Sænskur Lúciu yfirnætur hafra- og chiagrautur með saffran og vanillu

Ómótstæðilega girnilegur yfirnætur hafra- og chiagrautur sem bragð er af. …
Ómótstæðilega girnilegur yfirnætur hafra- og chiagrautur sem bragð er af. Saffranbragðið lyftir grautnum upp á hærri stall. Ljósmynd/Hildur Ómarsdóttir

Hildur Ómars uppskriftahöfundur er snillingur í því að búa til holla og góða grauta sem henta í morgunmatinn og líka sem millimál.

Hún gerði til að mynda þennan sænska Lúciu yfirnátta hafra- og chiagraut með saffran og vanillu sem er guðdómlega góður og deildi heimasíðu sinni hér. Hún tengir þennan graut við sænsku lúsíubollurnar og segir að þessi sé líka tilvalinn fyrir þá sem elska saffran. Sjálf elskar Hildur saffran og lúsíubollurnar og vandist þeirri hefð að snæða þær í desember ár hvert þegar hún bjó þar.

„Til að svala saffran-þörfinni á aðeins öðruvísi og hollari máta þá býð ég hér upp á uppskrift að yfirnæturhafra- og chia graut með saffran, vanillu og rúsínum. Í uppskriftinni að neðan nota ég heimagerða möndlumjólk en mér persónulega finnst engin plöntumjólk slá henni við og hún býður upp á sveigjanleika til að stýra bragðinu. Ég elska að sæta hana með döðlum sem minn uppáhaldssætugjafi,“ segir Hildur og bætir við að hægt sé að nota möndlumjólk sem keypt er tilbúin úti í búð.

Lúciu yfirnætur hafra- og chiagraut með saffran og vanillu

  • Sæt möndlumjólk, valfrjálst en Hildur mælir með henni
  • 1 pk. möndlur
  • 6 litlar ferskar döðlur (steinhreinsaðar)
  • 2 hnífsoddar himalayasalt
  • 1,2 l vatn

Saffrangrauturinn

  • 3/4 dl chiafræ
  • 1 dl lífrænt haframjöl
  • 1/2 dl rúsínur
  • 1/4 tsk. lífrænt ekta vanilluduft
  • 1/8-1/4 tsk. saffran, magn smekksatriði
  • hnífsoddur kardimomma (valfrjálst)
  • 4 dl af sætu möndlumjólkinni eða4 dl af annarri möndlumjólk, þá mælir Hildur með að bæta við einhverri sætu, t.d. 2 tsk af hlynsírópi.

Aðferð:

  1. Ef þið kjósið að útbúa ykkar eigin möndlumjólk þá eru möndlurnar lagðar í bleyti yfir nótt, vökvanum síðan hellt af og þær skolaðar. Möndlunum er svo komið fyrir í blandara ásamt döðlum, vatni og salti, blandað vel og síðan hellt í gegnum síupoka. Geymist í loftþéttu íláti inni í ísskáp.
  2. Til að útbúa grautinn er hráefninu sem í hann fer komið fyrir í krukku og hrært vel í.
  3. Ágætt er að hræra nokkrum sinnum fyrstu mínúturnar, jafnvel hrista, svo chia fræin klumpist ekki upp.
  4. Komið grautnum fyrir í ísskáp í nokkra tíma eða yfir nótt og svo má bara njóta.
  5. Gott er að toppa grautinn með mandarínum eða appelsínum, kanil og skvettu af möndlumjólkinni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert