Sindri er búinn að skila – sjáið myndirnar

Sindri Guðbrandur Sigurðsson búinn að skila öllu sínu og nú …
Sindri Guðbrandur Sigurðsson búinn að skila öllu sínu og nú er beðið eftir verðlaunaafhendingu. Samsett mynd

Sindri Guðbrandur Sigurðsson fulltrúi Íslands hefur lokið keppni í Bocuse d´Or, stærstu og virtustu einstaklingsmatreiðslukeppni í heimi, og skilað sínum verkum til dómnefndar með glæsibrag. Það styttist óðum í úrslitin og spennan er í hámarki.

Hér má sjá réttina hans Sindra sem eru bornir fram með glæsilegum hætti á listrænan og fágaðan hátt. Lýsingin á diska- og fataþemanum er afar falleg og hefur skírskotun í íslenska náttúru.

Diskaþemanu hjá Sindra er lýsingin eftirfarandi: „Innblásið af íslenska þjóðarblóminu, Holtasóleyjinni, átta blaða fjallaháfunum, sem vex villt um alla eyjuna, taka þeir á móti áskorunum breytts heims. Sem Íslendingar hafa hinar hörðu öfgar lífsins í Norður-Atlantshafi hafa ekki aðeins kennt þeim að aðlagast heldur líka stuðlað að nýsköpun. Þetta skapandi eðli, sem er djúpt tengt náttúrunni, er hvatning fyrir allt sem þeir gera.“

Fataþemanu hjá Sindra er lýsingin eftirfarandi: „Þeir færa þér töfrandi landslag Íslands á fatið. Að vera fæddur og uppalinn á lítilli eyju hefur ekki aðeins kennt þeim að aðlagast heldur líka stuðlað að nýsköpun. Tengsl þeirra við náttúruna eru hvatning fyrir allt sem þeir gera. Það er mjög mikilvægt fyrir þá að virða innihaldsefnin. Líffræðileg efni úr íslenskri náttúru tengja þau við náttúrukerfin sem halda þeim uppi og rætur þess staðar sem þau kalla heim.“

Myndirnar sem hér fyrir neðan tala sínu máli.

 

 

Einbeittur við framreiðsluna.
Einbeittur við framreiðsluna. Ljósmynd/Aðsend
Hvert smáatriðið skiptir sköpun.
Hvert smáatriðið skiptir sköpun. Ljósmynd/Aðsend
Diskurinn hjá Sindra.
Diskurinn hjá Sindra. Ljósmynd/Aðsend
Þvílíkt list að sjá framsetninguna á fatinu.
Þvílíkt list að sjá framsetninguna á fatinu. Ljósmynd/Aðsend
Réttirnir bornar fram á lisrænan hátt.
Réttirnir bornar fram á lisrænan hátt. Ljósmynd/Aðsend
Töfrarnir í eldhúsinu.
Töfrarnir í eldhúsinu. Ljósmynd/Aðsend
Gullfallegt.
Gullfallegt. Ljósmynd/Aðsend
Sindri ásamt aðstoðamanni sínu Hinriki Erni í eldhúsinu.
Sindri ásamt aðstoðamanni sínu Hinriki Erni í eldhúsinu. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert