Þessir urðu Íslandsmeistarar í matreiðslu- og framreiðslugreinum um helgina

Íslandsmót í matreiðslu- og framreiðslugreinum nema- og ungsveina í veitingageiranum …
Íslandsmót í matreiðslu- og framreiðslugreinum nema- og ungsveina í veitingageiranum fór fram um helgina í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Ljósmynd/Aðsend

Þrír framúrsk­ar­andi iðnnem­ar urðu Íslands­meist­ar­ar í mat­reiðslu- og fram­reiðslu­grein­um nema- og ung­sveina í veit­inga­geir­an­um um helg­ina sem fram fór í Hót­el- og mat­væla­skól­an­um í Kópa­vogi.

Þetta voru þeir Andrés Björg­vins­son sem varð Íslands­meist­ari í mat­reiðslu, Daní­el Árni Sverris­son í fram­reiðslu og Ásbjörn Geirs­son í kjötiðn.

Keppn­in er afar mik­il­væg­ur vett­vang­ur fyr­ir ungt fólk í mat­reiðslu- og fram­reiðslu­grein­um þar sem reyn­ir á fag­mennsku, ná­kvæmni, skap­andi eig­in­leika og seiglu. Dóm­ar­ar höfðu orð á að sjald­an hefði valið verið jafn erfitt og í ár.

Sautján kepp­end­ur í mat­reiðslu

Alls kepptu sautján í mat­reiðslu og Andrés Björg­vins­son stóð uppi sem Íslands­meist­ari. Nem­ar árs­ins voru Mar­lís Jóna Þór­unn Karls­dótt­ir og Sindri Hrafn Rún­ars­son. Í for­rétt unnu kepp­end­ur með rauðsprettu, ís­lensk­ar rækj­ur og græn­an asp­as og í aðal­rétt var verk­efnið að elda grísa­lund og grís­asíðu, jarðskokka og dökka soðsósu. Í mat­reiðslu var Jakob Hörður Magnús­son yf­ir­dóm­ari og smakk­dóm­ari. Smakk­dóm­ar­ar voru Ólöf Jak­obs­dótt­ir og Hall­grím­ur Friðrik Sig­urðar­son og eld­hús­dóm­ar­ar þeir Rafn Heiðar Ing­ólfs­son og Kjart­an Marínó Kjart­ans­son.

Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir nemi ársins í matreiðslu, Andrés Björgvinsson …
Mar­lís Jóna Þór­unn Karls­dótt­ir nemi árs­ins í mat­reiðslu, Andrés Björg­vins­son Íslands­meist­ari í mat­reiðslu og Sindri Hrafn Rún­ars­son sem einnig fékk titil­inn nemi árs­ins líkt og Mar­lís. Ljós­mynd/​Aðsend

Viðamik­il og spenn­andi keppni í fram­reiðslu

Fimm kepptu í fram­reiðslu og stóð Daní­el Árni Sverris­son uppi sem Íslands­meist­ari í grein­inni. Nem­ar árs­ins voru Trist­an Tóm­as­son og Sil­vía Louise Ein­ars­dótt­ir. Verk­efn­in voru viðamik­il og hefðbund­in að vanda.

Nem­ar drógu um tvo kokteila, spreyttu sig á vín­pör­un, dekkuðu fyr­ir fjög­urra rétta kvöld­verð, unnu blóma­skreyt­ingu, gerðu tíu mis­mun­andi serví­ettu­brot, greindu 10 mis­mun­andi glös af styrkt­um vín­um og um­helltu víni. Þá þurftu kepp­end­ur að sýna fram á færni á fyr­ir­sk­urði og diska upp fyr­ir fram­an dóm­ara auk þess að sýna ávaxta­sk­urð og eld­steik­ingu. Dóm­ar­ar voru Sig­urður Borg­ar Ólafs­son og Axel Árni Her­berts­son.

Daníel Árni Sverrisson hlaut Íslandsmeistaratitilinn í framreiðslu, Sveinn Gabríel Bjarnason, …
Daní­el Árni Sverris­son hlaut Íslands­meist­ara­titil­inn í fram­reiðslu, Sveinn Gabrí­el Bjarna­son, Davíð Stef­áns­son og Sil­vía Louise Ein­ars­dótt­ir sem einnig var val­in nemi árs­ins. Ljós­mynd/​Aðsend

Vandað til verka í kjötiðn

Kepp­end­ur í kjötiðn vönduðu til verka og fengu gæðahrá­efni í hend­ur. Tveir kepptu í kjötiðn og varð Ásbjörn Geirs­son Íslands­meist­ari og nemi árs­ins var Friðrik Björn Friðriks­son.

Verk­efn­in fólu í sér að verka lamba­læri, lambahrygg, ½ frampart, 1 stk. grísa­frampart, 1 stk. nautamjöðm, 1 stk. nautafram­hrygg og 1 stk. kjúk­ling sem kepp­end­ur áttu að vinna eft­ir eig­in hug­mynd­um. Dóm­ar­ar í kjötiðn voru Stefán Ein­ar Jóns­son og Jó­hann­es Núma­son.

Ásbjörn Geirsson varð Íslandsmeistari í kjötiðn og Friðrik Björn Friðriksson …
Ásbjörn Geirs­son varð Íslands­meist­ari í kjötiðn og Friðrik Björn Friðriks­son nemi ár­is­ins í fag­inu. Ljós­mynd/​Aðsend

Styrkt­araðilar eru mik­il­væg­ir mátt­ar­stólp­ar

Pét­ur Arn­ar Pét­urs­son frá Iðunni, ann­ar þeirra sem sjá um um­gjörð og skipu­lag keppn­inn­ar, seg­ir að án komu styrkt­araðila væri ekki mögu­legt að halda svona öfl­ugt Íslands­mót og þeir skiptu miklu máli fyr­ir móts­hald­ara sem og kepp­end­ur.

Styrkt­araðilar keppn­inn­ar í ár voru Esja, Gæðafæði, Bako Versl­un­ar­tækni, Ekr­an, Expert og Hafið Fisk­versl­un en þeir sáu um að kepp­end­ur fengju gæðahrá­efni og góðan aðbúnað til að vinna með í keppn­inni.

Um­gjörð og skipu­lagn­ing keppn­inn­ar var í hönd­um Magnús­ar Arn­ar Friðriks­son­ar hjá Mat­vís og Pét­urs Arn­ar Pét­urs­son­ar hjá Iðunni.

Mat­ar­vef­ur­inn ósk­ar Íslands­meist­ur­un­um inni­lega til ham­ingju með titl­ana.

 

Alls tóku 17 nemar þátt í matreiðslukeppninni.
Alls tóku 17 nem­ar þátt í mat­reiðslu­keppn­inni. Ljós­mynd/​Aðsend
Hvert smáatriði skiptir sköpun í framsetningu á disk.
Hvert smá­atriði skipt­ir sköp­un í fram­setn­ingu á disk. Ljós­mynd/​Aðsend
Vandað við framsetningu réttanna,
Vandað við fram­setn­ingu rétt­anna, Ljós­mynd/​Aðsend
Framreiðslunemarnir gerðu til að mynda tvo kokteila sem þeir drógu …
Fram­reiðslu­nem­arn­ir gerðu til að mynda tvo kokteila sem þeir drógu um í keppn­inni. Ljós­mynd/​Aðsend
Kjötiðn er ein af þeim þrem greinum sem keppt var …
Kjötiðn er ein af þeim þrem grein­um sem keppt var í. Ljós­mynd/​Aðsend
Forseti Klúbbs matreiðslumeistara sá um að veita verðlaun og viðurkenningar …
For­seti Klúbbs mat­reiðslu­meist­ara sá um að veita verðlaun og viður­kenn­ing­ar til nem­enda sem tóku þátt´i mat­reiðslu­keppn­inni. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert