Myllan innkallar Heimilisbrauð

Myllan hefur ákveðið með tilliti til neytendaverndar að innkalla heil …
Myllan hefur ákveðið með tilliti til neytendaverndar að innkalla heil Heimilisbrauð 770 g með best fyrir 27.01.2025 vegna aðskotahlutar sem sást á röntgenmyndum. Ljósmynd/Aðsend

Myll­an hef­ur ákveðið með til­liti til neyt­enda­vernd­ar og í samráði við Heil­brigðis­eft­ir­lit Reykjavíkur að innkalla heil Heim­il­is­brauð 770 g með best fyr­ir 27.01.2025 vegna aðskota­hlut­ar sem sást á rönt­gen­mynd­um við hefðbundið gæðaeft­ir­lit en mögulega er um að ræða brot úr peru.

Neyt­end­um er bent á að neyta ekki 770 g Heim­il­is­brauðs með best fyr­ir dag­setn­ingu 27.01.2025 held­ur farga þeim eða skila í versl­an­ir þar sem þau eru keypt eða til Myll­unn­ar Blikastaðavegi 2.

Teg­und inn­köll­un­ar: Vara mögulega með aðskota­hluti

Vöru­heiti: Heim­il­is­brauð heilt 770 g

Vörunúmer: 1023

Umbúðir: Poki

Nettóþyngd: 770 g

Fram­leiðandi: Myll­an

Best fyr­ir: 27.01.2025

Strik­anúmer: 5690568010235

Dreif­ing: Versl­an­ir um land allt

Frek­ari upp­lýsing­ar fást hjá gæðadeild Myll­unn­ar, gaeda­stjori@myll­an.is  eða í síma 5102300.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert