Stóra stundin hjá Sindra að renna upp

Hópurinn hans Sindra Guðbrands Sigurðssonar er mættur til Lyon í …
Hópurinn hans Sindra Guðbrands Sigurðssonar er mættur til Lyon í Frakklandi en Sindri mun keppa í stærstu og virtustu matreiðslukeppni heims Bocuse d’Or á mándaginn. Þráinn Freyr Vígfússon, Hinrik Örn Halldórsson, Sindri Guðbrandur Sigurðsson og Sigurjón Bragi Geirsson. Ljósmynd/Aðsend

Stærsta mat­reiðslu­keppni í heimi Bocu­se d’Or fer fram í Lyon í Frakklandi á morg­un, sunnu­dag­inn 26. janú­ar og mánu­dag­inn 27. janú­ar næst­kom­andi. Full­trúi Íslands er meist­ara­kokk­ur­inn Sindri Guðbrand­ur Sig­urðsson en þetta er ein­stak­lingskeppni. Sindri mun keppa á mánu­dag­inn og spenn­an er í há­marki þessa stund­ina.

Bocu­se d’Or er allra virt­asta mat­reiðslu­keppni sem hald­in er í heim­in­um og hef­ur verið hald­in síðan árið 1987 í Lyon í Frakklandi, og kom­ast færri þjóðir en vilja. 24 þjóðir fá keppn­is­rétt eft­ir að hafa kom­ist í gegn úr for­keppni í sinni heims­álfu. Bocu­se d’Or er kölluð hin eina sanna heims­meist­ara­keppni í mat­reiðslu.

Fer­ill Sindra er stór­glæsi­leg­ur í alla staði

Sindri er bú­inn að standa í ströngu í marga mánuði og und­ir­bún­ing­ur­inn skipt­ir sköp­un fyr­ir keppni sem þessa. Þarna mæta til leiks all­ir fær­ustu mat­reiðslu­menn heims og all­ir vilja fá gullið.

Sindri er hok­inn reynslu og þekk­ir vel til keppn­ismat­reiðslu. Fer­ill hans í keppn­ismat­reiðslu er stór­glæsi­leg­ur, hann hreppti 3. sætið á Ólymp­íu­leik­un­um í mat­reiðslu með ís­lenska kokka­landsliðinu, hann var í öðru sæti í keppn­inni Besti kokk­ur Norður­land­anna, varð Kokk­ur árs­ins árið 2023 og er nú full­trúi Íslands í Bocu­se d'Or.

Sindri er einnig eig­andi að veisluþjón­ust­unni Flóru ásamt Sig­ur­jóni Braga Geirs­syni, sem einnig er marg­verðlaunaður meist­ara­kokk­ur og hef­ur þjálfað Sindra fyr­ir keppn­ina.

8 manna hóp­ur í liði Sindra

Bocu­se d´Or-hóp­ur­inn lenti í Frakklandi á þriðju­dag­inn og held­ur ís­lenska liðið til Chon­as L'amball­an sem er lít­ill bær suður af Lyon. Eft­ir kom­una hafa Sindri og aðstoðar­menn hans verið að prufa síðustu atriðin fyr­ir keppn­ina. Einnig hafa þeir þurft að stilla upp öll­um tækj­um og tól­um sem þeir taka með sér í eld­húsið á keppn­is­dag­inn. Átta manna hóp­ur er í liðinu hans Sindra sem fór með út.

„Við kom­um til Frakk­lands á þriðju­dag­inn síðastliðinn og það er búið að ganga vel að koma okk­ur fyr­ir. Við erum staðsett­ir á litlu sveita­hót­eli rétt fyr­ir utan Lyon sem ber heitið Lé cotta­ge de Clairefontaine,“ seg­ir Sindri glaður í bragði.

Þríeyikið sem mun mæta til leiks á mánudaginn næstkomandi. Í …
Þríeyikið sem mun mæta til leiks á mánu­dag­inn næst­kom­andi. Í búr­inu með Sindra verður Hinrik Örn Hall­dórs­son. Hér eru þeir sam­an Hinrik, Sindri Guðbrand­ur og Sig­ur­jón Bragi sem hef­ur séð um þjálf­un­ina. Ljós­mynd/​Aðsend

Þjálf­ari Sindra er eins og áður sagði Sig­ur­jón Bragi, kepp­andi Bocu­se d´Or 2023, og aðstoðarmaður hans er Hinrik Örn Hall­dórs­son. Dóm­ari Íslands í keppn­inni er Þrá­inn Freyr Vig­fús­son, kepp­andi Bocu­se d´Or 2011.

„Við erum bún­ir að fara yfir allt eld­húsidótið eft­ir flutn­inga hingað frá Íslandi og það sem skipt­ir mestu máli er að halda okk­ar skipu­lagi og gera það sem við erum bún­ir að vera að æfa síðustu mánuði enn bet­ur. Við tók­um allt hrá­efnið með okk­ur út sem er að sjálf­sögðu ís­lenskt.“

Í keppn­inni hef­ur Sindri fimm og hálfa klukku­stund til þess að mat­reiða fisk­rétt og kjö­trétt fyr­ir 24 dóm­ara. Afrakst­ur­inn verður sann­kallað lista­verk og er ann­ars veg­ar bor­inn fram á fal­leg­um stór­um disk og hins veg­ar á glæsi­legu silf­urfati.

Við mun­um fylgj­ast grannt með keppn­inni og ósk­um Sindra og fé­lög­um góðs geng­is í keppn­inni á mánu­dag­inn næst­kom­andi.

 

Stóra stundinn sem Sindri hefur biðið eftir í langan tíma …
Stóra stund­inn sem Sindri hef­ur biðið eft­ir í lang­an tíma er loks að renna upp. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert