Hinn rótgróni hverfisstaður Kaffi Laugalækur falur

Kristín Björg Viggósdóttir og Björn Arnar Hauksson eiga Kaffihúsið Laugalæk …
Kristín Björg Viggósdóttir og Björn Arnar Hauksson eiga Kaffihúsið Laugalæk og hafar rekið staðinn í liðlega áratug. Kristín segir að það sé góður andinn í húsinu. Ljósmynd/Aðsend

Hinn rótgróni hverfisstaður, Kaffi Laugalækur, er falur en eigendur staðarins eru Kristín Björg Viggósdóttir og Björn Arnar Hauksson. Þau hafa rekið staðinn í liðlega áratug. Kaffihúsið er við Laugalæk 74 í Laugarnesinu í Reykjavík.

Hjónin hafa lagt mikla ást í staðinn og þeirra markmið ávallt verið að veita persónulega þjónustu.

„Við fjölskyldan vorum búsett í Singapúr þegar hugmyndin um Kaffi Laugalæk fæddist árið 2015. Við höfum alltaf haft áhuga á matargerð og ræktun matvæla. Við vorum iðin við að heimsækjaalls konar matartorg, kaffi- og tebúgarða, kaffihús og veitingastaði með dætrum okkar erlendis. Hugurinn stefndi til Íslands og okkur fannst spennandi kostur að opna veitingahús í Laugardalnum sem væri líka hverfismiðstöð fyrir íbúana. Mörgum þótti þetta galin hugmynd, að fara að stofna nýjan veitingastað búandi í annarri heimsálfu, sem það var eftir á að hyggja,“ segir Kristín og hlær.

Í anda litla Stokkhólms

Aðspurð segir Kristín að þau hafi viljað sameina reynslu sína og þekkingu í þessum geira á sínum eigin stað.

„Við vildum sameina margt af því frábæra sem við höfðum kynnst í matarmenningu frá því að við bjuggum erlendis í 13 ár og íslenskt hráefni beint frá býli. Nokkrar hugmyndir voru á teikniborðinu um sælkeraverslun, matartorg í asískum stíl og fleira. Þetta var á þeim tíma sem ferðamannaiðnaðurinn var að springa út á Íslandi en það vantaði staði fyrir Íslendinga. Við vildum líka hafa staðinn fjölskylduvænan því við þekktum af eigin reynslu að ef okkar dætrum líkaði vel við einhvern matarstað þá fengust þær varla til að prófa neitt annað. Listagalleríið og umhverfisáherslur með 90% flokkun og fleiru voru í anda litla Stokkhólms sem Laugarneshverfið er stundum kallað,“ segir Kristín og brosir.

Kaffi Laugalækur stendir við Laugalæk 74, í Laugarnesinu í Reykjavík.
Kaffi Laugalækur stendir við Laugalæk 74, í Laugarnesinu í Reykjavík. Ljósmynd/Aðsend

Heiðruðu tenginguna við Verðlistann

Fyrir í húsnæðinu var kvenfataverslun Verðlistans og hafði verið á sölu í um það bil ár.

„Húsnæðið var rúmt og gott með góðum gluggum. Staðsetningin er heillandi í hjarta Laugarness en þó í nálægð við helstu stofnæðir höfuðborgarsvæðisins, Kringlumýrarbraut og Sæbraut. Þar sem verslunin hét Verðlistinn Laugalæk lá beinast við að kalla staðinn Kaffi Laugalæk. Við höfum ávallt kallað matseðilinn Verðlista til að heiðra tenginguna við Verðlistann. Staðurinn opnaði 9. september árið 2016. Við opnuðum einnig gistihús á efri hæðinni og leigðum Pylsumeistaranum aðstöðu.

Fyrst til að byrja með vorum við meira kaffihús en svo hefur matseðillinn stækkað og Kaffi Laugalækur orðinn kaffimatbar. Til að byrja með var staðurinn lítið sóttur á kvöldin en nú er mesta umferðin í kvöldmat og fram eftir kvöldi. Viðskiptavinir okkar segja að Kaffi Laugalækur sé einn af fáum stöðum sem er opinn á kvöldin alla daga og hægt sé tala saman á.“

Kristín segir að helstu áherslurnar séu fyrst og fremst að bjóða upp á mat í hollari kantinum og gerðan frá grunni.

„Við höfum valið vörur beint frá býli og við höfum ávallt verið með mat sem er í hollari kantinum oggerður frá grunni, það hefur haldist frá byrjun. Okkur þykir vænt um samstarfið við kaffimeistarann úr Laugarnesi með sérvaldar baunir, sauðfjárbændurna í Skagafirði með lífrænt vottað lambakjöt, nautabóndann úr Hvalfirði, silungsbóndann í Mývatnssveit, bjórbruggara Laugardals, bakara Laugarness, kombucha-bruggara Laugardals og grænmetisbóndann í Mosfellsdalnum.

Að sjálfsögðu þurfum við líka að versla hjá stóru heildverslunum en lykilhráefni eru beint frá býli. Kaffið okkar er sérinnflutt af kaffibrennslunni Kvörn og Lækur pilsner frá Rvk Brew þykir af mörgum einn sá besti sem fólk hefur smakkað,“ segir Kristín og bætir við að hún sé stolt af því að hafa getið haldið í þessa sérstöðu staðarins.

Heimilislegt og notalegt er inni á Kaffi Laugalæk.
Heimilislegt og notalegt er inni á Kaffi Laugalæk. Ljósmynd/Aðsend

Majó bakari bakar kökurnar

„Eftir opnun uppgötvuðum við að einn af nýju fastakúnnunum okkar var bakari að mennt, Majó bakari. Ekki leið á löngu þar til hann var farinn að baka kökur fyrir kaffihúsið og gerir enn en hann er með aðsetur í eldhúsi í Listaháskólanum í Laugarnesi. Kökurnar hans Majó bakara eru mjög ávanabindandi, sérstaklega gulrótarkakan hans sem fólk kemur aftur og aftur til að fá sér. Við þróuðum með honum hráköku, hollustu súrdeigs- og gerlausa pítsubotna sem völ er á og vegan-múffur.“

Kristín segir að fastakúnnahópurinn þeirra sé mjög tryggur. „Fyrr á daginn kemur oft fólk sem hittist í vinnutengdum erindum og vill fá sér gott kaffi eða hádegismat. Oft koma foreldrar í fæðingarorlofi og nýta sér barnahornið. Margir eldri borgarar koma yfir daginn en við höfum kynnst sumum svo mikið að við höfum aðstoðað þau við að komast til læknis eða hjálpað þeim við ýmis mál.

Seinni partinn kemur fólk í gleðistund og þar er fastakúnnahópurinn þéttur. Vinahópar, saumaklúbbar, fjölskyldur, hlaupahópar, körfuboltafélagar og foreldrahópar, svo fátt sé nefnt, koma svo gjarnan í kvöldmat eða hitting eftir mat. Við erum með sal þar sem barnahornið og listagalleríið er staðsett sem við leigjum stundum út fyrir einkaviðburði,“ segir Kristín og bætir við: „Fastakúnnarnir þekkja orðið starfsfólkið vel og gefa þeim jafnvel handprjónaða vettlinga eða smákökur fyrir jólin sem okkur þykir fallegt.

Mörg pör á fyrsta stefnumótið á Kaffi Laugalæk

Það er ótrúlega gaman að hugsa til þess hvað það hefur margt gerst á staðnum okkar. Við þekkjum nokkur pör sem fóru á fyrsta stefnumótið á Kaffi Laugalæk og eru nú gift og eiga börn. Rithöfundar hafa skrifað bækur hjá okkur, handrit af þáttum hafa verið skrifuð, viðtöl tekin upp, vinskapur myndast, bónorð kveðin upp og margt fleira.“

Við áætlum að um 90% viðskiptavina séu heimamenn. Margir eru úr hverfinu því það er vissulega hentugt að geta gengið heim eftir að hafa fengið sér einn öl eða tvo.

Staðsetning staðarins hefur mikið að segja að mati Kristínar en Laugalækur er aðalgata meðverslunarkjarna, kjörbúð, Pylsumeistarann, Matland, bakarí, Listaháskólann, fiskbúð og ísbúðir þannig að það er skemmtilega flóru að finna á þessu svæði. Einnig er stutt í helstu samgönguæðar áfram í fleiri hverfi.

Kaffihúsastíllinn er ríkjandi á staðnum.
Kaffihúsastíllinn er ríkjandi á staðnum. Ljósmynd/Aðsend

Eins og að ala upp barn

Nú hafi þið ákveðið að selja, hvernig tilfinning er það að selja stað sem þið hafið hlúð að í nærri áratug?

„Allt hefur sinn enda en við höfum unnið mjög mikið í rekstrinum sjálf, sérstaklega Kristín, undanfarin ár. Að eiga fjölskyldufyrirtæki er eins og að eiga barn og ala upp, svo þarf að geta sleppt takinu. Við breyttum fataverslun í veitingastað það var heljarinnar verkefni. Við höfum oft rekið okkur á en alltaf staðið upp og reynt að bæta okkur og þróa. Kaffi Laugalækur er einn vinsælasti staðurinn á höfuðborgarsvæðinu og oft mjög mikið að gera. Okkur finnst við hafa skilað okkar og nú mega aðrir taka við ævintýrinu. Það eru góð tækifæri fyrir nýjan aðila í stækkandi hverfi með vinsælan stað,“ segir Björn meyr.

„Það er góður andi í þessu húsi, Verðlistinn var rekinn þarna í 50 ár á sömu kennitölu, Kaffi Laugalækur í níu ár á sömu kennitölu. Við höfum verið mjög heppin með starfsfólk sem við erum óendanlega þakklát fyrir. Margir starfsmenn hafa unnið hjá okkur í mörg ár,“ segir Kristín og bætir við að þau muni sakna viðskiptavinanna og starfsfólksins.

En mikið af þeim tengslum mun halda áfram. Við erum tilbúin fyrir næsta kafla og vonum innilega að einhver geggjaður rekstraraðili komi og haldi áfram góða andanum. Við þökkum stuðning frá fastakúnnum og nágrönnum sem hefur verið ómetanlegur. Það hefur sannarlega skapast gott andrúmsloft á staðnum og góður vinskapur. Án þessa samfélags væri staðurinn ekki sá sem hann er í dag,“ segja Kristín og Björn að lokum.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert