Það styttist í einn af betri dögum ársins, sjálfan bolludaginn en hann er mánudaginn 3. mars næstkomandi. Undanfarin ár hefur Hagkaup gefið út veglegan bollubækling þar sem við tökum saman ómótstæðilegar uppskriftir að bollum.
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, hefur haldið utan um bæklinginn og gefur alla sína ást og umhyggju í hvert smáatriði þegar bollur eru annars vegar enda bolludagurinn einn af hennar uppáhaldsdögum.
Bolludagurinn orðinn bolluvika
„Ég er líka mjög ánægð með þá þróun að við ætlum að lengja aðeins í bolludaginn og það má segja að þetta sé orðin bolluvika þar sem Íslendingar eru spenntir að hefja baksturinn og byrja jafnvel vikuna fyrr. Við seljum að sjálfsögðu líka tilbúnar fylltar bollur og úrvalið í verslunum okkar er framúrskarandi fyrir þessa bolluhátíð.
Það má því segja að við séum heldur betur klár í þessa helgi og getum ekki beðið eftir því að taka á móti okkar viðskiptavinum, hvort sem það er að kaupa inn allt fyrir baksturinn eða að kaupa tilbúnar bollur. Hver og einn gerir sitt og um að gera að njóta þess að vera með rjóma út á kinn – nú er tíminn,“ segir Eva Laufey sem er þegar byrjuð að baka bollur og njóta.
Eva Laufey gefur lesendum smjörþefinn af því sem er að finna í bæklingnum góða og þess sem hægt er að lesa bæklinginn hér.
Bollugleði Evu Laufeyjar er óstöðvandi.
Ljósmynd/Aðsend
Sælkerabollur úr bollubæklingi Hagkaups
Vatnsdeigsbollur með Oreo-kexi
Vatnsdeigsbollur
10-12 stk.
- 100 g smjör
- 2 dl vatn
- 110 g hveiti
- 3 stór egg
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C (blástur).
- Setjið vatn og smjör í pott og látið suðuna koma upp. Sjóðið í tvær mínútur.
- Setjið hveitið út í og blandið vel saman þar til deigið er orðið mjúkt.
- Leyfið deiginu að kólna í nokkrar mínútur. Þið megið færa deigið yfir í hrærivélarskál á þessu stigi eða hræra áfram með höndunum.
- Bætið eggjunum saman við, einu í einu, og þeytið vel á milli.
- Setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað nota skeiðar til þess að forma bollurnar.
- Bakið við 200°C í 25 mínútur. Það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum svo að bollurnar falli ekki.
- Kælið mjög vel áður en þær eru fylltar með gómsætum fyllingum.
Oreo fylling
- 500 ml rjómi
- 2 msk. kakó
- 1 tsk. vanilludropar
- 80 g mulið Oreo
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin í hrærivélaskál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur.
- Setjið rjóma í sprautupoka, skerið bollurnar í tvennt og fyllið með ljúffengri rjómafyllingu.
Glassúr
- 4 dl flórsykur
- 1 tsk. vanilludropar
- 3 – 4 msk. mjólk
- Mulið Oreo-kex til skrauts
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið saman, bætið mjólkinni saman við í nokkrum skömmtum.
- Þið viljið ekki að glassúrinn sé of þunnur og þess vegna er gott að byrja að setja minna en meira af mjólkinni.
- Smyrjið lokið á bollunum með glassúr og sáldrið Oreo-mulningi yfir.
Vatnsdeigsbollur með Oreo-kexi.
Ljósmynd/Aðsend
Nammibolla af bestu gerð
Vatnsdeigsbollur
10-12 stk.
- 100 g smjör
- 2 dl vatn
- 110 g hveiti
- 3 stór egg
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C (blástur).
- Setjið vatn og smjör í pott og látið suðuna koma upp. Sjóðið í tvær mínútur.
- Setjið hveitið út í og blandið vel saman þar til deigið er orðið mjúkt.
- Leyfið deiginu að kólna í nokkrar mínútur. Þið megið færa deigið yfir í hrærivélarskál á þessu stigi eða hræra áfram með höndunum.
- Bætið eggjunum saman við, einu í einu, og þeytið vel á milli.
- Setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað nota skeiðar til þess að forma bollurnar.
- Bakið við 200°C í 25 mínútur. Það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum svo að bollurnar falli ekki.
- Kælið mjög vel áður en þær eru fylltar með gómsætum fyllingum.
Nammifylling
- 500 ml rjómi
- 2 msk. sykur
- 80 g mulið Nóa Kropp
- Súkkulaðiglassúr, magn eftir smekk
Aðferð:
- Setjið rjóma og sykur í hrærivélaskál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur. Myljið Nóa Kropp og vefjið saman við rjómann með sleikju.
- Setjið rjóma í sprautupoka, skerið bollurnar í tvennt, smyrjið bollurnar með glassúr og fyllið með ljúffengri rjómafyllingu.
Glassúr
- 4 dl flórsykur
- 3 msk .kakó
- 1 tsk. vanilludropar
- 3 – 4 msk. mjólk
- Muldar litríkar súkkulaðiperlur til skrauts, magn eftir smekk
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið saman, bætið mjólkinni saman við i nokkrum skömmtum.
- Þið viljið ekki að glassúrinn sé of þunnur og þess vegna gott að byrja að setja minna en meira af mjólkinni.
- Smyrjið lokið á bollunum með glassúr og skreytið með með muldum litríkum súkkulaðiperlum.
Nammibollur af bestu gerð.
Ljósmynd/Aðsend
Lúxusrjómabollur með hindberjafyllingu
Vatnsdeigsbollur
10-12 stk.
- 100 g smjör
- 2 dl vatn
- 110 g hveiti
- 3 stór egg
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C (blástur).
- Setjið vatn og smjör í pott og látið suðuna koma upp. Sjóðið í tvær mínútur.
- Setjið hveitið út í og blandið vel saman þar til deigið er orðið mjúkt.
- Leyfið deiginu að kólna í nokkrar mínútur. Þið megið færa deigið yfir í hrærivélarskál á þessu stigi eða hræra áfram með höndunum.
- Bætið eggjunum saman við, einu í einu, og þeytið vel á milli.
- Setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað nota skeiðar til þess að forma bollurnar.
- Bakið við 200°C í 25 mínútur. Það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum svo að bollurnar falli ekki.
- Kælið mjög vel áður en þær eru fylltar með gómsætum fyllingum.
Hindberjafylling
- 500 ml rjómi
- 100 g fersk hindber
- 2 msk. sykur
- Berjasulta að eigin vali, magn eftir smekk
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin í hrærivélaskál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur.
- Setjið rjóma í sprautupoka, skerið bollurnar í tvennt, smyrjið bollurnar með sultu og fyllið með ljúffengri rjómafyllingu.
Glassúr
- 4 dl flórsykur
- 3 msk. kakó
- 1 tsk. vanilludropar
- 3 – 4 msk. mjólk
- Fersk ber til skrauts, til dæmisjarðarberr, hindber og rifsber.
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið saman, bætið mjólkinni saman viðíi nokkrum skömmtum.
- Þið viljið ekki að glassúrinn sé of þunnur og þess vegn era gott að byrja að setja minna en meira af mjólkinni.
- Smyrjið lokið á bollunum með glassúr og skreytið með smátt skornum ávöxtum.
Lúxusrjómabollur með hindberjafyllingu.
Ljósmynd/Aðsend