Elínu finnst pylsur vera hryllingur

Elín Kristín Guðmundsdóttir matarfrumkvöðull með meiru ljóstrar upp sínum áhugaverðu …
Elín Kristín Guðmundsdóttir matarfrumkvöðull með meiru ljóstrar upp sínum áhugaverðu og skemmtilegu staðreyndum um matarvenjur sínar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Elín Krist­ín Guðmunds­dótt­ir matar­frum­kvöðull ljóstr­ar upp áhuga­verðum staðreynd­um um mat­ar­venj­ur sín­ar að þessu sinni. Hún nýt­ur þess að borða góðan mat í góðra vina hópi og fjöl­skyld­unni.

Hún á og rek­ur fyr­ir­tækið Ella Stína sem fram­leiðir veg­an mat­vör­ur og er orðið þekkt vörumerki.

„Vörumerkið er alltaf að stækka og verða þekkt­ara meðal neyt­enda og er ég virki­lega þakk­lát mín­um viðskipta­vin­um sem versla frá mér aft­ur og aft­ur. Þá get ég haldið áfram að gera það sem mér finnst skemmti­legt, að finna nýj­ung­ar og vöruþróun á góðum vör­um sem inni­halda hrein­leika,“ seg­ir Elín.

Gulls ígildi að borða góðan mat

Elín seg­ist ávallt hafa haft mikla ástríðu fyr­ir mat og njóta þess að vera í góðum fé­lags­skap þegar mat­ur er á borðum.

„Að borða góðan mat í góðra vina hópi eða með fjöl­skyldu er gulls í gildi. Ég hef alltaf haft ástríðu fyr­ir að búa til mat sem er ljúf­feng­ur og ein­fald­ur. Því það bragðast alltaf best það sem er ein­falt í fram­kvæmd og ást í hverj­um munn­bita. Í amstri dags­ins nenn­ir maður ekki endi­lega því sem tek­ur mest­an tíma. Ég nýt þess að leika mér í eld­hús­inu eins og góðum kokki sæm­ir, ég vil helst gera allt frá grunni og blanda hinu og þessu út í sem er til í ís­skápn­um. Ég væri ekki með Ellu Stínu nema vegna þess að ég hef óbilandi áhuga á mat og velja sam­an alls kon­ar mat sem er holl­ur og góður,“ seg­ir Elín og bros­ir.

„Þar sem það er Veganú­ar vil ég hvetja les­end­ur til að prufa sig áfram í að bæta meira plöntu­fæði í mataræðið sitt. Það hef­ur já­kvæð áhrif á lík­amann og líka á um­hverfið og það sem mik­il­væg­ast er, dýr­in.“

Elín svar­ar hér nokkr­um praktísk­um spurn­ing­um um mat­ar­venj­ur sín­ar.

Hvað færðu þér í morg­un­mat?

„Í morg­un­mat byrja ég á að drekka stórt vatns­glas og fá mér engi­fer­skot. Besti kaffi­boll­inn er auðvitað í morg­uns­árið úr kaffi­vél­inni minni með flóaðri veg­an­mjólk sem ég fæ mér alltaf um helg­ar. Á virk­um dög­um þá er það bara þessi svarti úr kaffi­vél­inni með smá veg­an­mjólk áður en haldið er út í dag­inn. Ég borða ekki morg­un­mat reglu­lega. Ég hef verið að til­einka mér að fasta til klukk­an 10-11 á morgn­ana. Þannig ég myndi segja að morg­un­mat­ur­inn minn sé vatn, engi­fer­skot og kaffi­bolli.“

Ekki sér­lega dug­leg að vera ekki nasl­ari

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

Ég skal al­veg viður­kenna það að ég get verið smá nart­ari milli mála og sér­stak­lega ef ég hef ekki verið að passa upp á að borða vel í há­deg­inu eða í kvöld­matn­um. En núna hef ég verið meðvituð um að minnka milli­málasn­arl en þar sem ég lifi og hrær­ist í mat alla daga þá er ég mjög oft að smakka til ein­hverj­ar nýj­ung­ar þannig ég er ör­ugg­lega ekk­ert sér­lega dug­leg að vera ekki nasl­ari.

Ég er mjög meðvituð um að velja alltaf holl­ustu fram yfir annað. Þannig kemst ég upp með að borða stund­um meira á milli mála en ef ég væri að velja vör­ur sem inni­halda mikið magn af sykri. Þegar ég er mjög skyn­söm er græn­meti og ávext­ir skor­in niður. Einnig er líka stund­um ristuð súr­deigs­brauðsneið með avóka­dó og áleggi frá Ellu Stínu á diskn­um mín­um, það klikk­ar ekki eða góð lúka af hnetu­blöndu.“

Finnst þér ómiss­andi að borða há­deg­is­verð?

„Já, mér finnst mjög mik­il­vægt að borða góðan há­deg­is­verð sem er reglu­lega fyrsta máltíð dags­ins hjá mér. Stund­um er há­deg­is­mat­ur­inn hjá mér kring­um ell­efu þar sem ég er vön að æfa hjá henni Önnu Ei­ríks í eðalþjálf­un hjá Hreyf­ingu 3 svar sinn­um í viku frá klukk­an 9.15 á morgn­ana. Það er heilsu­efl­andi fyr­ir lík­ama og sál, ég veit ekki hvar ég væri án þess­ara föstu punkta í líf­inu. Eft­ir þenn­an tíma fæ ég mér fyrstu máltíð dags­ins.

Þá daga sem ég mæti á öðrum tíma í Hreyf­ingu þá er yf­ir­leitt fyrsta máltíð dags­ins, há­deg­is­mat­ur­inn, kring­um tólf og eitt. Há­deg­is­verður minn sam­an­stend­ur af þeyt­ingi. Í hann set ég það sem ég á til hverju sinni eins og veg­an prótein, jarðarber, blá­ber, kó­kos­mjöl, ferska peru, hálfa og hálf­an ban­ana ásamt expresso kaf­fiskoti og nóg af klök­um og smá skvettu af veg­an­mjólk sem ég geri sjálf. Ég legg mikið upp úr því að borða nær­inga­rík­an há­deg­is­verð þar sem ég passa vel upp á að hlut­föll af próteini, kol­vetn­um, trefj­um og hollri fitu séu vel sam­sett. Það skipt­ir máli að borða nóg af próteini yfir dag­inn og þar sem ég er veg­an þá fæ ég mér þeyt­ing dag­lega að lág­marki ásamt öllu hinu auðvitað.“

Hvað áttu alltaf til í ís­skápn­um?

„Ætli það sé ekki alltaf of mikið til í mín­um ís­skáp þar sem ég er alltaf að prófa eitt­hvað nýtt sem mér dett­ur í hug. En þessi hefðbundni staðal­búnaður eru vör­ur frá Ellu Stínu, álegg, ost­ur og sós­urn­ar, ásamt veg­an smjöri og svo á ég ávallt fulla skúffu af alls kon­ar græn­meti og líka ávöxt­um sem og sóda­vatni.“

Ferðu á þorra­blót?

„Nei, ég er ekki mikið fyr­ir þorra­blót þó að mér þyki gam­an að vera með fólki. Ég hef aldrei farið á þorra­blót, kannski er bara kom­inn tími á að ég prufi að mæta.“

Hef ekki borðað þorramat í sjö ár

Borðar þú þorramat?

„Nei, ég borða ekki þorramat og hef ekki gert að verða í að verða 7 ár eða síðan ég fór á veg­an­mataræði. Áður fyrr borðaði ég sviðasultu og slát­ur. Ég gæti ekki borðað það í dag.“

Þegar þú ætl­ar að gera vel við þig í mat og drykk og vel­ur veit­ingastað til að fara á, hvert ferðu?

„Ég nýt þess að fara út að borða og vel staði sem bjóða upp á góðan grænkeramat­seðil. En þegar ég verð nátt­úru­lega að benda á YUZU og Lemon sem eru nú meira skyndi­bitastaðir en þar eru vör­ur frá mér á mat­seðli. Einnig eru að koma vör­ur frá mér til staðar­ins Hjá Höllu ef það er ekki þegar byrjað.

Ég verð að benda veit­inga­húsa­eig­end­um á að það mætti al­veg bæta grænkera­úr­val hjá þeim þar sem að það er stækk­andi hóp­ur sem vel­ur grænkera­fæði en oft finnst mér ekki nógu vel lagt í að hafa girni­leg­an mat fyr­ir grænker­ana. Mín­ir staðir sem ég held upp á eru meðal ann­ars Eriks­son, Apó­tekið, Sumac og Aust­ur-Indí­an­fé­lagið.“

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Það er hefð hjá okk­ur fjöl­skyld­unni að hafa pítsu á föstu­dög­um. Þótt það klikki stund­um sök­um annarra plana. Á mína pítsu finnst mér best að vera með veg­an hakk frá Ellu Stínu, sveppi, græna papriku, döðlur, hvít­lauk, venju­leg­an lauk og veg­an ost frá Ellu Stínu, toppa pítsuna síðan með basilíku og góðri hvít­lauk­sol­íu.“

15 ár síðan ég smakkaði pylsu

Hvað færð þú þér á pyls­una þína?

„Ég hef ekki borðað venju­lega pylsu í mörg ár, finnst þær vera hryll­ing­ur. Það eru ör­ugg­lega kom­in yfir 15 ár síðan ég smakkaði síðast pylsu. Hins veg­ar er ég far­in sjálf að fram­leiða veg­an pyls­ur sem er pysl­an mín ef ég fæ mér, auðvitað með öllu þá og passa að hafa veg­an remúlaði með frá Ellu Stínu.“

Hver er upp­á­halds­rétt­ur­inn þinn?

„Ég á mér marga upp­á­halds­rétti en það sem kem­ur í hug­ann á mér akkúrat núna er rétt­ur sem ég bjó til fyr­ir jóla­gest­gjaf­ann í ár sem er grasker með sveppa­fyll­ingu. Þið getið fundið upp­skrift­ina hjá Gest­gjaf­an­um. Ég elska góð salöt og er far­in að spíra sjálf heima, spír­ur eru svo holl­ar og góðar. Mín sal­at­skál er með öllu sem ég finn í ís­skápn­um og set kjúlla­kebab með og toppa með góðri thaini-sósu.

Hvort vel­ur þú kart­öfl­ur eða sal­at á disk­inn þinn?

„Ég vel alltaf sal­at á disk­inn minn í öll mál en borða líka mjög oft með því sæt­ar kart­öfl­ur sem ég baka í ofni og hef látið liggja í smá mar­eríngu úr ein­hverju sem ég á inni í skáp. Það klikk­ar ekki. Ég næ ávallt að töfra fram góðar marín­er­ing­ar úr því sem ís­skáp­ur­inn býður upp á að hverju sinni.

Upp­á­halds­drykk­ur­inn þinn?

„Ég verð að vera strang­heiðarleg og segja að ég drekki bara vatn sem er besti drykk­ur­inn, en auðvitað drekk ég fullt af sóda­vatni. Ég er smá sökk­er fyr­ir að fá kók í gleri, veit hversu óhollt það er og drekk það bara spari. Kaupi þá eina flösku og nýt þess að drekka hana. Gæti ekki átt það til í ís­skápn­um, það væri ein­um of freist­andi fyr­ir mig.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert