Sturlaðar ostafylltar tartalettur með Kryddsíldinni

Ostafylltar tartalettur bornar fram með rifsberjahlaupi.
Ostafylltar tartalettur bornar fram með rifsberjahlaupi. Ljósmynd/Andrea Gunnarsdóttir

Þessar ostafylltu tartalettur með karamelluseruðum lauk, hvítlauk, sveppum, piparosti og gullosti eru sannkallað lostæti. Heiðurinn af uppskriftinni á Andrea Gunnarsdóttir matarbloggari sem heldur úti heimasíðu með sínu nafni.

„Þetta eru sturlaðar tartalettur en ég hef árum saman gert tartalettur eftir uppskrift frá Evu Laufeyju og borið fram yfir Kryddsíldinni á gamlársdag. Ég ber þær fram með bjór og mímósum. Ég geri líka tartalettur úr kjötinu sem verður afgangs af hamborgarhryggnum á jólunum og finnst það alltaf jafn gott.

Þessi uppskrift er reyndar ný hjá mér en um daginn átti ég afgangs piparost og gullost sem ég vildi losna við úr ísskápnum og ákvað að henda í tartalettur. Fólkið mitt missti sig alveg yfir þessum tartalettum svo ég er búin að ákveða að bjóða upp á þessar með Kryddsíldinni á gamlársdag,“ segir Andrea að lokum.

Ostafylltar tartalettur

20-25 tartalettur

  • 1 gullostur, rifinn
  • 1 piparostur, rifinn
  • 5 dl matreiðslurjómi
  • 3 laukar, skornir þunnt
  • 3 msk. smjör
  • 1 msk. ólífuolía
  • 250 g sveppir, sneiddir (má sleppa ef vill)
  • 1 lítill sóló hvítlaukur, fínhakkaður
  • Salt eftir smekk
  • Nýmalaður svartur pipar eftir smekk
  • 1 ½ msk. púðursykur
  • 1 ½ stk. kjúklingateningar
  • 1 ½ msk. sojasósa
  • 1 ½ msk. rifsberjahlaup

Aðferð:

  1. Bræðið 2 msk. smjör og 1 msk. ólífuolíu saman í litlum potti á tiltölulega vægum hita.
  2. Þegar smjörið er bráðnað og farið að malla aðeins bætið þá lauknum og salti eftir smekk í pottinn.
  3. Látið þetta malla á vægum hita í klukkutíma en hrærið í lauknum á 10 mínútna fresti.
  4. Þegar klukkutími er liðinn bætið þá við púðursykri, pipar og hvítlauk í pottinn og blandið öllu mjög vel saman.
  5. Látið malla í 15 mínútur til viðbótar.
  6. Takið laukinn úr pottinum og setjið til hliðar.
  7. Bræðið 1 msk. af smjöri í sama potti á miðlungsháum hita.
  8. Þegar smjörið er bráðnað bætið þá sveppunum við í pottinn og steikið í 10 mínútur.
  9. Bætið lauknum aftur í pottinn, ásamt piparosti, gullosti, matreiðslurjóma, kjúklingatening, sojasósu og rifsberjahlaupi.
  10. Látið suðuna koma upp og hrærið vel í pottinum á meðan.
  11. Lækkið hitann og látið sósuna malla þar til ostarnir eru alveg bráðnaðir.
  12. Fyllið tartalettuskeljarnar með sósunni og bakið í ofni á 200° í 6-7 mínútur.
  13. Látið tartaletturnar kólna aðeins áður en þær eru bornar fram.
  14. Berið fram með rifsberjahlaupi.

 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert