Jólagjafalisti sælkerans sem elskar unað fyrir augu og munn

Sælkerinn kann að njóta alls þess sem kemur bragðlaukunum á …
Sælkerinn kann að njóta alls þess sem kemur bragðlaukunum á flug og lætur töfrana gerast í bragðheimunum. Samsett mynd

Sæl­ker­inn hef­ur unað af jóla­gjöf sem gleður bæði augu og munn. Hann kann að njóta alls þess sem kem­ur bragðlauk­un­um á flug og læt­ur töfr­ana ger­ast í bragðheim­un­um. Fjöl­marg­ir veit­ingastaðir á land­inu öllu bjóða upp á gjafa­bréf sem er skemmti­leg gjöf fyr­ir þá sem elska að fara út að borða og láta dekra við sig í mat og drykk.

Síðan eru það sæl­kera­vör­urn­ar sem hægt er að njóta heima í kósí­heit­um við kerta­ljós og huggu­leg­heit. Hér er listi yfir nokkr­ar drauma­gjaf­ir fyr­ir sæl­ker­ann:

Ljós­mynd/​Olifa

Olifa sæl­kera­gjafa­öskj­urn­ar eru upp­lagðar fyr­ir alla sæl­kera og ástríðukokk­inn, einnig er hægt að setja með gjafa­bréf á La Madre Pizza í stíl við öskj­urn­ar. Hér eru á ferðinni ít­alsk­ar hágæðavör­ur sem geta gert mat­ar­upp­lif­un­ina meira spenn­andi. Skemmti­leg­ast við þess­ar öskj­ur er að hver og einn get­ur sett sam­an sína sæl­kera­öskju. Hluti söl­unn­ar af gjafa­öskj­un­um renn­ur til góðgerðar­mála en í fyrra styrkti Olifa Vot­lendi sem nem­ur kol­efnis­jöfn­un 750 fólks­bíla á einu ári. Hægt er að kaupa gjafa­öskj­urn­ar í versl­un­um Krón­unn­ar og verð fer eft­ir hvað er valið í gjafa­öskj­urn­ar.

Ljós­mynd/​Aðsend

Ma­brúka hand­gerðu hágæðakrydd­in eru kær­kom­in jóla­gjöf fyr­ir alla sæl­kera. Þetta er til­val­in gjöf fyr­ir þá sem elska að leika list­irn­ar sín­ar með krydd þegar mat­reiða á bragðmikla rétti. Hægt er að fá hátíðarpakk­ana með ýms­um teg­und­um af krydd­um í vef­versl­un Ma­brúka, versl­un­um Hag­kaups, Krón­unn­ar og í Mela­búðinni.

Ljós­mynd/​Aðsend

Þessi líf­ræna ólífu­olía með truffl­um frá Gri­delli lyft­ir mat­ar­gerðinni upp á hærra plan. Þessi fæst í Epal og er seld í 250 ml flösk­um og kost­ar 4.300 kr. Það er líka góð hug­mynd að setja sam­an gjafa­pakka með sæl­kera­vör­um Gri­delli fyr­ir sæl­ker­ann.

Ljós­mynd/​Aðsend

Sæl­kera­kass­arn­ir frá Kokk­un­um eru til­val­in jóla­gjöf fyr­ir sæl­kera þar sem marga smá­rétti er að finna, villi­bráð, lax og dress­ing­ar svo fátt sé nefnt. Sæl­kera­kass­ana er hægt að panta á heimasíðunni hjá Kokk­un­um. Hægt er að velja um nokkr­ar stærðir af sæl­kera­köss­um og verð er frá 7.990 kr.

Ljós­mynd/​Aðsend

Jóla­gjöf­ina fyr­ir súkkulaðiaðdá­end­ur er meðal ann­ars að finna hjá súkkulaðigerðinni Omnom. Í ár er Spiced White + Cara­mel í jóla­gjafa­öskj­unni. Það er kryddað, maltað hvítt súkkulaði með app­el­sínu­berki, kanil og stökkri kara­mellu. Þessi klass­íska blanda kem­ur öll­um í jólafíl­ing og minn­ir marga á bernskujól­in. Í ár er súkkulaðið í nýj­um og glæsi­leg­um bún­ing og kem­ur einnig í glæsi­legri gjafa­öskju í nýrri stærð sem er full­kom­in til að deila. Hægt er að fá gjafa­öskj­una í Ísbúð og súkkulaðiversl­un­inni hjá Omnom og í vef­versl­un Omnom og kost­ar 3.990 kr.

Ljós­mynd/​Aðsend

Fyr­ir ostaunn­end­ur er þessi lúxusostakarfa frá MS góm­sæt gjöf. Í henni er úr­val af ost­um og má þar nefna gráðost, brie, hvít­myglu­ost, blá­myglu­ost, harðkýt­isost og fleira góðgæti. Osta­körf­urn­ar má finna í helstu mat­vöru­versl­un­um lands­ins. Þær eru til í nokkr­um stærðum og gerðum og er að finna á nokkr­um verðbil­um.

Ljós­mynd/​Aðsend

Par­lans Kon­fek­tyr eru hand­gerðar sæl­kera­vör­ur sem koma beint frá hjarta Stokk­hólms. Þar má nefna and­gerðar klass­ísk­ar kara­mell­ur, sæl­kerasós­ur og gæðasúkkulaði gert úr nátt­úru­leg­um hrá­efn­um og al­vöru ástríðu. Þetta eru kræs­ing­ar sem heilla alla sæl­kera. Þess­ar vör­ur fást í Epal og hægt er að velja og setja sam­an í gjafa­kassa.

Ljós­mynd/​Aðsend

Nordic Wasa­bi duft er full­kom­in gjöf fyr­ir vand­láta sæl­kera sem lang­ar að töfra gest­ina sína upp úr skón­um. Búið er að frostþurrka ferskt wasa­bi til þess að búa til duft, þannig að var­an hef­ur langt geymsluþol og er ein­föld í notk­un. Ekta wasa­bi er ómiss­andi með sus­hi en er einnig spenn­andi með öðru hrá­efni líkt og nauta- og lamba­kjöti, villi­bráð, fisk, súkkulaði og jafn­vel í kokteila. Nordic Wasa­bi duftið fæst í versl­un­um Hag­kaupa og í vef­versl­un Nordic Wasa­bi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert