Norrænu Barþjóna verðlaunin á Íslandi

Barþjónar frá Tipsý, Daisy og Bingó skála í gleðinni.
Barþjónar frá Tipsý, Daisy og Bingó skála í gleðinni. Ljósmynd/Majid

Um síðastliðna helgi komu aðstandendur Norrænu Barþjóna verðlaunanna (Bartender's Choice Awards) Jakob, Joel og Andreas til landsins. Bæði til að skoða kokteilmenninguna hérlendis og um leið tilnefna þá aðila og bari sem komust í úrslit á þessari virtu verðlaunahátíð.

Var tilnefningin haldin á nýja barnum Gilligogg við Austurstræti með skemmtilegum bransaviðburði síðastliðinn sunnudag í samstarfi við Drykk og Diplomatico.

Bartender Choice Awards hefur verið haldið síðan árið 2010 en hún er stærsta barþjónakeppnin á Norðurlöndunum og gengur út á að fagmenn innan barþjónastéttarinnar tilnefni þá staði og aðila sem þeim finnst hafa skarað fram úr í bargeiranum á síðasta ári. Ísland tekur þátt núna í sjötta skiptið og hefur íslenska dómnefndin tilnefnt sína aðila.

Jakob Alf Arnarson á Gilligogg að henda í einn ljúffengan …
Jakob Alf Arnarson á Gilligogg að henda í einn ljúffengan kokteil. Ljósmynd/Majid

Þessir tilnefndir til úrslita

Úrslitin verða svo haldin með pompi og prakt í Vinterträdgården Grand Hôtel Stokkhólmi 24. mars næstkomandi.

Þeir sem eru tilnefndir til úrslita, samkvæmt íslensku dómnefndinni, eru:

Besti barþjónninn:

  • Hrafnkell Ingi Gissurarson frá Skál!
  • Jakob Eggertsson frá Daisy/Jungle
  • Martin Cabejsek frá Gilligogg/Kjarval

Mest upprennandi barþjónninn (Rising Star)

  • Helgi Signý Sveinsdóttir frá Tipsý
  • Elvar Halldór Hróar Sigurðsson Frá Lebowski
  • Kría Freysdóttir Frá Tipsý

Besti kokteilbarinn

  • Amma Don
  • Jungle
  • Tipsý

Besti nýi kokteilbarinn

  • Daisy
  • Gilligogg
  • Litli Barinn

Improver of the bar industry

  • Fannar Logi Jónsson frá Ölgerðinni
  • Jónas Heiðarr frá Jungle/Daisy/Bingo
  • Teitur Ridderman Schiöth, forseti Barþjónaklúbbs Íslands

Besta andrúmsloftið

  • Bingo
  • Kaldi bar
  • Tipsý

Besti kokteilsseðilinn

  • Skál!
  • Gilligogg
  • Amma Don

Besti kokteillinn

  • Austurvallar Swizzle
  • Letsgroni
  • Pistachio

Besti veitingastaðurinn

  • Skál!
  • Sumac
  • Skreið

Hægt er að fylgjast með framgangi hátíðarinnar á Instagram hér og á vefsíðunni þeirra hér. 

 

Hrafnkell Ingi Gissurarson á Skál! fékk nokkrar tilnefningar.
Hrafnkell Ingi Gissurarson á Skál! fékk nokkrar tilnefningar. Ljósmynd/Majid
Fannar Logi Jónsson frá Ölgerðinni og Svavar Helgi Ernuson eigandi …
Fannar Logi Jónsson frá Ölgerðinni og Svavar Helgi Ernuson eigandi á Tipsý. Ljósmynd/Majid
Stemningin í loftinu var svo sannarlega rafmögnuð á meðan tilnefningarnar …
Stemningin í loftinu var svo sannarlega rafmögnuð á meðan tilnefningarnar voru kynntar. Ljósmynd/Majid
Jakob frá BCA, Martin frá Gillagogg og Joel frá BCA …
Jakob frá BCA, Martin frá Gillagogg og Joel frá BCA voru ánægðir með viðburðinn. Ljósmynd/Majid
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert