Landssamband bakarameistara stóð fyrir hinni árlegu keppni um brauð ársins. Sigurvegarinn í ár er danski konditorinn Natasja Keincke sem starfar sem konditor hjá Bakarameistaranum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landssambandi bakarameistara.
„Brauðin í keppnina komu alls staðar af landinu og kepptu sex framúrskarandi brauðtegundir til úrslita í keppninni. Það var svo Jalapenó og cheddar-súrdeigsbrauðið hennar Natöshu sem þótti best í ár. Í öðru sæti var brauð Andra Más Ragnarssonar hjá Bakarameistaranum en það er hrísgrjónasúrdeigsbrauð sem inniheldur m.a. hrísgrjón, kartöflumús og kardimommur. Þriðja sætið hreppti Sigrún Sól Vigfúsdóttir, einnig hjá Bakarameistaranum, með Sælkerabrauðið sitt. Er það gerbrauð með steiktum lauk, papriku og semi-þurrkuðum tómötum, rúllað upp í kornflakes og ostablöndu,“ segir Sigurður Már Guðjónsson formaður Landssambands bakarameistara en hann sá einnig um að afhenda verðlaunin.
Brauð ársins 2025 er súrdeigsbrauð með jalapenó og íslenskum cheddarosti eins og fram hefur komið. Að mati dómnefndar er brauðið einstaklega bragðmikið og kröftugt. Að þessu sinni var dómnefndin skipuð þeim Elizu Reid fyrrverandi forsetafrú, Stefáni Bachman bakara og fagkennara í bakaraiðn hjá Hótel og matvælaskólanum í Kópavogi og Sjöfn Þórðardóttur, fjölmiðlakonu og umsjónarmanni hjá matarvef mbl.is. Dómnefndin var einróma í áliti sínu um valið á brauði ársins.
Sigurður segir afar ánægjulegt að sjá þessa miklu grósku og þennan áhuga í bakaraiðninni. „Keppnin um Brauð ársins er núna haldin árlega og er búin að festa sig rækilega í sessi og er orðin sterk hefð eins og Kaka ársins. Keppnir eins og þessi eru svo mikilvægar fyrir greinina því það verða til svo margar nýjungar sem ýta undir nýsköpun í greininni.“
Brauð ársins 2025 fer í sölu á morgun, bóndadag, í öllum bakaríum Landssambands bakarameistara.