henn­ar fyr­ir hverja árstíð og líka þegar kem­ur að jól­un­um.

Inn­blástur­inn fyr­ir nýju jóla­lín­una mína, „Rend­ur“, fékk ég frá gamla góða Bis­mark-brjóstsykr­in­um sem all­ir elska á jól­un­um. Þegar ég rifja upp gaml­ar minn­ing­ar um jól­in úr æsku minni þá kem­ur Bis­mark-brjóstsyk­ur­inn ávallt sterk­ur inn.“ seg­ir Hekla dreym­in á svip.

Bismark-brjóstsykurinn á heiðurinn af innblæstrinum að þessu sinni.
Bis­mark-brjóstsyk­ur­inn á heiður­inn af inn­blæstr­in­um að þessu sinni. Ljós­mynd/​Aðsend

„Fal­lega rönd­ótt­ur hvít­ur og rauður eru hátíðar­lit­irn­ir og brjóstsyk­ur­inn er ein­stak­lega góður á bragðið. Fyrstu drög­in að bis­mark-lín­unni, rend­ur, voru blý­antsteikn­ing­ar af brjóstsykr­in­um, ein­um stök­um eða mörg­um sam­an en þróuðust svo í að verða að ein­föld­um lín­um sem gefa skír­skot­un í lín­urn­ar/​rend­urn­ar í brjóstsykr­in­um. Í fyrstu átti þetta bara að vera einn lit­ur, Bis­mark aðallit­ur­inn, hvít­ur með rauðum rönd­um en í miðju ferl­inu bætt­ist við rauður aðallit­ur með hvít­um rönd­um og síðan svart­ur með hvít­um rönd­um. Hann er til að mynda sér­stak­lega flott­ur á gaml­árs­kvöld sem og aðra daga allt árið um kring, en það er hugs­un­in með jóla­lín­una í ár að það sé hægt að nota hana allt árið við öll til­efni.“

Hvítu og rauðu litirnir eru ávallt jólalegir og passa vel …
Hvítu og rauðu lit­irn­ir eru ávallt jóla­leg­ir og passa vel á jóla­hátíðar­borðið. Ljós­mynd/​Aðsend

Gam­an að blanda sam­an nýj­um og göml­um týp­um

Hekla hef­ur gert fjöl­marg­ar jóla­lín­ur og það skemmti­lega við þær að það er hægt að flétta þeim sam­an. „Það er gam­an að geta blandað öll­um lit­um og týp­um, göml­um sem nýj­um, sam­an yfir hátíðirn­ar. Þrátt fyr­ir að rauður sé ávallt aðallit­ur jól­anna þá er ég alltaf til í að breyta og hef því notað ýmsa liti í jóla­lín­urn­ar okk­ar í gegn­um árin,“ seg­ir Hekla með bros á vör.

Hekla seg­ir að það sé erfitt að velja ein­hverja eina jóla­línu sem upp­á­halds­línu. All­ar eigi þær stað í hjarta henn­ar og teng­ingu við góðar minn­ing­ar. „Upp­á­halds­lín­an er ekki ein held­ur marg­ar, kannski bara all­ar. „Tré“ er smá upp­á­halds,það er göm­ul og góð lína sem væri gam­an að koma með aft­ur.“

Rendurnar njóta sín vel á hátíðarborðinu og rauði liturinn kemur …
Rend­urn­ar njóta sín vel á hátíðar­borðinu og rauði lit­ur­inn kem­ur ávallt vel út með hvítu. Ljós­mynd/​Aðsend

Aðspurð seg­ir Hekla að mest seldu lín­urn­ar gegn­um árin séu „Gleðileg jól“ sem erþjóðleg og jóla­leg og jafn­framt fyrsta lín­an. Síðan er það „Jóla­húfa“, þúfa sem er ávallt jafn vin­sæl enda jólak­ind­iní aðal­hlut­verki,“ seg­ir Hekla og bæt­ir við að hún sé afar þakk­lát fyr­ir þær frá­bæru viðtök­ur sem jóla­lín­urn­ar hafa fengið gegn­um árin.

Viskastykki sem passar vel í jólaeldhúsið.
Viska­stykki sem pass­ar vel í jóla­eld­húsið. Ljós­mynd/​Aðsend
Svart og hvítt steinliggur um áramótin. Kertin koma vel út …
Svart og hvítt stein­ligg­ur um ára­mót­in. Kert­in koma vel út og eru fal­lega hönnuð. Ljós­mynd/​Aðsend
Jólakötturinn hennar Heklu er ómissandi á hátíðunum og passar vel …
Jóla­kött­ur­inn henn­ar Heklu er ómiss­andi á hátíðunum og pass­ar vel með nýju jóla­lín­unni. Ljós­mynd/​Aðsend
Rauði liturinn í forgrunni hér og hvítar rendur renna í …
Rauði lit­ur­inn í for­grunni hér og hvít­ar rend­ur renna í gegn. Ljós­mynd/​Aðsend
Fyrsta jólalína Heklu ber hetið Gleðileg jól og naut gríðarlegra …
Fyrsta jóla­lína Heklu ber hetið Gleðileg jól og naut gríðarlegra vin­sælda. Ljós­mynd/​Aðsend
Jólahúfa, sem er á íslensku kindinni er önnur jólalína sem …
Jóla­húfa, sem er á ís­lensku kind­inni er önn­ur jóla­lína sem Heklu þykir mjög vænt um. Ljós­mynd/​Aðsend
Íslensku dýrin fá að skreyta tréð hjá Heklu.
Íslensku dýr­in fá að skreyta tréð hjá Heklu. Ljós­mynd/​Aðsend
Rendurnar renna líkt lækjarsprænur á fallegan hátt.
Rend­urn­ar renna líkt lækj­ar­spræn­ur á fal­leg­an hátt. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert