Langar þig í jarðarberjamjólkurhristing sem er í hollari kantinum? Þá er þetta málið, jarðarberjahristingur toppaður með dökkum súkkulaðibitum. Kristjana Steingrímsdóttir, betur þekkt undir nafninu Jana, gerði þennan dásamlega hristing í tilefni ástardaganna sem nú eru í gangi. Þetta er líka góður drykkur til að hefja sunnudaginn á og gleðja líkama og sál um leið.
Þetta er ekta morgunverður til að njóta með ástinni.
Ljósmynd/Kristjana Steingrímsdóttir
Jarðarberjahristingur toppaður með dökkum súkkulaðibitum
- 1 bolli frosin jarðarber
- 1 frosinn banani
- 1 msk. kollagen / prótein að eigin vali
- 2 msk. hampfræ
- 1 -2 msk. möndlusmjör
- 1 + 1/4 bolli vatn
- Dökkt súkkulaði, smátt saxað
Aðferð:
- Setjið allt hráefnið nema súkkulaðið saman í góðan blandara og blandið vel.
- Hellið í viðeigandi glös.
- Toppið með dökku hágæða súkkulaði sem búið er að saxa smátt.
- Berið fram og njótið.