Sælgæti sem passar vel með hátíðarmatnum

Þetta rauðkál er tilvalið að gera daginn áður því þá …
Þetta rauðkál er tilvalið að gera daginn áður því þá nær það að draga í sig kryddið og bragðið verður dýpra fyrir vikið. Upplagt að útbúa það í dag, Þorláksmessu og eiga það yfir jólin. mbl.is/Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir

Á jól­um og ára­mót­um er öllu tjaldað til í mat og drykk. Flest­ir eru vanafast­ir og halda í hefðirn­ar en til­valið er að finna ein­hverj­ar nýj­ar og spenn­andi upp­skrift­ir til að bera fram með matn­um. Löng hefð er fyr­ir því að hafa rauðkál og rauðróf­ur á þess­um árs­tíma en það jafn­ast fátt á við að hafa þess­ar kræs­ing­ar heima­lagaðar. Eins get­ur gott jóla­mauk lyft steik­inni í hæstu hæðir. Hér bjóðum við upp á dá­sam­lega upp­skrift úr rauðu og jóla­legu hrá­efni sem gera all­an hátíðarmat enn betri. 

Þetta rauðkál er til­valið að gera dag­inn áður því þá nær það að draga í sig kryddið og bragðið verður dýpra fyr­ir vikið. Rauðkálið er bæði gott heitt og kalt. Upp­skrift­in ætti duga vel sem meðlæti fyr­ir fjóra.

Sælgæti sem passar vel með hátíðarmatnum

Vista Prenta

Heima­gert jól­ar­auðkál með epl­um og kanil

  • 1 lít­ill haus rauðkál eða ½ stór, skorið í þunn­ar ræm­ur
  • 1 grænt epli, af­hýtt og rifið
  • 2 msk. granateplas­íróp (eða trönu­berja­safi)
  • 40 ml epla­e­dik
  • 40 ml balsam­e­dik eða rauðvín­se­dik
  • 3 msk. púður­syk­ur
  • 2 tsk. salt
  • 1 kanil­stöng

Aðferð:

  1. Setjið allt hrá­efnið í stór­an pott og látið sjóða í u.þ.b. 5 mín­út­ur, hrærið í á meðan. Setjið lok yfir og lækkið hit­ann, látið sjóða við væg­an hita í 40-45 mín­út­ur.
  2. Hrærið reglu­lega í og bætið við ögn af vatni ef þurfa þykir. Þegar u.þ.b. 5 mín­út­ur eru eft­ir af suðutím­an­um, smakkið þá til og bætið við sýru, sætu eða kryddi ef þurfa þykir.
  3. Þegar rauðkálið er orðið mjúkt, þykkt og glans­andi er það til­búið til að bera fram.
  4. Það geym­ist vel í ís­skáp í u.þ.b. 5 daga í vel lokuðu íláti og því til­valið að gera það á Þor­láks­messu.

 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert