„Ekkert jafnast á við ömmumat“

Sigrún Ásta Jörgensen flettir ofan af sínum helstu matarvenjum og …
Sigrún Ásta Jörgensen flettir ofan af sínum helstu matarvenjum og fleiru fyrir lesendum að þessu sinni. Ljósmynd/Aðsend

Sigrún Ásta Jörgensen, stílisti og sminka, flett­ir ofan af mat­ar­venj­um sín­um að þessu sinni. Hún er hald­in mik­illi mat­ar­ásten það spegl­ast helst í ást henn­ar á líf­ræn­um mat. Svo veit hún ekk­ert betra en að fá ömmu mat, það er besti mat­ur­inn sem hún fær.

Sigrún er vön að hafa marga bolta á lofti og starf henn­ar felst gjarn­an í því að gera marga hluti í einu. Hún byrjaði ný­verið með lit­greinaþjón­ustu og nýt­ur sín í því hlut­verki að lit­greina fólk.

Sigrún Ásta starfar sem stílisti og sminka og hefur unnið …
Sigrún Ásta starfar sem stílisti og sminka og hef­ur unnið ófá verk­efni í tengsl­um við það. Ljós­mynd/​Aðsend

„Mér finnst ein­stak­lega gam­an að fá að lit­greina fólk og hjálpa því að finna sína pall­ettu. Það er ótrú­lega gef­andi líka og fer vel með öðrum verk­efn­um sem ég vinn að sem stílisti og sminka,“ seg­ir Sigrún.

Sigrún undirbýr módelið fyrir myndatöku.
Sigrún und­ir­býr mód­elið fyr­ir mynda­töku. Ljós­mynd/​Aðsend

Reyni að vera með líf­ræn­an mat

Sigrún seg­ir að það sé oft nóg að gera á heim­il­inu hjá henni og eig­in­manni henn­ar, Dav­id Young, en þau eiga eina dótt­ur, Líf, og tví­bura­dreng­ina Bent og Geor­ge. Mat­ar­tím­arn­ir eru gæðastund­ir fjöl­skyld­unn­ar og Sigrún reyn­ir að velja vandað og gott hrá­efni fyr­ir sig og sína.

„Ég reyni eft­ir bestu getu að vera með líf­ræn­an mat og hugsa mikið út í það sem ég set ofan í mig og fjöl­skyld­una mína. Ég er ekki að kaupa mat með mikið af auka­efn­um og það er nán­ast allt líf­rænt sem kem­ur inn á heim­ilið. Það skipt­ir mig mjög miklu máli að hafa mat­inn eins hrein­an og hægt er. Einnig reyni ég að kaupa ís­lenskt og velja hágæða vör­ur,“ seg­ir Sigrún.

Aðspurð seg­ist Sigrún elska að prufa sig áfram í mat­ar­gerð heima í eld­hús­inu. „Hjón­in höf­um líka gam­an að því að fara út að borða og prófa nýja spenn­andi rétti. Varðandi mat þá verð ég samt að segja að það jafn­ast ekk­ert á ömm­umat, það er besti mat­ur sem ég get fengið,“ seg­ir Sigrún dreym­in á svip.

Sigrún Ásta leggur áherslu á að vera með lífrænan mat …
Sigrún Ásta legg­ur áherslu á að vera með líf­ræn­an mat fyr­ir sig og fjöl­skyld­una. Ljós­mynd/​Aðsend

Fasta stund­um til há­deg­is

Sigrún tók sér smá tíma af­lögu til að svara nokkr­um praktísk­um spurn­ing­um um mat­ar­venj­ur síðan á milli verk­efna.

Hvað færðu þér í morg­un­mat?

„Oft­ast er það hafra­graut­ur úr trölla­höfr­um með chia­fræj­um, hör­fræj­um, kasjúhnet­um, möndl­um, trönu­berj­um og svo möndl­u­smjöri ofan á ásamt grískri jóg­úrt hliðina eða grænsafa. Einnig er ég byrjuð að fasta stund­um til há­deg­is þegar ég er ekki í vinnutörn.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Já, held­ur bet­ur, ég er al­gjör snarlari og það er mjög erfitt fyr­ir mig að hætta að narta svona á milli mála. Ég fæ mér oft­ast líf­rænt hrískex með dökku súkkulaði, toppað með möndl­u­smjöri og ban­ana. Síðan eru það stund­um hnet­ur sem verða fyr­ir val­inu.“

Finnst þér ómiss­andi að borða há­deg­is­verð?

„Já, mjög oft en ef ég er að borða mat­ar­mik­inn morg­un­mat fæ ég mér létt­an há­deg­is­mat. Ég er með tvær regl­ur fyr­ir mig þegar það kem­ur að mat, ég borða ekki fyr­ir en ég orðin svöng og stoppa þegar ég orðin södd. Ég borða aldrei meira en ég þarf, svo finnst mér þetta oft fara eft­ir því hvort ég sé búin að borða vel um morg­un­inn eða ekki. Til að mynda ef ég myndi borða mat­ar­mikla máltíð í há­deg­inu þá er ég að fá mér létt­an kvöld­verð. Mjög lík­lega væri ég enn frek­ar vel södd eft­ir há­deg­is­mat­inn um kvöld­mat­ar­leytið.“

Hvað áttu alltaf til í ís­skápn­um?

„Egg, ost, fjör­mjólk og möndl­umjólk.“

Ekki hrif­in af hrút­spung­um

Ferðu á Þorra­blót?

„Ég er ný­byrjuð að fara og var mjög spennt fyr­ir að fara á Kópa­vogsþorra­blótið sem var um helg­ina. Ég fór með ynd­is­leg­um vin­kon­um og það var tryllt stuð.“

Borðar þú þorramat?

„Já, en ég er ekki hrif­in af hrút­spung­un­um eða sviðakjöm­un­um.“

Hvað finnst best af þorramatn­um?

„Hangi­kjötið, lifr­ar­pyls­an og rúg­brauðið.“

Þegar þú ætl­ar að gera vel við þig í mat og drykk og vel­ur veit­ingastað til að

fara: á hvert ferðu?

„Veit­ingastaður­inn OTO er í al­gjöru upp­á­haldi hjá mér, Siggi Lauf­dal yfir­kokk­ur veit ná­kvæm­lega hvað hann er að gera. Upp­á­halds­mat­ar­upp­lif­an­irn­ar mín­ar ger­ast þar.“

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Það er að sjálf­sögðu pepp­eróni, döðlur, rjóma­ost­ur og pip­ar. Síðan toppa ég pítsuna með hvít­lauk­sol­íu.“

Hvað færð þú þér á pyls­una þína?

„Steikt­an lauk, chili tóm­asósu og sinn­ep upp og niðri, al­gjör­lega ómiss­andi.“

Næt­ur­söltuð ýsa með soðnum kart­öfl­um og smjör

Hver er upp­á­halds­rétt­ur­inn þinn?

„Það er erfitt að velja úr en verð að segja að klass­ík­in vinni, næt­ur­söltuð ýsa með soðnumkart­öfl­um og smjöri mun alltaf verða fyr­ir val­inu hjá mér.“

Hvort vel­ur þú kart­öfl­ur eða sal­at á disk­inn þinn?

„Alltaf sal­at, elska ferskt og gott sal­at.“

Upp­á­halds­drykk­ur­inn þinn?

„Eins og er það tvö­fald­ur latte með möndl­umjólk.“

Fyr­ir áhuga­sama er hægt að fylgj­ast með verk­efn­um Sigrún­ar á In­sta­gram reikn­ing­um henn­ar hér og á heimasíðu henn­ar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert