Sigríður Björk Bragadóttir, alla jafna kölluð Sirrý, matreiðslumeistari og annar eiganda að Salt Eldhúsi býður ávallt upp á heimalagaðar fiskbollur á bolludaginn. Hún gerir þær frá grunni og ber þær fram með lauksmjöri sem bráðnar í munni. Hún gefur hér lesendum matarvefsins uppskriftina að sínum uppáhalds sem tilvalið er að gera fyrir bolludaginn sem fram undan er á mánudaginn næstkomandi.
„Heimalagaðar fiskbollur eru mikið lostæti,“ segir Sirrý þegar hún er spurð hvort hún geri fiskbollur.
„Ekki eru þó allir á sama máli því ég var með 7 ára stubb í mat um daginn og sá þrætti við mig um að það væri hægt að „búa til fiskbollur.“ „Maður kaupir þær,” sagði sá stutti ákveðinn. Ég sagði honum að þegar ég var lítil hefði ekki hægt að kaupa þær í búð, bara gera sjálfur og það þótti honum furðulegt.
Stubb þótti bollurnar skrýtnar og ólíkar þeim keyptar voru úti í búð en féllst á að borða þær þegar ég sagði honum hversu hollar þær væru,“ segir Sirrý og hlær.
„Okkur í Salt Eldhúsi er það hjartans mál að gömlu góðu réttirnir sem við erum alin upp á gleymist ekki og þessar bollur eru eitt af því sem við eigum góðar minningar um. Oft söxum við tómata, gúrkur, papriku, fetaost og steinselju saman í skál, dreypum ólífuolíu yfir og berum með bollunum en lauksmjörið er dásamlega gott spari,“ segir Sirrý að lokum.
Heimalagaðar fiskbollur eru ávallt langbestar.
Ljósmynd/Sigríður Björk Bragadóttir
Fiskbollur Sirrýjar
Fyrir 4-5/12-14
- 600 -700 g hvítur fiskur, ýsa, þorskur, ufsi eða langa
- ½ laukur
- 1 ½ dl mjólk
- 1 egg
- 1 tsk. salt
- nýmalaður pipar
- 2 msk. hveiti eða annað mjöl sem hugnast (má sleppa því en þær verða þéttari)
- 1 tsk. þurrkaðar kryddjurtir, ég nota t.d. oft Herbes de Provence eða 2 msk. ferskar jurtir t.d. dill, steinselja og graslauk
- 2 msk. smjör
- 2 msk. olía
Aðferð:
- Skerið fiskinn í bita.
- Sirrý finnst fiskbollur bestar þegar þær eru vel unnar saman og þéttar, t.d. ekki með laukbitum, þannig að best er að saxa laukinn, setja hann í matvinnsluvél ásamt 1-2bitum af fisk og ½ dl mjólk og vinna allt mjög vel saman.
- Skafið niður með hliðum nokkrum sinnum og gerið þetta almennilega þar til ekki sést í laukbita.
- Bætið þá fisk, eggi og því sem eftir er af mjólk í ásamt salti, pipar og kryddum.
- Vinnið vel saman ífars og bætið mjöli, ef þið notið það, út í restina.
- Bræðið smjör og olíu á pönnu.
- Mótið bollur og steikið fallega brúnar á báðum hliðum, passið að lækka hitann svo þær verði ekki of dökkar.
- Þegar þið eruð búin að snúa bollunum, lækkið á hitann vel niður og látið bollurnar eldast í gegn.
- Berið fram með soðnum kartöflum og lauksmjöri (sjá uppskrift hér fyrir neðan).
Lauksmjör
- 2 laukar
- 50 -80 g smjör (magn eftir smekk og samvisku)
- 3 msk. olía
Aðferð:
- Afhýðið laukinn, skerið í tvennt og síðan í þunnar sneiðar.
- Hitið smjör og olíu í rúmgóðum potti eða djúpri pönnu.
- Setjið laukinn úr í og látið hann sjóða saman við smjörið við meðalhita. Ekki steikja hann, hann á að vera mjúkur í gegn og djúsí.
- Þetta getur tekið góðar 10 mínútur og fínt að gera á meðan fiskbollurnar klára að eldast.