Kokkalandsliðið og Íslandshótel í samstarf

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavík og þjálfari …
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavík og þjálfari Kokkalandsliðsins, Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumanna, Sævar Karl Kristinsson, yfirmaður veitingasviðs Íslandshótela, og Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela við undirritun samstarfssamningsins. Ljósmynd/Aðsend

Kokkalandsliðið skrifaði nýverið undir bakhjarlasamning við stærstu hótelkeðju landsins, Íslandshótel, sem á og rekur 17 hótel og veitingastaði um allt land. Sævar Karl Kristinsson, yfirmaður veitingasviðs Íslandshótela, og Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, undirrituðu samninginn við athöfn á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar sem er staðsett við Lækjargötu á glæsihótelinu Hótel Reykjavík Saga að því er fram kemur í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara og Íslandshótelum.

Þórir Erlingsson og Sævar Karl Kristinsson innsigla samstarfið með handabandi.
Þórir Erlingsson og Sævar Karl Kristinsson innsigla samstarfið með handabandi. Ljósmynd/Aðsend

Hin margverðlaunaða Snædís yfirmatreiðslumaður

Íslandshótel hafa lengi verið tengd landsliðinu þar sem bæði fyrrverandi og núverandi landsliðsfólk starfar á veitingastöðum keðjunnar. Nýverið var hin margverðlaunaða Snædís Xyza Mae Jónsdóttir ráðin sem yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík en hún er þjálfari Kokkalandsliðsins. Á þeim tíma sem hún hefur stjórnað liðinu hefur það m.a. náð besta árangri Íslands á Ólympíuleikum í matreiðslu árið 2024 þegar liðið vann bronsverðlaun.

Þessi samstarfssamningur mun styrkja enn frekar samvinnu landsliðsins og Íslandshótela og veita landsliðinu tækifæri til að deila þekkingu sinni og færni innan veitingastaðakeðjunnar. Með þessum hætti er stefnt að því að koma með aukna og fjölbreyttari þekkingu í þá matargerð sem boðið er upp á á hótelunum auk þess að vera landsliðinu innan handar við undirbúning og keppnir á stórum mótum sem og innanlands. Íslandshótel hafa löngum verið þekkt fyrir að styðja við íslenska matarmenningu og lagt mikla áherslu á gæði og fagmennsku. Með þessu samstarfi er augljóst að stefnan er tekin á að vera í framlínunni í íslenskri matargerð segir enn fremur í tilkynningunni.

Klúbbur matreiðslumeistara og starfsfólk Íslandshótela á veitingasviðinu fagnaði samstarfinu.
Klúbbur matreiðslumeistara og starfsfólk Íslandshótela á veitingasviðinu fagnaði samstarfinu. Ljósmynd/Aðsend

Mikilvægt fyrir framtíð íslenskrar ferðaþjónustu

Samningurinn miðar að því að styrkja tengsl kokkalandsliðsins við Íslandshótel og stuðla að auknu samstarfi landliðsins og Íslenskrar ferðaþjónustu með áherslu á gæði veitinga. Næsta stórmót er heimsmeistaramótið sem fram fer í Lúxemborg árið 2026 og ætlar liðið sér stóra hluti þar.

„Við hlökkum til að sjá árangurinn af þessu spennandi samstarfi í framtíðinni,“ segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, en klúbburinn stefnir á að bæta við ungkokkalandsliði fyrir heimsmeistaramótið í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg árið 2026.

„Samstarf við öflug fyrirtæki í greininni sem leggja áherslu á að vera með frábæra fagmenn og góðan hóp af nemum er mjög mikilvægt fyrir okkur og framtíð íslenskrar ferðaþjónustu,“ bætir Þórir við að lokum.

Gleðin var allsráðandi.
Gleðin var allsráðandi. Ljósmynd/Aðsend
Kristín Birta Ólafsdóttir er meðlimur í kokkalandsliðinu.
Kristín Birta Ólafsdóttir er meðlimur í kokkalandsliðinu. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert