Vinsælasta kakan fyrir helgarbaksturinn: Kaka sem er góð fyrir sálina

Kakan sem er góð fyrir sálina var sú vinsælasta hjá …
Kakan sem er góð fyrir sálina var sú vinsælasta hjá lesendum þegar kom að helgarbakstrinum. Ljósmynd/Brynja Dadda Sverrisdóttir

Þá er komið að því ljóstra upp hvaða kaka var vinsælust fyrir helgarbaksturinn á matarvefnum á árinu sem var að líða. En dagskrárliðurinn er ómissandi þáttur og nýtur mikilla vinsælda hjá lesendum.

Hér er á ferðinni kaka sem er svo góð fyrir sálina og stendur undir nafni. Eftir að hafa prófað og boðið mínum bestu í kökukaffi er það staðfest. Kakan kemur úr smiðju Brynju Döddu Sverrisdóttur ofan úr fjallinu í Kjós, úr Móberginu. Þetta er afar einföld uppskrift og það þarf ekki einu sinni hrærivél til að töfra þessa guðdómlegu köku fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert