Klassískt og nútímalegt eldhús hjá Guðrúnu

Guðrún Gunnarsdóttir hannaði draumaeldhúsið í Sigvaldaíbúð sem hún elskar að …
Guðrún Gunnarsdóttir hannaði draumaeldhúsið í Sigvaldaíbúð sem hún elskar að dunda sér í og hlusta á útvarpið um leið. mbl.is/Karítas

Fag­ur­ker­inn og viðskipta­fræðing­ur­inn Guðrún Gunn­ars bjó lengi í Par­ís þar sem hún lærði frönsku og starfaði meðal ann­ars sem pistla­höf­und­ur. Síðastliðin ár hef­ur Guðrún hannað og gert upp marg­ar íbúðir, sú nýj­asta er Sig­valda­í­búð í Álf­heim­um, steinsnar frá Laug­ar­daln­um.

Þegar blaðamann ber að garði er Guðrún að ljúka við að gera græn­metisafa, sj­eik fyr­ir son­inn og kjötsúpu með græn­meti. Hún elsk­ar fátt meira en að nostra við ein­falda mat­ar­gerð í eld­hús­inu og hlusta á út­varpið og þegar kom að því að gera eld­húsið upp í Sig­valda­í­búðinni var drauma­eld­húsið henn­ar í for­grunni.

Guðrún valdi gráar innréttingar frá Haecker sem fást hjá Eirvík …
Guðrún valdi grá­ar inn­rétt­ing­ar frá Haecker sem fást hjá Eir­vík í eld­húsið sem koma mjög vel út. mbl.is/​Karítas

„Við hjón­in keypt­um þessa íbúð og feng­um arki­tekt til að teikna upp nýtt skipu­lag, eins og við erum alltaf vön að gera, til að stilla íbúðina af og nýta rýmið bet­ur. Arki­tekt­inn, Steinþór Kári hjá Kurt og Pí, gerði þetta og gott bet­ur. Hann gjör­breytti íbúðinni með því að henda eld­hús­h­urðinni út og stækka gatið þar í 100 cm og svo opnaði hann vegg­inn við sval­irn­ar um 90 cm inn í stof­una. Það var eins og íbúðin hefði stækkað um marga fer­metra, hún er öll bjart­ari og opn­ari.Og eld­húsið nýt­ur sín miklu bet­ur,“ seg­ir Guðrún með bros á vör.

Guðrún fékk sér Smeg-gaseldavél, sem henni finnst mjög gaman að …
Guðrún fékk sér Smeg-gaselda­vél, sem henni finnst mjög gam­an að nota, og tvo Smeg-ofna í svört­um lit í eld­húsið. Karítas Sveina Guðjóns­dótt­ir

Fór til Par­ís­ar að skoða flís­ar

Að sögn Guðrún­ar teiknaði Steinþór eld­hús­skápa al­veg upp í loft eft­ir ann­arri hliðinni.

„Ég vildi fá skápa sem væru upp í loft og þá var eina lausn­in að fara í Eir­vík og velja sér inn­rétt­ingu þar frá Haecker, en hún kem­ur í þeim mál­um sem maður vill. Ég valdi að hafa hana í grá­um lit, tók líka mjög þunna borðplötu frá Haecker og málaði svo eld­húsið í grá­bláa litn­um Fabrik,“ seg­ir Guðrún og strýk­ur yfir inn­rétt­ing­una.

„Við keypt­um öll eld­hús­tæk­in hjá Eir­vík og ég er í fyrsta sinn með Smeg-gaselda­vél sem er mjög gam­an að nota og tvo Smeg-ofna í svört­um lit, þeir eru mjög ein­fald­ir í notk­un. Þeir eru flott­ir við gráa lit­inn í inn­rétt­ing­unni. Einnig erum við með mjög hljóðláta Miele-uppþvotta­vél og inn­byggðan Miele-ís­skáp. Inn af eld­hús­inu er þetta æðis­lega þvotta­hús sem er einnig frá Haecker, allt sér­sniðið í rýmið og með frá­bært skápapláss,“ bæt­ir Guðrún við. 

Guðrún gerir safann sem hefur lækningamát að sögn ömmu hennar.
Guðrún ger­ir saf­ann sem hef­ur lækn­inga­mát að sögn ömmu henn­ar. mbl.is/​Karítas

„Ég lét setja vask og er með upp­hækkað stæði fyr­ir þvotta­vél og þurrk­ara. Ég pældi mikið í gólf­flís­un­um á þvotta­húsið og baðið sem ég vildi hafa í stíl. Ég bjó lengi í Par­ís við nám og störf og ég fór sér­stak­lega þangað til að skoða flís­ar og hvernig þær passa við par­ket. Ég skoðaði marg­ar kirkj­ur og versl­an­ir en þar eru gólfin oft­ast flísa­lögð og með síld­ar­beina- eða fiski­beina­mynstri, mass­íf gólf sem hafa staðið mörg hundruð ár og verða bara fal­legri með tím­an­um. Að end­ingu valdi ég terrasso-flís­ar frá Flísa­búðinni og lang­ar su­bway-flís­ar frá Vídd á bæði rým­in. Ég vildi hafa þetta klass­ískt, en nú­tíma­legt um leið,“ seg­ir Guðrún dreym­in á svip.

„Mér fannst það passa við par­ketið sem er lagt í fiski­beina­mynst­ur, það er gegn­heilt og olíu­borið og kem­ur frá Agli Árna­syni.Við lét­um flota öll gólfin, þá var límd­ur á það 3mm hljóðdúk­ur og svo niður­límt fiski­beinap­ar­ket. Þetta ger­ir það að verk­um að hljóðið í íbúðinni er allt mjög þétt og íbúðin held­ur eig­in­lega utan um mann.“

Pottréttir stútfullir af grænmeti er eitt af því sem Guðrún …
Pot­trétt­ir stút­full­ir af græn­meti er eitt af því sem Guðrún hef­ur mikið dá­læti af. mbl.is/​Karítas

Lífs­gæði og sparnaður

Þegar Guðrún er spurð hvað henni finn­ist ómiss­andi að hafa í eld­hús­inu er hún fljót til svars. „Útvarpið er al­gjör­lega ómiss­andi í eld­hús­inu. Ég hlusta alltaf á Rás eitt í eld­hús­inu og hef í raun miklu meiri áhuga á út­varps­efn­inu en á elda­mennsk­unni sjálfri. Ég er mjög hrif­in af þul­in­um, Pétri Grét­ars­syni, hann tal­ar mjög fal­lega ís­lensku og er sniðugur. Mér finnst ég oft ferðast heil­mikið í gegn­um út­varpið.

Gaselda­vél­in ger­ir síðan elda­mennsk­una mun áhuga­verðari. Góður hníf­ur er líka eitt­hvað sem er ómiss­andi, ég er með jap­ansk­an Tama­haga­ne-hníf sem er svo flug­beitt­ur að ég geymi hann í kassa uppi í skáp svo eng­inn skeri sig óvart á hon­um. Síðan er hent­ugt að hafa þvotta­húsið inn af eld­hús­inu og að geta sett í eina og eina vél á meðan ég elda og hlusta á út­varpið. Það eru ákveðin lífs­gæði og tímasparnaður að hafa allt við hönd­ina.“

Guðrún valdi að hafa eldhúsið og íbúðina alla í klassískum …
Guðrún valdi að hafa eld­húsið og íbúðina alla í klass­ísk­um en nú­tíma­leg­um stíl. mbl.is/​Karítas

Bakst­ur á ekki við Guðrúnu og hún seg­ir aldrei baka. „Ég elda bara fljót­lega rétti og legg metnað í þá. Við eig­um lít­inn dreng og hann elsk­ar fisk í ofni með kart­öfl­um og smjöri, ég fer því reglu­lega í Fisk­búð Fúsa og fæ fisk. Strák­ur­inn okk­ar vill líka fá ban­ana­sj­eik sem ég bý til í Vitamix-bland­ar­an­um. Ég bý einnig oft til kjötsúpu úr af­gangskjöti ef ég hef haft lamba­læri í mat­inn.

Ég nýt þess samt mun bet­ur að borða mat hjá öðrum. Sigrún Úlfars vin­kona mín er senni­lega sá kokk­ur sem eld­ar oft­ast ofan í mig. Sigrún er skart­gripa­hönnuður og dá­sam­leg­ur kokk­ur.“

Ég hef aldrei átt neina fyr­ir­mynd þegar kem­ur að mat­ar­gerð eða bakstri, né hef ég spáð mikið í mat, þrátt fyr­ir að ég hafi búið lengi í Par­ís – þar sem hægt er að smakka mat frá öll­um heims­horn­um. Ég er sjálf hrifn­ust af heilsu­sam­leg­um mat og horfi mest í holl­ustu er ég elda,“ seg­ir Guðrún sposk á svip­inn.

Lærði þessa formúlu hjá ömmu minni

Til að mynda legg ég mikið upp úr því að gera holla drykki sem næra lík­amann og sál. Ég hef í mörg ár pressað græn­meti og búið til holla drykki fyr­ir mig og fjöl­skyld­una. Ég byrjaði á þessu til að lækna mig af ex­emi og það virkaði mjög vel. Það hef­ur mjög góð áhrif á húðina að drekka græn­met­is­drykki og taka inn góðar ol­í­ur með. Oft­ast pressa ég sell­e­rí, drekk það á fastandi maga og tek alltaf tvær mat­skeiðar af góðri olíu. Eft­ir það er það hreinn gul­róta­safi og síðan avóka­dódrykk­ur. Stund­um geri ég rauðróf­usafa og ég hef líka oft tekið tarn­ir með hveitigrasi.

