Léttar og loftsteiktar kræsingar er ný og heit matreiðslubók

Á dögunum kom út matreiðslubókin Léttar og loftsteiktar kræsingar eftir …
Á dögunum kom út matreiðslubókin Léttar og loftsteiktar kræsingar eftir uppskriftahöfundi Nathan Anthony og Nanna Rögnvaldar þýddi. Samsett mynd

Á dögunum kom út matreiðslubókin Léttar og loftsteiktar kræsingar sem á án efa, eftir að slá í gegn hjá þeim sem eiga loftsteikingarpott, eða eins og hann heitir á ensku Air Fryer. Hann hefur einnig fengið nafnið Ari Freyr sem er mun íslenskara.

Vaka-Helgafell gaf bókina út og Nanna Rögnvaldar sælkeri og rithöfundur þýddi en höfundur bókarinnar er Nathan Anthony sem er þekktur matgæðingur á samfélagsmiðlum.

Hann hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum undir nafninu Bored of Lunch. Þar deilir hann einföldum og ómótstæðilegum kræsingum með fylgjendum sínum sem hafa náð miklum vinsældum og lyft þessu undratæki, loftsteikingarpottinum, á hærri stall.

Í þessari spennandi matreiðslubók er að finna 80 girnilegar uppskriftir …
Í þessari spennandi matreiðslubók er að finna 80 girnilegar uppskriftir að loftsteiktum réttum.

80 uppskriftir að loftsteiktum réttum

Í þessari spennandi matreiðslubók er að finna 80 girnilegar uppskriftir að loftsteiktum réttum fyrir sanna sælkera. Eins og fram kemur á bókarkápunni þá er hún biblía hvort sem þið byrjendur eða reyndir loftsteikingarmeistarar, grænmetisætur, kjötætur eða grænkerar, allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Til að mynda gómsæta forrétti og snarl, fljótlegan morgunmat, safaríkan kvöldmat, vænt og grænt meðlæti og syndsamlega góða eftirrétti.

Þeir sem hafa reynsluna af Air Fryer segja að það sé mun fljótlegra að elda í honum en í venjulegum ofni, sem er ótvíræður kostur fyrir önnum kafið fólk. Auk þess er loftsteiking snilldaraðferð til að elda stökkan og safaríkan mat án þess að nota mikla feiti, og fækka þannig hitaeiningum án þess að fórna góðu bragði.

Einnig er í bókinni að finna ýmis góð ráð um loftsteikingarpotta og fróðleik sem varðar eldunartíma.

Girnilegar harrisa-kjúklingavefjur

Í bókinni er til að mynda að finna þessa girnilegu uppskrift að harrisa-kjúklingavefjum sem eldaðar eru í loftsteikingarpotti og koma úr smiðju höfundarins, Anthony.

Fleiri uppskriftir úr bókinni verða birtar á matarvefnum á næstu dögum og meira úr smiðju höfundarins.

Girnilegar harissa-kjúklingavefjur sem tekur skamma stund að útbúa með því …
Girnilegar harissa-kjúklingavefjur sem tekur skamma stund að útbúa með því að nota loftsteikingarpottinn. Ljósmynd/Aðsend

Harrisa-kjúklingavefjur

Fyrir 3

  • 2 msk. harissamauk
  • safi úr 1 sítrónu
  • 1 tsk. paprikuduft
  • 1 tsk. cajunkryddblanda
  • 1 tsk. kummin
  • 500 g kjúklingalæri, úrbeinuð og hamflett
  • salt og pipar eftir smekk
  • 3 pítubrauð eða hveitiflatbrauð
  • lófafylli af klettasalati
  • 3 msk. granateplafræ
  • lítil lófafylli af sýrðum rauðlauk (höfundur kaupir hann í búð – hver má vera að því að súrsa hann sjálfur?)

Sósa

  • 6 kúfaðar matskeiðar af grískri jógúrt
  • safi úr 1 sítrónu
  • 2 hvítlauksgeirar, pressaðir

Aðferð:

  1. Blandið harissa, sítrónusafa, paprikudufti, cajun kryddblöndu, kummini, pipar og salti saman í skál.
  2. Skerið kjúklinginn í ræmur og veltið honum upp úr blöndunni.
  3. Best er að forhita pottinn í 2–3 mínútur og setja kjúklinginn í heita skúffuna, þá brúnast hann betur.
  4. Loftsteikið hann við 200°C í 12 mínútur.
  5. Á meðan hann er í ofninum skulu þið hræra saman jógúrt, sítrónusafa og hvítlauk.
  6. Hitið brauðin og skiptið kjúklingafyllingunni jafnt á þau, ásamt klettasalatinu.
  7. Dreypið jógúrtsósunni yfir og setjið granateplafræ og sýrðan rauðlauk ofan á.
  8. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert