Gummi Kíró bauð í smakk á Lemon

Gleðin var í fyrirrúmi á Lemon þegar nýr prótein drykkur …
Gleðin var í fyrirrúmi á Lemon þegar nýr prótein drykkur var kynntur til leiks. Lilja Marín Guðmundsdóttir, Guðmundur Birkir Pálmason, alla jafna kallaður Gummi Kíró, Kristjana Björk Barðdal, Gurrý Indriðadóttir og Jóhanna Soffía Birgisdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Guðmund­ur Birk­ir Pálma­son, bet­ur þekkt­ur sem Gummi Kíró, einn af vin­sæl­ustu kíróprak­tor­um lands­ins bauð upp á smakk og tjatt á nýj­um próteindrykk á Lemon á dög­un­um.

Hann hef­ur unnið mark­visst að því að bæta heilsu sína sem og annarra lands­manna. Hann seg­ir það gefa sér mikla út­rás að fara á góða æf­ingu og fá sér svo gott prótein á eft­ir.

„Það besta sem ég veit er að fara á Lemon eft­ir æf­ingu og fá mér prótein­sj­eik og sam­loku,“ seg­ir Gummi kampa­kát­ur. „Þegar stelp­urn­ar á Lemon höfðu sam­band og báðu mig um að gera nýj­an próteindrykk í sam­starfi við þær var ég ekki lengi að segja já, enda er þetta frá­bær staður sem býður upp á holl­an og góðan mat.“

Staður­inn stút­fyllt­ist

Viðskipta­vin­um var boðið að smakka nýja drykk­inn hans Gumma Kíró sem heit­ir Fro Pro og vís­ar í góðan Frappó-próteindrykk enda inni­held­ur drykk­ur­inn kaffi og prótein.

„Þessi drykk­ur er mjög góður og er frá­bær viðbót á nú­ver­andi mat­seðil hjá okk­ur,“ seg­ir Gurrý Indriðadótt­ir markaðsstjóri Lemon og bæt­ir við að staður­inn hafi stút­fyllst enda viðskipta­vin­ir og aðrir æst­ir í að smakka þenn­an frá­bæra drykk hjá Gumma.

Það var mikið fjör í smakkpartý­inu eins og sést á mynd­un­um.

Guðmundur Birkir Pálmason og Lína Birgitta.
Guðmund­ur Birk­ir Pálma­son og Lína Birgitta. Ljós­mynd/​Aðsend
Unnur María Pálmadóttir, Gummi Kíró, og Jóhanna Soffía Birgisdóttir.
Unn­ur María Pálma­dótt­ir, Gummi Kíró, og Jó­hanna Soffía Birg­is­dótt­ir. Ljós­mynd/​Aðsend
Gummi Kíró, Aníta Björt Sigurjónsdóttir og Sigrún Guðný Karlsdóttir.
Gummi Kíró, Aníta Björt Sig­ur­jóns­dótt­ir og Sigrún Guðný Karls­dótt­ir. Ljós­mynd/​Aðsend
Arnar Pétursson og Gummi Kíró.
Arn­ar Pét­urs­son og Gummi Kíró. Ljós­mynd/​Aðsend
Gummi Kíró, Óli Valur Pétursson og Tinna Pétursdóttir.
Gummi Kíró, Óli Val­ur Pét­urs­son og Tinna Pét­urs­dótt­ir. Ljós­mynd/​Aðsend
Alma Katrín Einarsdóttir, Sveindís Guðmundsdóttir og Gummi Kíró.
Alma Katrín Ein­ars­dótt­ir, Svein­dís Guðmunds­dótt­ir og Gummi Kíró. Ljós­mynd/​Aðsend
Gummi Kíró eins og hann er alla jafna kallaður.
Gummi Kíró eins og hann er alla jafna kallaður. Ljós­mynd/​Aðsend
Gurrý Indriðadóttir, Kristrún Runólfsdóttir og Steinn Logi.
Gurrý Indriðadótt­ir, Kristrún Run­ólfs­dótt­ir og Steinn Logi. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
Kristjana Björk Barðdal, Inga María Hjartardóttir og Kara Lind.
Kristjana Björk Barðdal, Inga María Hjart­ar­dótt­ir og Kara Lind. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
Kristún Runólfsdóttir, Gurrý Indriðadóttir og Jóhanna Soffía Birgisdóttir.
Kristún Run­ólfs­dótt­ir, Gurrý Indriðadótt­ir og Jó­hanna Soffía Birg­is­dótt­ir. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
Skálað í nýju prótein drykk á Lemon.
Skálað í nýju prótein drykk á Lemon. Árni Sæ­berg
Lilja Marín Guðmundsdóttir og Pálmi Hrafn Hlynsson.
Lilja Marín Guðmunds­dótt­ir og Pálmi Hrafn Hlyns­son. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert