Ljúffeng sjávarréttasúpa borin fram með hvítlauksbrauði

Ljúffeng sjávarréttasúpa borin fram með hvítlauksbrauði.
Ljúffeng sjávarréttasúpa borin fram með hvítlauksbrauði. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Á þess­um árs­tíma er upp­lagt að fá sér góða súpu sem ríf­ur aðeins í og gleður bragðlauk­ana. Hér erum við með upp­skrift að sjáv­ar­rétt­asúpu sem bor­in er fram með hvít­lauks­brauði og kem­ur úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars hjá Gotte­rí og ger­semar. Upp­skrift­ina gerði hún fyr­ir mat­ar­vef­inn Gott í mat­inn.

Þessi súpa er afar góð og ríf­ur aðeins í, það er hægt að bæta chili í súp­una ef vill og gera hana aðeins sterk­ari. Svo er alltaf gott að bera fram brauð með súp­um, það má líka baka brauðboll­ur ef tími gefst og leggja enn meiri metnað í máltíðina.

Ljúffeng sjávarréttasúpa borin fram með hvítlauksbrauði

Vista Prenta

Sjáv­ar­rétt­asúpa og hvít­lauks­brauð

Sjáv­ar­rétt­asúpa

  • 700 g þorsk­ur, skor­inn í bita (munn­bita­stærð)
  • 200 g lax, skor­inn í bita (munn­bita­stærð)
  • 300 g ris­arækj­ur/​hum­ar/​hörpu­skel
  • 500 g minni rækj­ur (soðnar)
  • 1 stk. lauk­ur, saxaður smátt
  • 3 stk. hvít­lauksrif (pressuð)
  • 1 stk. rauð paprika, skor­in í strimla
  • 1 stk. gul paprika, skor­in í strimla
  • 4 stk. gul­ræt­ur skorn­ar í strimla
  • 1 stk. blaðlauk­ur, skor­inn smátt
  • 1 dós tóm­at­púrra
  • ½ l vatn
  • 1 dós kó­kos­mjólk
  • 1 dós niðursoðnir tóm­at­ar í bit­um
  • ½ l rjómi
  • 1 msk.fiskikraft­ur
  • 1 msk.ferskt rós­marín (saxað smátt)
  • Karrí eft­ir smekk
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk
  • Hvít­lauks­duft eft­ir smekk
  • Cayenne pip­ar eft­ir smekk
  • Ólífu­olía eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Steikið lauk, hvít­lauk og vel af karrý upp úr ólífu­olíu stutta stund.
  2. Bætið þá paprik­um og gul­rót­um sam­an við og kryddið með salti, pip­ar, hvít­lauks­dufti og smá Cheyenne pip­ar.
  3. Því næst fer blaðlauk­ur­inn sam­an við og hrært stutta stund.
  4. Tóm­at­púrr­unni er þá blandað sam­an við græn­metið ásamt vatn­inu og leyft að bland­ast.
  5. Þá má bæta kó­kos­mjólk­inni, rjóm­an­um og niðursoðnu tómöt­un­um í pott­inn.
  6. Þessu er leyft að malla, fiskikrafti bætt sam­an við ásamt rós­maríni og svo kryddað til eft­ir smekk með salti, pip­ar, Cheyenne pip­ar og hvít­lauks­dufti.
  7. Náið því næst upp suðunni og bætið fiskn­um og ris­arækj­un­um sam­an við.
  8. Því næst færi hum­ar/​hörpu­skel séuð þið með slíkt og að lok­um minni rækj­urn­ar þar sem þær þurfa ör­stutt­an tíma, bara rétt að hitna.
  9. Berið síðan fram með heitu hvít­lauks­brauðið, sjá upp­skrift fyr­ir neðan, og njótið.

Hvít­lauks­brauð

  • 1 bagu­ette brauð, skorið ská­hallt í sneiðar
  • Smjör eft­ir smekk
  • ½ pk. rif­inn Mozzar­ella
  • Hvít­lauks­duft eft­ir smekk
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Smyrjið vel af smjöri á hverja brauðsneið og raðið á bök­un­ar­plötu/​bök­un­ar­papp­ír, skerið með osta­skera ef smjörið kalt.
  2. Kryddið með hvít­lauks­dufti og smá salti.
  3. Stráið mozzar­ella-osti yfir hverja sneið og kryddið yfir allt með pip­ar.
  4. Bakið í ofni við 200°C þar til hæfi­lega stökkt í nokkr­ar mín­út­ur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert