Bóndadagurinn er í dag, föstudaginn 24. janúar, og þá er lag að gera vel við bóndann í kvöld. Þar sem íslenska landsliðið í handbolta er að spila í kvöld og verður á skjánum þá er upplagt að bjóða bóndanum upp á þennan fullkomna bóndadagsborgara sem er vel útlátinn og bragðast ómótstæðilega vel.
Flestir bændur elska vel útilátinn heimagerðan hamborgara. Þessi er ekki flókinn í gerð en það sem gerir hann einstakan er cheddarostur með reykbragði sem gengur undir nafninu „Logi“, spurning hvort hann sé skírður eftir Loga Geirs en við eigum eftir að komast að því síðar. Á borgaranum er líka dálítið af fersku grænmeti, vænum beikonsneiðum, heimagerð hamborgarasósa úr smiðju Valgerðar Grétu Gröndal matarbloggara en hún á heiðurinn af þessum borgara.
Hún ber borgarann fram með stökkum frönskum til hliðar er þetta algerlega fullkomin bóndadagsmáltíð til að njóta fyrir framan skjáinn og bara almennt.
Vert er að byrja á hamborgarasósunni og síðan græja borgarann.
Bóndadagsborgari með heimagerðri hamborgarasósu
Fyrir 2
- 2 stk. 140 g hamborgarar (eða stærri ef vill)
- 2 stk. hamborgarabrauð að eigin vali
- 6 stk. beikonsneiðar
- 4 sneiðar Logi, cheddar-ostur með reykbragði
- salat, magn eftir smekk
- rauðlaukur, skorinn í sneiðar
- tómatur, skorinn í sneiðar
- sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð:
- Takið hamborgarana, þrýstið vel á þá með höndunum og fletjið enn meira út.
- Kryddið ríflega með salti og pipar. Setjið til hliðar.
- Skerið grænmetið í ofn eða airfryer og hitið franskar eftir leiðbeiningum.
- Steikið beikonið.
- Steikið því næst hamborgarana á þykkbotna steypujárnspönnu eða grillið á útigrilli. Þegar borgurunum er snúið, leggið þá sneið af Loga yfir hamborgarann.
- Það má alveg setja tvær sneiðar af ostinum á hvorn borgara, allt eftir því hvað ykkur hugnast!
- Þegar borgarinn er tilbúinn er gott að hita brauðin í örskamma stund í ofninum.
- Valgerði finnst best að raða á hamborgarana þannig að á botninn komi fyrst sósa, því næst salatblöð, þá tómatsneiðar, þá borgarinn, ofan á hann kemur rauðlaukurinn, beikonsneiðar og svo lokað með toppbrauðinu sem hefur verið smurt vel með hamborgarasósunni.
- Njótið með stökkum frönskum og það er ljómandi gott að nota restina af hamborgarasósunni sem ídýfu.
Hamborgarasósa
- 4 msk.majónes
- 2 msk.18% sýrður rjómi
- 1 msk.tómatsósa
- 2 tsk. amerískt gult sinnep
- 3⁄4 tsk. hvítlauksduft
- 3⁄4 tsk. laukduft
- 1 tsk. paprikuduft
- 1 tsk. fljótandi reykur (liquid smoke)
- 6 sneiðar sýrðar gúrkur með dilli, fínt saxaðar
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa hamborgarasósuna og geymið í kæli á meðan rest er græjuð.
- Setjið majónes og sýrðan rjóma í skál og hrærið saman.
- Bætið tómatsósu og sinnepi saman við og hrærið.
- Setjið þá restina af innihaldsefnunum saman við og hrærið vel.
- Látið taka sig í kæli á meðan þið græjið hamborgarana.
Meðlæti