Aðspurð seg­ist Guðrún hafa lært formúl­una af heilsu­drykkn­um hjá ömmu sinni. „Ég lærði þetta trix með holl­ustu­drykk­inn hjá ömmu Þóru þegar ég var lít­il stelpa. Ein­hvern tíma keypti hún þessa rosa­legu Mul­inex-safa­pressu. Hún pressaði græn­meti og ávexti og ég fékk alltaf safa fyr­ir all­ar máltíðir. Þetta hef­ur svona loðað við mig alla tíð en amma sagði að þessi safi hefði lækn­ing­ar­mátt.“

Parket hjá Guðrúnu kemur skemmtilega út.
Par­ket hjá Guðrúnu kem­ur skemmti­lega út. mbl.is/​Karítas

Guðrún er líka sæl­keri og kann að njóta þess að fá rétti sem kitla bragðlauk­ana. „Ég elska að fá mér tíra­mísú á ít­ölsk­um veit­inga­stöðum í Par­ís. Ég stenst held­ur ekki fransk­an geita­ost. Við eig­um góða franska vin­konu sem býður okk­ur oft að dvelja á sveita­setr­inu sínu í Drome sem er í Provence-héraðinu íFrakklandi. Þar fáum við geggjaða geita­osta beint frá bónda. Það er him­neskt að njóta þar,“ seg­ir Guðrún að lok­um og lýk­ur við að bera fram þessa dýrðlegu kjötsúpu sem hún er búin að vera að gera frá því blaðamann bar að garði.

Hollustudrykkurinn frá ömmu hennar Þóru er oft í boði.
Holl­ustu­drykk­ur­inn frá ömmu henn­ar Þóru er oft í boði. mbl.is/​Karítas

Guðrún deil­ir hér með les­end­um upp­skrift­un­um að því sem hún gerði fyr­ir viðtalið, ban­ana­sj­eikn­um, avóka­dó-drykkn­um og kjötsúp­unni sem er stút­full af græn­meti.

Kjötsúpa stútfull af grænmeti.
Kjötsúpa stút­full af græn­meti. mbl.is/​Karítas

Klassískt og nútímalegt eldhús hjá Guðrúnu

Vista Prenta

Ban­ana­sj­eik Sörla, 5 ára

  • 1 ban­ani
  • 2 boll­ar mjólk
  • salt á hnífoddi (himalayja)
  • kanill

Aðferð:

  1. Setjið allt hrá­efnið sam­an í bland­ara og hrærið vel sam­an.
  2. Hellið í hátt glas og berið fram.

Avóka­dó - drykk­ur

Fyr­ir 2

  • 2 avóka­dó, skerið í bita
  • 4 epli
  • Engi­fer­bút­ur, eft­ir smekk.
  • Salt eft­ir smekk
  • Vatn eft­ir þörf­um og smekk

Aðferð:

  1. Pressið epl­in og engi­fer í safa­vél.
  2. Setjið í bland­ara með avóka­dó-bit­un­um, salti og vatni eft­ir smekk.
  3. Hellið í tvö glös og berið fram.

Kjötsúpa í rauðum Le Cr­eu­set-potti

Fyr­ir 2-4

  • Af­gang­ur af lamba­læri og soði af því frá deg­in­um áður
  • 1 paprika
  • 1 hvít­lauk­ur
  • 1 lauk­ur
  • 1 kúr­bít­ur
  • 1 brokkóli
  • 2 gul­ræt­ur
  • 1 dós tóm­at­ar
  • 1 dós tóm­at­púrra
  • 1 bolli baun­ir eða hrís­grjón
  • 1 stk. græn­metiskraft­ur frá Him­neskt
  • Pip­ar eft­ir smekk
  • Ólífu­olía eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Skerið allt græn­metið smátt niður og steikið í olíu í pott­in­um.
  2. Skerið kjötið niður í smáa bita og bætið út í pott­inn.
  3. Setjið allt soðið af kjöt­inu frá deg­in­um áður í pott­inn líka.
  4. Bætið síðan tóm­at­púrru, niðursoðnum tómöt­um, baun­um eða hrís­grjón­um út í.
  5. Hellið síðan vatni út í eft­ir smekk og kryddið til.
  6. Látið sjóða við lág­an hita í um það bil 10 mín­út­ur.
  7. Berið fram í pott­in­um og njótið í góðum fé­lags­skap.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert