Bragðgóður og ferskur basil- og vínberjakokteill fyrir helgina

Þessi kokteill er fallegur og bragðgóður.
Þessi kokteill er fallegur og bragðgóður. Ljósmynd/Aðsend

Þessi bragðgóði og ferski basil- og vín­berja­kokteill stein­ligg­ur sem for­drykk­ur í næsta boði. Eða bara þegar þig lang­ar að gera vel við þig og þína. Gald­ur­inn við bragðið er ferskt basil, það pass­ar svo dá­sam­lega vel í kokteila og ger­ir þá svo ferska. Það er líka hægt að gera þenn­an óá­feng­an og setja sóda­vatn og seven-up í staðinn fyr­ir áfengið og njóta þess að drekka fersk­an basildrykk sem bragð er af.

Það gæti líka verið lag að merja basil­lauf­in og vín­ber­in í mortél áður en hrá­efnið er sett í kokteil­hrist­ar­ann.

Bragðgóður og ferskur basil- og vínberjakokteill fyrir helgina

Vista Prenta

Basil- og vín­berja­kokteill

  • 45 ml vod­ki
  • 15 ml dry dol­in vermouth eða ann­ar vermouth að eig­in vali
  • 15 ml límónusafi
  • 1 cl hrá­syk­urss­íróp (2-1)
  • 2 – 3 grein­ar VAXA basilika
  • 7 niður­skor­in vín­ber
  • 3 vín­ber til skrauts

Aðferð:

  1. Frystið/​kælið mart­ini-glas.
  2. Setjið vín­ber­in í kokteila­hrist­ara og merjið vel, bætið síðan við rest­inni af hrá­efn­un­um.
  3. Geymið nokk­ur vín­ber til skrauts, einnig er hægt að geyma basil­lauf til skrauts.
  4. Bætið klök­um út í kokteil­hrist­ar­ann og hristið vel í um það bil 15 sek­únd­ur.
  5. Sigtið og hellið í kælt mart­ini-glas.
  6. Skreytið að lok­um með vín­berj­um og/ eða basil.
  7. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert