Undursamlega gott sjávarréttapasta með risarækjum og humri

Undursamlega gott sjávarréttapasta með risarækjum og humri sem bragð er …
Undursamlega gott sjávarréttapasta með risarækjum og humri sem bragð er af. Freyðandi rjómasósa með kampavíni settur punktinn yfir i-ið. mbl.is/Sjöfn

Ljúf­fengt sjáv­ar­réttap­asta á vel við um að njóta í góðum fé­lags­skap. Þessi pasta­rétt­ur er einn af mín­um upp­á­halds og hægt er að leika sér með meðlætið eft­ir hvaða stemn­ing er að hverju sinni.

Hér blanda ég sam­an sjáv­ar­réttatvennu, humri og ris­arækju með góðri út­komu. Í stað þess að setja hvít­vín út í rjómasós­una set ég smá kampa­vín. Það pass­ar und­ur­sam­lega vel með sjáv­ar­fangi.

Til að gera mat­ar­upp­lif­un­ina enn betri ber ég fram nýbakað jap­anskt mjólk­ur­brauð með, annaðhvort heima­bakað eða keypt í hand­verks­baka­ríi, og ferskt sal­at með sal­atosti, blá­berj­um, blönduðum kokteil­tómöt­um og fersk­um sprett­um.

Ferskt salat með salatosti, bláberjum, blönduðum kokteiltómötum og japanskt mjólkurbrauð …
Ferskt sal­at með sal­atosti, blá­berj­um, blönduðum kokteil­tómöt­um og jap­anskt mjólk­ur­brauð á vel við með rétt­in­um. mbl.is/​Sjöfn Þórðar

Undursamlega gott sjávarréttapasta með risarækjum og humri

Vista Prenta

Sjáv­ar­réttap­asta með ris­arækj­um og humri

Fyr­ir 4-5

  • 1 pk lingu­ine eða taglia­telle pasta frá Olifa
  • 500 g skelflett­ur hum­ar (afþíða)
  • 500 g skelflett ris­arækja (afþíða)
  • 6 hvít­lauksrif, söxuð eða tvo litla hvít­lauka
  • 4-6 sítr­ónu­bát­ar
  • 3 stk. ferskt rautt chili, saxað
  • 1 búnt fersk stein­selja, gróft söxuð
  • ¼ búnt fersk basilíka, saxa hluta og nýta nokk­ur heil blöð til að skreyta rétt­inn með.
  • 1-2 tsk. þurrkuð basilika frá Olifa
  • ½-1 l rjómi, magn fer eft­ir smekk hvers og eins
  • Kampa­vín eft­ir smekk, má sleppa
  • Hvít­ur pip­ar eft­ir smekk
  • Chili-flög­ur eft­ir smekk
  • Ólífu­olíu til steik­ing­ar, velja góða ólífu­olíu
  • Örlítið smjör til að steikja sjáv­ar­fangið upp úr
  • Par­mesanost­ur og fersk­ar sprett­ur frá VAXA til að bragðbæta og skreyta í lok­in.

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ólífu­olíu á meðal­stórri pönnu.
  2. Þegar olí­an hef­ur hitnað, steikið þá hvít­lauk, chili og ¼ af stein­selju­búnt­inu þar til græn­metið verður mjúkt.
  3. Setjið sjáv­ar­fangið út á pönn­una og létt­steikið.
  4. Kryddið til með hvít­um pip­ar og chili-flög­um eft­ir smekk
  5. Takið sjáv­ar­fangið af pönn­unni og setjið í skál til hliðar en skilið græn­metið eft­ir á pönn­unni.
  6. Hellið rjóm­an­um út á pönn­una og látið suðuna koma upp.
  7. Lækkið síðan hit­ann og látið sós­una malla í um það bil 10 mín­út­ur. Hellið síðan smá kampa­víni út ef vill. Virki­lega gott að fá sós­una til að freyða aðeins, hafa hana froðukennda. Þá má sleppa kampa­vín­inu.
  8. Kreistið einn sítr­ónu­bát út í rjómasós­una.
  9. Setjið vatn yfir pastað í pott og bíðið eft­ir að suða komi upp.
  10. Setjið pastað út í vatnið og sjóðið eft­ir leiðbein­ing­um á pakka.
  11. Hellið vatn­inu af og setjið pastað síðan á diska eða í skál­ar sem þið ætlið að fram­reiða rétt­inn á eða í.
  12. Mjög gott er að setja smá ólífu­olíu yfir pastað.
  13. Bætið síðan sjáv­ar­fang­inu út í rjómasós­una, en skilið eft­ir nokkr­ar rækj­ur til setja ofan á rétt­ina í lok­in, á meðan pasta sýður og látið malla í um það bil 2-3 mín­út­ur.
  14. Síðan er sjáv­ar­rétt­ar­jómasós­unni dreift yfir pastað á disk­un­um eða í skál­un­um með ausu eða skeið á fal­leg­an hátt.
  15. Skreytt og bragðbætt með ris­arækj­um, rifn­um par­mesanosti, ferskri stein­selju, basilíku og sprett­um eft­ir smekk.
  16. Mjög gott að bera fram með heitu japönsku mjólk­ur­brauði og vera með þeytt smjör með sjáv­ar­salti, góðri ólífu­olíu og or­eg­anó til að dýfa brauðinu í og fersku sal­ati að eig­in vali.
  17. Njótið rétt­ar­ins með freyðandi drykk við hönd.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert