„Aldrei hitt manneskju sem finnst súkkulaði vont“

Ágúst Þór Brynjarsson tónlistarmaður ljóstrar upp skemmtilegum staðreyndum um matarvenjur …
Ágúst Þór Brynjarsson tónlistarmaður ljóstrar upp skemmtilegum staðreyndum um matarvenjur sínar að þessu sinni. Ljósmynd/Aðsend

Ágúst Þór Brynj­ars­son tón­list­armaður ljóstr­ar upp skemmti­leg­um staðreynd­um um mat­ar­venj­ur sín­ar að þessu sinni. Hann er mik­ill sæl­keri og hef­ur mikið dá­læti af bröns­rétt­um.

Síðustu vik­ur og dag­ar hafa verið anna­sam­ir hjá Ágústi en hann er einn af kepp­end­un­um sem eru að keppa í Söngv­akeppn­inni 2025. Hann stíg­ur á svið í fyrri undanúr­slit­un­um á laug­ar­dag­inn, 8. fe­brú­ar næst­kom­andi. Hann er 25 ára gam­all og bú­sett­ur á Ak­ur­eyri.

„Sviðsnafnið mitt er ÁGÚST og ég starfa sem tón­list­armaður. Ég er að syngja með tveim­ur hljóm­sveit­um, Stuðlaband­inu og Færi­band­inu frá Ak­ur­eyri, ásamt því að vinna í mín­um sóló ferli sem ÁGÚST. Það held­ur bet­ur í full­um gangi með þátt­töku minni í Söngv­akeppn­inni,“ seg­ir Ágúst sem er orðinn mjög spennt­ur fyr­ir laug­ar­dags­kvöld­inu.

Ágúst syngur með tveimur hljómsveitum, Stuðlabandinu og Færibandinu frá Akureyri, …
Ágúst syng­ur með tveim­ur hljóm­sveit­um, Stuðlaband­inu og Færi­band­inu frá Ak­ur­eyri, ásamt því að vinna í sín­um sóló ferli sem ÁGÚST. Ljós­mynd/​Aðsend

Elsk­ar góðan bröns

Hann deil­ir hér með les­end­um mat­ar­vefs­ins skemmti­leg­um staðreynd­um um mat­ar­venj­ur sín­ar.

Hvað færðu þér í morg­un­mat?

„Ég fæ mér eig­in­lega aldrei morg­un­mat. Ég er samt svaka­leg­ur bröns-karl. Ég elska góðan bröns með fjöl­skyld­unni eða vin­um. Egg og bei­kon, löðrandi síróp á pönnu­kök­ur og jarðarber með fersk­um safa eða svörtu kaffi. Það má segja að ég vilji annaðhvort allt eða ekk­ert í morg­un­mats­geir­an­um.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Ég er rosa innstillt­ur í alls kon­ar próteinstykkj­um þessa dag­ana, ég er alltaf að grípa próteinstykki úr búðar­hill­un­um og prófa ým­iss kon­ar brögð því nóg er nú til af þess­um „hollu“ stykkj­um.“

Finnst þér ómiss­andi að borða há­deg­is­verð?

„Já, mér finnst það. Aðallega vegna þess að hann er oft­ar en ekki fyrsta máltíð dags­ins hjá mér svo hann er al­gjör­lega ómiss­andi.“

Hvað áttu alltaf til í ís­skápn­um?

„Ég á alltaf til bláa Hleðslu. Ég drekk ávallt eina Hleðslu á dag að minnsta kosti og gríp með mér „six pack“ af henni í hverri ein­ustu búðarferð.“

Borðar ekki þorramat

Borðar þú þorramat?

„Mér finnst sorg­legt að segja það sem Aðal­dæl­ing­ur og stolt­ur lands­byggðargóm­ur, að ég borða ekki þorramat, ekki neinn ein­asta. Ég gæti falið mig á bak við það að hangi­kjöt er nú ávallt á boðstóln­um á þeim blót­um sem ég hef farið á, borða ég. En ég ætla nú ekki að fara setja það á sama stall og þenn­an hefðbundna þorramat.“

Þegar þú ætl­ar að gera vel við þig í mat og drykk og vel­ur veit­ingastað til að fara á, hvert ferðu?

„Það er minn upp­á­haldsveit­ingastaður heima á Ak­ur­eyri, Múla­berg. Frá­bær mat­ur og geggjuð aðstaða, ég elska að sitja í sóf­un­um þar með mín­um bestu vin­um og tuða þar í alltof lang­an tíma.“

Er á döðluvagn­in­um

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Ég er á döðluvagn­in­um þegar kem­ur að því að velja hvað á að setja á pítsurn­ar sem finnst mér vera enda­laus bar­átta því þar eru ekki all­ir sam­mála mér. Mér er í raun al­veg sama hvað er sett á pítsurn­ar, svo lengi sem það eru döðlur og þá er ég sátt­ur. Ég veit ekki hvað það er en mér finnst bara döðlur á pítsur óend­an­lega góð blanda.“

Hvað færð þú þér á pyls­una þína?

„Það myndi vera steikt­ur og hrár lauk­ur, tóm­atsósa og pyls­us­inn­ep. Svo ef ég skelli mér í pylsu á ein­hverri N1-stöð þá hef ég hina rosa­legu hefð að setja alltaf sósu ofan á sem heit­ir „pylsusósa“. Ég veit ekki enn þá hvernig sósa það er og hvað er í henni, og ég hef ekki held­ur rek­ist á hana í búðum svo það er alltaf svona bón­us þegar hún dett­ur inn.“

Hver er upp­á­halds­rétt­ur­inn þinn?

„Gaml­árs­kvöldskalk­ún­inn og upp­rúllaði brauðhumar­inn hjá tengdó er bara eitt­hvað sem ég á erfitt með að ræða. Blanda af sorg, reiði og tóm­leika blúss­ar upp þegar ég átta mig á því að þetta er mat­ar­viðburður sem er bara einu sinni á ári, ólýs­an­lega gott.“

Sveitaeðlið í mér tek­ur yfir

Hvort vel­ur þú kart­öfl­ur eða sal­at á disk­inn þinn?

„Þessi spurn­ing er djúp en samt svo ein­föld. Þegar ég byrja að pæla í því þá held ég að kart­öfl­urn­ar lendi oft­ar á diskn­um en sal­at. Það er senni­lega sveitaeðlið í mér sem tek­ur yfir þar.“

Finnst þér súkkulaði gott?

„Já, mér finnst súkkulaði mjög gott. Ég held að ég hafi aldrei hitt mann­eskju sem finnst súkkulaði vont, eru þær til?“

Hef­ur þú borðað á Michel­in-stjörnu­veit­ingastað?

„Það hef ég aldrei gert. Það væri al­veg pottþétt gam­an að prófa en ég er samt alls ekki þannig mat­gæðing­ur að mér finn­ist ég þurfa að gera það. Ég er meira fyr­ir að borða hratt og fara að gera eitt­hvað skemmti­legt. Þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki beint maður­inn sem er til í að sitja kyrr og njóta. Ég er meira fyr­ir að vera í stans­lausu stuði svo að mat­ur­inn sjálf­ur er sjaldn­ast aðal­atriðið hjá mér, sem ég geri ráð fyr­ir að sé á Michel­in-veit­inga­stöðum.“

Hver er upp­á­halds­drykk­ur­inn þinn?

„Ég verð að segja að minn upp­á­halds sé ís­kald­ur lite-bjór á krana, hjá mín­um allra bestu Skóg­ar­böðunum á Ak­ur­eyri. Um­hverfið og hit­inn ger­ir kalda bjór­inn bara eitt­hvað svo miklu betri,“ seg­ir Ágúst og er á hraðferð á næstu æf­ingu en bæt­ir við:

„Að lok­um lang­ar mig að biðja les­end­ur til að stilla á RÚV næst­kom­andi laug­ar­dags­kvöld þegar Söngv­akeppn­in hefst og svo er um að gera að skella í at­kvæði á 900-9903.“

Ágúst er orðinn spenntur fyrir komandi Söngvakeppni á laugardaginn og …
Ágúst er orðinn spennt­ur fyr­ir kom­andi Söngv­akeppni á laug­ar­dag­inn og fær sér ef­laust bláa Hleðslu áður en hann stíg­ur á svið. Ljós­mynd/​Aðsend

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert