Íslenska kokkalandsliðið færir sig yfir í landeldi

Landeldisfyrirtækið GeoSalmo og Íslenska kokkalandsliðið hafa skrifað undir samstarfssamning til …
Landeldisfyrirtækið GeoSalmo og Íslenska kokkalandsliðið hafa skrifað undir samstarfssamning til átta ára. Jens Þórðarson framkvæmdastjóri GeoSalmo og Þórir Erlingsson framkvæmdastjóri Íslenska kokkalandsliðsins með landsliðinu. Ljósmynd/Aðsend

Landeldisfyrirtækið GeoSalmo og íslenska kokkalandsliðið hafa skrifað undir samstarfssamning. Meginmarkmiðið með honum er að styrkja starf beggja aðila með þróun á hágæðavörum úr laxi framleiddum úr landeldi á Íslandi.

Matreiðslumenn kokkalandsliðsins munu koma að vöruþróun og markaðsstarfi GeoSalmo frá upphafi og fyrirtækið verður á sama tíma einn af aðalbakhjörlum landsliðsins að því er fram kemur í tilkynningu frá Geosalmo og Íslenska kokkalandsliðinu.

„Við erum afar stolt af því að hefja þetta samstarf við kokkalandsliðið. Að fá suma af fremstu matreiðslumönnum landsins til liðs við okkur gefur okkur einstakt tækifæri til að þróa hágæða landeldislax sem uppfyllir ströngustu kröfur og væntingar – bæði hér heima og á alþjóðlegum mörkuðum,“ er haft eftir Jens Þórðarsyni framkvæmdastjóra GeoSalmo.

„Þetta samstarf, sem byggir á sameiginlegum metnaði fyrir gæðum og nýsköpun, er mikilvægur hluti af okkar vegferð og vöruþróun. Með aðkomu kokkalandsliðsins tryggjum við að við nýtum tækifærið til fullnustu og að okkur takist að skapa vöru sem á heima á bestu veitingastöðum heims.“

Þórir Erlingsson og Jens Þórðarsyni framkvæmdastjóra GeoSalmo undirrita samninginn sem …
Þórir Erlingsson og Jens Þórðarsyni framkvæmdastjóra GeoSalmo undirrita samninginn sem er tímamótasamningur fyrir landsliðið en hann er sá lengsti sem undirritaður hefur verið. Ljósmynd/Aðsend

Passa algjörlega við okkar markmið

„Við hlökkum mikið til samstarfsins og að fá að koma að vöruþróun GeoSalmo á næstu árum.Hugmyndir GeoSalmo um uppbyggingu á landeldi og hvernig nýta skuli allar mögulegar afurðir úr framleiðslunni passa algjörlega við okkar markmið um nýtingu hráefnis,“ segir Þórir Erlingsson framkvæmdastjóri íslenska kokkalandsliðsins.

„Kokkalandsliðið hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem eitt af bestu landsliðum heimsins og stór hluti af þessum árangri er að við horfum langt fram í tímann eins og við gerum með þessum samningi við GeoSalmo.“

Stefnir að því að vera leiðandi í landeldi á Íslandi

GeoSalmo áformar að reisa í nokkrum áföngum allt að 33.000 tonna laxeldisstöð á landi við Þorlákshöfn. Fyrirtækið stefnir að því að verða leiðandi í landeldi á Íslandi með áherslu á að starfsemi þess sé í sátt við umhverfi og samfélag.

Fyrirtækið hefur lokið umhverfismati, tryggt sér langtíma raforkusamning við Orku náttúrunnar og lokið öðrum undirbúningi sem gert hefur því kleift að hefja framkvæmdir.

Skipað hæfileikaríkustu kokkum landsins

Íslenska kokkalandsliðið er skipað hæfileikaríkustu kokkum landsins. Markmið liðsins er að vera sterk eining sem getur keppt við bestu kokka heims.

Kokkalandsliðið ætlar sér að vera leiðandi kraftur í að styrkja faglega matreiðslu, auka áhuga ungmenna á matreiðslu og vera fyrirmynd í íslenskri matarhefð. Allir meðlimir landsliðsins eru reyndir fagmenn.

Nýr samstarfssamningur undirritaður til 8 ára.
Nýr samstarfssamningur undirritaður til 8 ára. Ljósmynd/Aðsend
Landsliðsbúninngurinn.
Landsliðsbúninngurinn. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert