Sindri í 8. sæti Bocuse d´Or

Sindri Guðbrandur Sigurðsson lenti í 8. sæti Bocuse d´Or sem …
Sindri Guðbrandur Sigurðsson lenti í 8. sæti Bocuse d´Or sem er virtasta matreiðslukeppni í heimi. Aðstoðarmaður hans í eldhúsinu var Hinrik Örn Halldórsson. Samsett mynd

Sindri Guðbrand­ur Sig­urðsson náði 8. sæti í Bocu­se d´Or, heims­meist­ara­keppni ein­stak­linga í mat­reiðslu, sem hald­in var í Lyon dag­ana 26.-27. janú­ar.

Úrslit­in voru til­kynnt í gær pomp og prakt klukk­an 17.30 á ís­lensk­um tíma. Alls kepptu 24 þjóðir til úr­slita eft­ir að hafa unnið sér inn þátt­töku­rétt í undan­keppn­um í sín­um heims­álf­um. Full­trúi Frakk­lands vann til gull­verðlauna, full­trúi Dan­merk­ur var í 2. sæti og full­trúi Svíþjóðar í 3. sæti.

Eins og fram hef­ur komið á mat­ar­vef mbl.is er Bocu­se d´Or virt­asta mat­reiðslu­keppni í heimi og eru þátt­tak­end­ur meðal fremstu mat­reiðslu­manna sinna landa. Keppn­in er því hörð og mikl­ar kröf­ur gerðar til kepp­enda.

Viktor Örn Andrésson, Sigurjón Bragi Geirsson, Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Hinrik …
Vikt­or Örn Andrés­son, Sig­ur­jón Bragi Geirs­son, Sindri Guðbrand­ur Sig­urðsson, Hinrik Örn Hall­dórs­son og Þrá­inn Freyr Vig­fús­son voru kampa­kát­ir eft­ir dag­inn í gær. Ljós­mynd/Þ​rá­inn Freyr Víg­fús­son

Glæsi­leg­ur ár­ang­ur

„Sindri hafði 5 ½ klukku­stund til þess að mat­reiða fisk­rétt og kjö­trétt fyr­ir 24 dóm­ara. Afrakst­ur­inn var sann­kallað lista­verk og var ann­ars veg­ar bor­inn fram á fal­leg­um disk­um og hins veg­ar á glæsi­legu silf­urfati. Allt gekk sam­kvæmt áætl­un eins og við höf­um æft margsinn­is fyr­ir keppn­ina,“ seg­ir Sig­ur­jón Bragi Geirs­son, þjálf­ari Sindra.

Sindri, Hinrik Örn Hall­dórs­son, aðstoðarmaður hans og Sig­ur­jón eru all­ir hæst­ánægðir með úr­slit­in. Þjálf­ari Sindra, Sig­ur­jón, er fyrr­um Bocu­se d´Or kepp­andi 2023 og þekk­ir því vel til keppn­inn­ar. Dóm­ari Íslands var Þrá­inn Freyr Vig­fús­son, fyrr­um Bocu­se d´Or kepp­andi, en hann tók þátt árið 2011.

Hinrik Örn Halldórsson aðstoðarmaður Sindra í eldhúsinu.
Hinrik Örn Hall­dórs­son aðstoðarmaður Sindra í eld­hús­inu. Ljós­mynd/Þ​rá­inn Freyr Vig­fús­son

Íslend­ing­ar hafa náð góðum ár­angri í keppn­inni

Líkt og áður hef­ur komið fram hef­ur heims­meist­ara­keppn­in Bocu­se d‘Or verið hald­in síðan árið 1987 en fyrsti ís­lenski kepp­and­inn tók þátt árið 1999. Það var Sturla Birg­is­son og náði hann fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslend­ing­ar ávallt verið í tíu efstu sæt­un­um en best­um ár­angri náði Há­kon Már Örvars­son árið 2001 og Vikt­or Örn Andrés­son árið 2017; þeir náðu báðir í bronsverðlaun.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert